Morgunblaðið - 03.12.2005, Side 48
48 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
VERÐI ekki gripið til raunhæfra
aðgerða strax kann brátt að verða
um seinan að stöðva loftslagsbreyt-
ingar. Nýlegar rannsóknir rúss-
neskra vísindamanna benda til að
sífrerinn í Norður-Rússlandi og
Síberíu sé tekinn að þiðna. Við það
losnar umtalsvert magn af metan-
gasi sem er áhrifamikil gróðurhúsa-
lofttegund. Haldi svo áfram stig-
magnast gróðurhúsaáhrifin og í
kjölfarið hlýnun andrúmsloftsins.
Tímasprengjan liggur enn frosin í
túndrunni.
Að auki má nefna
tíðari og öflugri felli-
byli á Karíbahafi,
mikla þurrka og skóg-
arelda á Spáni, einstök
hlýindi í Evrópu þetta
haustið og skýrslu
Norðurskautsráðsins,
sem kynnt var í
Reykjavík fyrir ári, um
hraða hlýnun á norð-
urslóðum, hop íss og
bráðnun jökla.
Þetta er bakgrunnur
samningaviðræðna hér
á loftslagsþingi Sam-
einuðu þjóðanna í Montreal dagana
28. nóv. til 9. des. Jafnframt fer
fram 1. fundur Kyoto-bókunar-
innar.
Krafa umhverfisverndarsamtaka
er að í Montreal verði tekið stórt
skref í átt að samkomulagi um
næsta skuldbindingartímabil Kyoto,
2013–2017. Nú þegar bókunin er
orðin að alþjóðalögum verða ríki
heims, einkum hin auðugu og
tæknivæddu iðnríki, að axla ábyrgð.
Ná verður samkomulagi fyrir 2008
um miklu meiri sam-
drátt í útstreymi
gróðurhúsaloftteg-
unda (ghl) en þau
-5,2% (miðað við 1990)
sem Kyoto-bókunin
skuldbindur iðnríkin
um á tímabilinu 2008–
2012.
Stjórnmálamenn,
fyrirtæki og almenn-
ingur verða að leggj-
ast á eitt. Iðnríkin
verða að draga úr ghl-
losun sinni um 30%
fyrir 2020 og um 70%
fyrir 2050. Viðmiðið – takmarkið –
er að hækkun hitastigs jarðar verði
undir 2°C að meðaltali miðað við
það sem var fyrir iðnbyltingu. Að
öðrum kosti er vonlítið að þróuninni
verði snúið við.
Vísindamenn benda á að hlýnun
andrúmsloftsins nemi nú 0,7°C og
vegna þeirra ghl sem þegar hefur
verið blásið út í andrúmsloftið er
innistæða fyrir enn meiri hlýnun.
Jafnvel þótt losun verði stöðvuð
með öllu strax í dag. Tregða lofts-
lagskerfisins er mikil og því verður
að grípa til aðgerða strax.
Markaður fyrir losunarkvóta
myndast þegar rétturinn til að
menga verður takmarkaður. Fyr-
irtæki kaupa ekki vöru eða aðgengi
að auðlind (losunarkvóta) sem þau
hafa hvort eð er ótakmarkaðan að-
gang að. Þetta þekkja Íslendingar
mæta vel af kvótakerfinu fyrir fisk-
veiðar. Einmitt með takmörkunum
á aðgengi að andrúmslofti jarðar
skapast markaður og þar með hvati
fyrir fyrirtæki að nýta sér hreina
orku og um leið selja réttindin til
að menga þegar þau nýta hreinni
tækni við framleiðslu, þjónustu eða
annað.
Bandaríkin sem menga mest
allra ríkja leggjast alfarið gegn
hvers kyns skuldbindingum um
samdrátt í útstreymi ghl. Banda-
ríkjastjórn (ath! ekki Bandaríkja-
menn heldur stjórn Bush forseta)
vill ekkert aðhafast. Hvorki nú né
eftir 2012.
Robert F. Kennedy, yngri, segir í
viðtali við Montrealblaðið Gazette í
dag að aðildarríki Kyoto-bókunar-
innar (156 að tölu) standi ekkert
annað til boða en að hunsa Banda-
ríkjastjórn. Bush-stjórnin vilji ekk-
ert annað en að eyðileggja Kyoto-
ferlið. Breytinga sé fyrst að vænta
með nýjum forseta í janúar 2009.
Kennedy er þekktur lögfræð-
ingur Bandaríkjanna á sviði um-
hverfismála en frægð sína á hann
ekki síst að þakka föður sínum og
föðurbróður. Hann segir bandarísk
umhverfisverndarsamtök ekki
eygja neina von um að hafa áhrif á
Bush-stjórnina en víða í Bandaríkj-
unum eigi sér þó stað mjög jákvæð
þróun.
ESB-ríkin, Noregur og Japan
þrýsta á um frekari samdrátt á
grundvelli Kyoto-bókunarinnar.
Afstaða íslenskra stjórnvalda er
fremur óljós. Nýleg yfirlýsing utan-
ríkisráðherra á Alþingi um hugs-
anlegar loftslagsbreytingar bendir
til að stjórnvöld hyggist enn um
sinn kúra undir sama feldi og Bush
forseti.
Frá loftslagsþingi
í Montreal
Árni Finnsson fjallar
um loftslagsbreytingar
Árni Finnsson
’Nýleg yfirlýsing utan-ríkisráðherra á Alþingi
um hugsanlegar lofts-
lagsbreytingar bendir
til að stjórnvöld hyggist
enn um sinn dvelja und-
ir sama feldi og Bush
forseti.‘
Höfundur er formaður
Náttúruverndarsamtaka Íslands.
SKONDIÐ hvernig
umræðan um jóla-
bókaflóðið í ár snýst
öll um spennubæk-
urnar. Þær eru hafð-
ar til sannindamerkis
um að nú séum við
orðin þjóð meðal
þjóða, það sé gríð-
arlegt menningarlegt
framfaraskref að hér
sé farið að skrifa
sæmilega læsilega
krimma.
En hvað er svona
merkilegt við það?
Er afþreying á bók eitthvert
meira framfaraskref í menningunni
en afþreying í kvikmynd eða sjón-
varpi?
Núna fer einmitt
hratt vaxandi að sjón-
varpsstöðvar kaupi til-
búnar formúlur, Idol,
Bachelor, og klæði það
í íslenskan búning. Er
það í rauninni ekki
mjög áþekkt þeirri
glæpasagnabylgju sem
nú flæðir yfir allt hér-
lendis og yfirskyggir
alla vitsmunalega um-
ræðu um bókmenntir?
Afritanir
Við erum stolt af
okkar merkustu listamönnum
vegna þess að þeir stefna hátt og
miða við það sem best er gert í
heiminum. Rithöfundar á borð við
Steinunni, Guðberg, Thor, Fríðu Á.
og Sjón eru nokkur skýr dæmi um
það.
Það kann vel að vera að „mark-
aðurinn vilji“ allt þetta glæpasagna-
flóð, rétt eins og hann vill greini-
lega afrita erlenda sjónvarpsþætti
og færa þá í íslenskan búning. Gott
og vel, það er svosem ekkert að því
að íslenskir reyfarahöfundar (sem
vel að merkja eru oftast fyrrver-
andi eða núverandi fjölmiðlamenn)
skrifi afþreyingarbækur áfram. En
látum ekki fjölmiðlafólk telja okkur
trú um að þær skipti máli. Enda
þótt þær séu ágætlega skrifaðar
hafa þær sáralítið bókmenntagildi,
þær nema engin ný lönd á sviði
skáldsögunnar og eru sennilega
dæmdar til gleymsku skömmu upp
úr áramótum.
Heimóttarskapur
Finnst fólki það bara nóg? Eru
íslenskir lesendur svona nægjusam-
ir, finnst ágætt að lesa útvatnaðar
formúlubækur og treysta sér ekki
til að lesa safaríkari bókmenntir, ís-
lenskar eða þýddar? Kjósa fremur
undanrennu en rjóma, skyndibita
en kræsingar?
Ég held raunar ekki. Flestum,
þar á meðal mér, finnst ágætt að
hafa þetta hvert með öðru. Einmitt
þess vegna þarf fólk að taka bók-
menntaumræðuna sem öll snýst um
spennubókaflóð með svolitlum fyr-
irvara.
Íslenska rithöfunda skortir ekki
metnað og mörg mjög góð verk eru
að líta dagsins ljós þessar vikurnar.
Það er því eitthvað átakanlega
heimóttarlegt við þessa fjölmiðla-
umræðu, eitthvað sem stingur al-
gerlega í stúf við þann metnað,
dirfsku og áræði sem almennt ein-
kennir íslenskt samfélag þessi
misserin.
Af bókmennta-
legri nægjusemi
Friðrik Rafnsson fjallar um
bókmenntasmekk Íslendinga
’Eru íslenskir lesendursvona nægjusamir,
finnst ágætt að lesa út-
vatnaðar formúlubækur
og treysta sér ekki til að
lesa safaríkari bók-
menntir, íslenskar eða
þýddar?‘
Friðrik Rafnsson
Höfundur er bókmenntafræðingur
og þýðandi.
Gull- og
Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is
Fallega Jólaskeiðin
frá Ernu
kr. 6.900
WWW.NOWFOODS.COM
Góð heilsa gulli betri
Árið 2005 hefur verið stórkostlegt fyrir Ski-doo og Gísla Jónsson ehf. Ski-doo er ekki aðeins söluhæsti sleðinn á Íslandi, heldur
einnig á heimsvísu. Þá gerðist sá einstaki viðburður að allir Íslandsmeistarar í Snowcross 2005 óku á Ski-doo sleðum. Nú gefst þér
kostur að líta við um helgina og sjá 2006 árgerðina af Ski-doo vélsleðum í nýjum og rúmgóðum sýningarsal okkar að Kletthálsi 13.
Sýningin er opin laugardag frá kl. 10-17 og 13-17 á sunnudag.
Við bjóðum frábært úrval af fatnaði og fylgihlutum frá Ski-doo og ScottUSA (Reima).
VERTU Í SIGURLIÐINU!
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
Scott Ultimate hlífðargleraugu
Aukin hliðarsýn - frábær vörn.
12.644 kr.
Warrior Gore-Tex hanskar
9.950 kr.
Taska með hólf fyrir 5 hlífðargleraugu
og margs konar smáhlutir.
3.884 kr.
Snowcross hjálmur
22.900 kr.
Jakki með flíspeysu
Styrkingar og púðar (hægt að losa).
Allir saumar límdir.
34.900 kr.
Ski-doo BV2S hjálmur
Einfaldlega sá besti.
49.700 kr.
Ski-doo flíspeysa
7.900 kr.
Brot af því sem er í boði