Morgunblaðið - 03.12.2005, Side 41
góða skemmtun
Ný geislaplata frá tveimur af
höfuðsnillingum sígildrar
tónlistar á Íslandi.
stórar upphæðir, en manni
bregður við þetta og verður
óöruggur, alltaf að líta í kringum
sig, svona lagað skyggir á.“
Gísli og hópurinn sem hann var
með voru ánægðir með hótelið.
„Þetta var mjög gott hótel og
ekkert út á það að setja og ferða-
skrifstofan stóð við allt sitt. Hót-
elið var samt rokdýrt, maður
borgaði fyrir tvöfaldan gin og
tónik um 2.000 íslenskar krónur.“
Flogið var beint til Istanbúl og
það voru margir mismunandi
hópar í þessari ferð. Gísli segir
að ekki hafi allir sömu sögu að
segja og mörgum hafi þótt af-
skaplega gaman. „Ég segi ekki
að þetta hafi verið hrein hörm-
ung, en þetta var ekki gaman.
Mörgum í hinum hópunum fannst
þetta mjög skemmtilegt og þeir
lentu ekkert í svona hremm-
ingum eins og við. Maður getur
náttúrlega líka lent í að vera
rændur þó að maður sé í Barce-
lona eða Róm. Það er þó eitt sem
má segja og það er að við munum
sannarlega muna eftir þessari
ferð.“
Gísli og Bryndís vilja taka það
fram að þrátt fyrir allt hafi þau
til þessa bara heyrt vel af Tyrk-
landi látið. „Allir sem ég hef tal-
að við eru afar ánægðir með sól-
arstrandar- og golfferðir sem
þeir hafa farið í, ég held að þessi
stemning sem við upplifðum sé
kannski bara bundin við Ist-
anbúl,“ sagði Bryndís að lokum.
Basilica Cistern, neðanjarðar vatnsgeymsla frá árinu 532.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 41
Ódýr og góð gisting miðsvæðis í Kaupmannahöfn. Tölum íslensku.
sími 0045 3297 5530 • gsm 0045 2848 8905
www.lavilla.dk
Kaupmannahöfn - La Villa
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Æ FLEIRI kaupa sér nú flugmiða á
Netinu en verðið gæti lækkað enn
meira ef flugmiðasalan færist einnig
yfir í farsímana. Á neytendavef Aft-
enposten er rætt við forsvarsmenn
norsku flugfélaganna SAS Braathens
og Norwegian sem bæði fjárfesta nú í
markaðssetningu og tæknikerfum
vegna farmiðasölu um farsíma. Slíkt
veitir beint samband við viðskiptavin-
inn, að þeirra sögn. Netið verður að-
gengilegra á æ fleiri stöðum, þ.e. ekki
bara í tölvum heldur einnig öðrum
tækjum eins og farsímum. Þetta þyk-
ir flugfélögunum mikilvægt og búa
þau sig nú undir það. Miðasala um
farsíma verður ódýrari fyrir flug-
félögin og kosturinn fyrir viðskipta-
vininn er að verðið getur lækkað
vegna harðnandi samkeppni.
Morgunblaðið/Þorkell
TÆKNI
Farmiðasala
í farsíma
DAGLEGT LÍF