Morgunblaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 47
UMRÆÐAN
um jólin
Þú gengur að
gæðunum
vísum
Jóla-Brie
Mildur og mjúkur ostur sem er
best að bera fram 10–15 gráðu
heitan. Hann rennur ljúflega
niður með góðu rauðvíni.
Jólaostarnir eru sérframleiddir fyrir hátíðarnar.
Aðeins er gerð ein lögun af hverri tegund
sem tryggir að ostarnir ná hámarksbragð-
gæðum um jólin.
Jólaosturinn 2005
Sérframleiddur ostur í ætt við Gouda.
Hann er mjúkur og mildur og sérlega
góður á brauð eða einn sér.
Jólaostakakan í ár er hleypt kaka, en ekki bökuð sem
gerir hana mýkri og léttari en venjulegar ostakökur.
Fínleg og gómsæt ítölsk fylling úr skógarberjum er hið
fullkomna mótvægi við rjómaostabragðið.
Jólaostakaka
Jóla-Yrja
Lúxusyrja sem er aðeins mýkri en venjuleg Yrja.
Þegar hún er á rétta þroskastiginu finnst sumum
hún besti desertosturinn.
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Munið að
algengasta orsök
kertabruna er
röng meðferð
kerta
Munið að
slökkva á
kertunum
i
Í SEXTÁN daga við upphaf að-
ventu taka fjölmörg samtök hönd-
um saman og beina sjónum al-
mennings að kynbundnu ofbeldi.
Hina daga ársins vinna sömu sam-
tök að því markmiði að útrýma
slíku ofbeldi og auka virðingu fyrir
mannréttindum. Það starf fer oft á
tíðum fram án þess að
fjölmiðlar og allur al-
menningur verði var
við, en þær konur
sem sæta ofbeldi og
aðrir sem sæta mann-
réttindabrotum
þekkja til starfsins og
vita hvar skjól er að
finna.
Mansal og
nauðungarvinna
Eitt viðfangsefni er
að binda enda á man-
sal og nauðung-
arvinnu, sem er alvar-
legt mannréttindavandamál, er
bæði snertir konur, karla og börn.
Mansal er smölun, flutningur og
sala á fólki, að hýsa eða taka á
móti fólki með þvingunum eða hót-
unum um ofbeldi. Mansal getur
einnig verið brottnám, svindl, sam-
sekt eða valdamisnotkun í þeim til-
gang að nota fórnarlömbin kyn-
ferðislega, til nauðungarvinnu, í
þrældóm eða jafnvel til að nýta úr
þeim líffærin.
Tölulegar upplýsingar um um-
fang mansals í heiminum eru
nokkuð á reiki. Áreiðanlegustu töl-
ur um mansal og nauðungarvinnu
er að finna í skýrslum Alþjóðlegu
vinnumálastofnunarinnar. Í einni
slíkri skýrslu, sem út kom fyrr á
þessu ári, kemur fram að 12,3
milljónir manna séu hnepptar í
nauðungarvinnu víða um heim.
11% þeirra ,,starfa innan vænd-
isiðnaðarins“, en konur eru þar í
miklum meirihluta eða 98%. Af
þessum hóp eru margar konur
sem haldið er í fjötrum og þving-
aðar til vændis í eigin heimalandi
en aðrar eru fluttar milli landa.
Talið er að 2,45 milljónum ein-
staklinga sé haldið
nauðugum í ýmsum
störfum utan síns
heimalands í kjölfar
mansals. Þar af er um
ein milljón kvenna og
stúlkna sem eru
þvingaðar í vændi.
Alþjóðlegir
samningar
Samningur Samein-
uðu þjóðanna um að
koma í veg fyrir,
stöðva og refsa fyrir
mansal með konur og
börn hefur verið und-
irritaður á Íslandi og árið 2003
voru gerðar breytingar á hegning-
arlögum þar sem kveðið er á um
refsingar vegna mansals. Fyrr á
þessu ári gerði Evrópuráðið sátt-
mála gegn mansali. Ísland er eitt
þeirra sextán ríkja sem hafa skrif-
að undir sáttmálann en eftir er að
staðfesta hann á Alþingi. Gerð
þess sáttmála hefur verið fagnað
af fjölmörgum mannréttinda-
samtökum og mikilvægt er að Evr-
ópuríki gerist aðilar að honum og
veiti þar með fólki sem sætir man-
sali og nauðungarvinnu þá vernd
sem það þarfnast.
Árið 1990 gerðu Sameinuðu
þjóðirnar mikilvægan samning sem
lýtur að réttindum farandverka-
fólks, en einungis örfá ríki hafa
gerst aðilar að honum fram til
þessa og er Ísland ekki þeirra á
meðal. Staðreyndin er sú að fólk
sem starfar sem farandverkafólk
lendir oft í aðstæðum sem líkja má
við mansal og nauðungarvinnu og
er því brýnt að Alþingi staðfesti
þann samning og aðlagi íslenska
löggjöf ákvæðum hans.
Sameiginleg ábyrgð
Við berum öll ábyrgð á mann-
réttindum, bæði yfirvöld og allur
almenningur. Vettvangur ein-
staklinga til þátttöku í baráttunni
er meðal annars Amnesty Int-
ernational, sem vinnur að aukinni
mannréttindavernd til handa öllum
og tekur ásamt fjölmörgum öðrum
samtökum þátt í 16 daga átakinu
gegn ofbeldi á konum sem nú
stendur yfir. Þau samtök sem
stóðu að átakinu fyrir ári unnu
sameiginlega að ítarlegri aðgerða-
áætlun sem kynnt var ráðamönn-
um á vordögum. Árangur þess
starfs endurspeglast nú í gerð op-
inberrar aðgerðaáætlunar gegn
kynbundnu ofbeldi sem er í smíð-
um af hálfu ríkisstjórnarinnar. Nú
er sveitarfélaganna að feta í þau
spor og smíða sínar aðgerðaáætl-
anir gegn kynbundnu ofbeldi.
Flutningur og sala á fólki
Eftir Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur ’Við berum öll ábyrgð á mannréttindum, bæði
yfirvöld og allur al-
menningur.‘
Jóhanna K.
Eyjólfsdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri
Íslandsdeildar Amnesty
International.
16 daga átak