Morgunblaðið - 03.12.2005, Page 38
Íslendingum stendur nú til boðaað leigja sér stórt hús á fjórumhæðum í vinalegu og sveita-legu umhverfi í franska bæn-
um Riberac þar sem nóg er af afþrey-
ingu. Eigandi hússins er Jóna
Sparey, sem festi kaup á húsinu fyrir
um tveimur árum og hefur síðan búið
þetta fjölskylduhús, eins og hún kýs
að kalla það, allt mjög heimilislegt
með íslensku handverki enda er Jóna
sjálf mikil hannyrðakona og hefur
m.a. ferðast um og kennt íslenskan
krosssaum víða um heim.
Jóna hefur aldrei búið á Íslandi, en
móðir hennar, Svava Zöega, var ís-
lensk og faðirinn, Eric Greenfield,
enskur. Hún er hinsvegar mikill Ís-
lendingur í sér og hefur miklar og
sterkar taugar til landsins enda var
hún á æskuárunum send á hverju
sumri með íslenskum togurum, sem
voru að selja fisk í Bretlandi, til Ís-
lands þar sem hún dvaldi hjá móð-
urömmu sinni, Hönnu Zöega.
Bóndakarlar áhugaverðir
Ferðir Jónu til Íslands hafa auk
þess verið tíðar á fullorðinsárum því
fyrir tuttugu árum stofnaði hún eigin
ferðaskrifstofu í þeim tilgangi að
kynna Bretum Ísland. Hún hefur
komið með fjölmarga ferðahópa til
landsins, keyrt um landið í rútum,
sagt sögur af landi og þjóð og tekið
lagið á ferðalögunum. „Ég er ást-
fangin af Íslandi og smita svo sann-
arlega út frá mér enda fer fólk með
mér aftur og aftur til Íslands. Fólk
byrjar að skjóta rótum hér þegar það
hefur einu sinni komið. Ég fer svo
alltaf með mína ferðamenn upp í
Skorradal þar sem mér áskotnaðist
skógræktarland í landi Efri-Hreppa
fyrir nokkrum árum og leyfi þeim að
gróðursetja þar tré til að sýna land-
inu ást og umhyggju. Nú eru trén í
Jónulundi orðin 350 talsins og fer
fjölgandi. Ég áforma svo að gefa út
bók með nöfnum þeirra, sem gróð-
ursett hafa þarna tré, og verður ágóð-
anum varið til styrktar skógrækt í
landinu.“
Jóna segist hafa sérstakt dálæti á
íslenskum bóndakörlum, eins og hún
kallar þá. „Ef ég fyndi mér góðan ís-
lenskan bóndakarl er aldrei að vita
nema ég settist að á Íslandi. Ég vil
endilega komast í samband við góðan
íslenskan bónda og lofa því að svara
öllum bréfum frá bóndakörlum, sem
mér berast,“ segir Jóna og hlær dátt í
Íslandsheimsókn fyrir skömmu sem
hún nýtti m.a. í Þórsmerkurferð áður
en haldið var af stað til Frakklands á
ný.
Jóna er fædd og uppalin í Lund-
únum og bjó í Somerset á suðvestur-
Englandi í tíu ár áður en hún fluttist
til Frakklands fyrir tveimur árum.
„Ég sá þetta hús auglýst, heillaðist af
umhverfinu og var ekki lengi að
ganga frá kaupsamningum,“ segir
Jóna. Bærinn Riberac er í fallegum
landbúnaðardal sunnarlega í Frakk-
landi og eru íbúar þar um sex þúsund
talsins.
Fjórtán í gistingu
Andrúmsloftið er einkar vinalegt
og er húsið í nokkurra mínútna
göngufjarlægð frá helstu nauðsyn-
legum viðkomustöðum. Vatn með
baðströnd, piknik-aðstöðu og barna-
leiktækjum er steinsnar frá. Hægt er
að komast á hestbak, í tennis, stunda
siglingar og kajakróður á ánni
Dronne, sem rennur í gegnum bæinn.
Stolt bæjarbúa er rómversk kirkja í
bænum og mikil markaðsstemmning
skapast vikulega á föstudögum. Svo
má ekki gleyma smökkunarferðum á
hina fjölmörgu vínbúgarða sem eru
þarna allt í kring. Tólf veitingastaðir
eru í næsta nágrenni og upplagt er að
kaupa ný egg af nágranna Jónu,
hænsnabóndanum Mad Max, eins og
hún kallar hann.
Húsið hennar Jónu rúmar fjórtán
gesti í einu og því fylgir risastór garð-
ur með risastórri verönd auk rúm-
góðs og vel búins eldhúss og borð-
stofu. Sjö svefnherbergi eru í húsinu
auk þriggja baðherbergja og sex kló-
setta. Og frá og með marsmánuði
munu gestir hafa aðgang að sundlaug
í garðinum.
Hentar fjölskyldum vel
Að sögn Jónu er best að koma frá
apríl og fram í október og gerir hún
tilboð í hópa miðað við þá þjónustu,
sem menn þurfa. „Húsið hentar til
dæmis einkar vel fyrir tvær til þrjár
fjölskyldur, sem taka sig saman um
að dvelja í húsinu saman í ákveðinn
tíma, en reikna má með því að verðið
sé 150–200 pund á mann í viku. Allt er
þá innifalið nema þjónusta, en hægt
er að fá eldabusku til að elda og
hreingerningafólk til að gera hreint.“
FERÐALÖG | FRAKKLAND | Jóna Sparey er af íslenskum ættum og leigir út 14 manna hús í franska bænum Riberac
Við húsið er risastór verönd þar sem gestir geta setið í rólegheitum.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
jonasparey@jona-tours.com
Morgunblaðið/RAX
Séð úr garðinum hennar Jónu yfir í næstu hús.
Hægt er að baða sig í vatni skammt hjá með lítilli sandströnd.
Benda má áhugasömum á að
besta leiðin til að koma sér til
Riberac er að fljúga frá Keflavík til
London Stansted og taka svo
framhaldsflug með Ryanair til
Bergerac í Frakklandi, en þaðan er
rúmlega klukkutíma akstur í fal-
legu umhverfi til Jónu. Bílaleiga er
á Bergarac-flugvelli.
38 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Ferðafrömuðurinn Jóna Sparey
býður Íslendingum upp á stórt
fjölskylduhús á fjórum hæðum í
Riberac í Frakklandi.
ÞAÐ getur reynst þrautin þyngri
að finna hagstæðustu gistinguna.
Margar leitarvélar eru til á netinu
og getur munað allt að helmingi á
verði ef miðað er við dýrasta og
ódýrasta kost. Það er því til mikils
að vinna að leggja það á sig að
leita eftir hagstæðasta kostinum. Á
vefútgáfu Aftenposten er að finna
hagnýtar upplýsingar um bók-
unarvefi. Gerð var könnun á veg-
um vefjarins á því hvar hagstæðast
var að bóka gistingu í Barcelona.
Í samanburðinum voru athug-
aðir vefir sem annars vegar buðu
upp á að bóka almennt hvar sem er
í heiminum og hins vegar í gegn-
um hótelkeðjur.
Leitað var eftir hótelherbergi
miðað við ákveðna dagsetningu
fyrir tvo í Barcelona. Fyrst var
kannað verð miðað við lágmarks-
kröfur. Síðan var kannað hversu
notendavænir vefirnir væru og
loks hversu aðgengilegir þeir
væru.
Efst í töflunni er að finna bók-
unarvefinn sem kom best út og svo
koll af kolli.
NETIÐ | Léttum okkur leitina
Er erfitt að finna ódýrustu gistinguna?
Venere: Mjög skýr og not-
endavænn. Auðvelt að staðfesta.
Hægt að greiða með afborgunum.
www.venere.com.
HotelGlobal: Góðar upplýsingar
um hótelin. hotelglobal.no.
Expedia: Mjög góðar upplýs-
ingar og leiðbeiningar. www.ex-
pedia.com.
HotelGuide: Góð leitarvél sem
leitar líka í öðrum vefjum. Einföld
og þægileg. www.hotelguide.com.
HotelClub: Einföld og þægileg
bókun. Hægt að greiða með af-
borgunum. www.hotelclub.net.
Reisefeber: Sýnir hótel ásamt
verði á korti. Mjög auðveld bók-
unarleið en er svolítið sein.
www.reisefeber.no.
Hotels.com: Einfalt að bóka.
Dálítið óskýrt hvort gjöld eru inni-
falin og hvert endanlegt verð
verður. Verðtrygging. www.hotels-
.com.
DAGLEGT LÍF
Vill kynnast ís-
lenskum bónda
13.900
Vika á Florida
Ford Escort eða sambærilegur
kr. - ótakmarkaður akstur,
flugvallargjald, tryggingar, einn auka
bílstjóri, einn tankur af bensíni
og skattar.
* Verð er hærra 15. - 31. des.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
00
09
10
/2
00
5
*
Sími: 50 50 600
www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta