Morgunblaðið - 03.12.2005, Page 49

Morgunblaðið - 03.12.2005, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 49 UMRÆÐAN XLV Soft Shell vindheld og vatnsfráhryndandi til í þremur litum Jólatilboð kr. 9.990.- verð áður kr. 11.990.- Jólin í Soldis eru bara skemmtileg Silkitré og silkiblóm Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) – sími 551 2040 – Opið laugardag kl. 10-18 – sunnudag kl. 13-18 Opið til 22:00 til jóla Nýtt kortatímabil FORSENDUR miðbæjartillög- unnar í aðalskipulagi Álftaness er þétting byggðar, áhersla á byggð innan hringvegar og opnari svæði utan hans. Þetta endurspeglar einnig það sem kemur fram í svæðisskipulagi höf- uðborgarsvæðisins sem samþykkt var ár- ið 2002. Þessar áherslur voru sam- þykktar af öllum bæj- arfulltrúum þegar að- alskipulagi sem varðar miðbæj- arsvæðið var breytt síðast. Þessi sjón- armið komu fram á íbúaþingi ásamt því að aðkoman inn í sveitarfélagið yrði áfram eins og nú er, svo haldið sé til haga tveimur dæmum frá þeim samkomum. Íbúar hafa lagt áherslu á náttúrulegt umhverfi, vatnasvæði og að svæðið kringum Grástein fengi notið sín, en það kemur einnig fram í tillög- unni. Sú útfærsla skapar aðlaðandi að- komu að hverfinu og náttúrulega ásýnd. Næst Suðurnesvegi er gert ráð fyrir tjörnum og göngustígar tengja hverfið við skóla, opin svæði og önnur hverfi bæjarins. Á svæðinu er verið að byggja upp at- vinnustarfsemi þar sem uppbygg- ing Eirar er. Í tengslum við þá starfsemi getur blómstrað ýmis önnur þjónusta sem dregur að fólk. Þannig verður miðbærinn lif- andi og íbúðir eldri borgara í önd- vegi. Sköpuð eru skilyrði fyrir fjöl- breytilega starfsemi sem ein- staklingar og fyrirtæki geta sett á laggirnar, hvort sem það eru kaffi- hús, smáverslanir eða rakarastofa. Strangir skilmálar gera kröfur um fjölbreyttar húsagerðir, vandað efnisval og húsin eins til þriggja hæða. Fyrirhugaður nátt- úrugarður, sem er við enda torgs- ins næst skólalóð og tengir hverfið við útivistarsvæði og skólasvæðið, verður fallegur og kærkominn úti- vistarstaður fyrir íbúa og alls kyns samkomur við ýmis tilefni. Aðalgatan sem liggur inn að skólasvæðinu verður með 30 km hámarkshraða og við hönnun gatna verður hinn gangandi veg- farandi í forgangi. Framsæknar hugmyndir eru um frágang sorps sem verði flokkað og sett í nið- urgrafna sorp- og endurvinnslu- gáma. Þeim verður komið fyrir í hæfilegri nálægð við allar íbúðir og þjónustuhús á svæðinu. Því er nú haldið að íbúum Álfta- ness að miðbæjarskipulagstillagan sé „skipulagsslys“ og ekki spöruð stóru orðin í áróðri gegn þessari vönduðu tillögu sem nú er í auglýsingu. Talað er um að hún „sé ekki pappírsins virði“ og ekki hafi verið tekið tillit til sjónarmiða sem fram komu á íbúaþingum sem hald- in hafa verið. Allar þessar staðhæfingar eru ómálefnalegur málflutningur, reistur á óskiljanlegri heift sem á greinilega upp- haf sitt í því að ekki var tekið undir tillögu um samkeppni. Það virðist alveg hafa gleymst þeim sem reka þennan áróð- ur, að einu sinni töl- uðu þeir um nauðsyn þess að hér yrði sem fyrst að að skapa skil- yrði fyrir ýmiss konar atvinnustarfsemi og að laða þyrfti fyrirtæki að. Hvar má greina hugmyndir þeirra um út- færslu á slíku í öllu niðurrifs- og svartsýnistalinu? Það var mikið gæfuspor þegar bærinn keypti stóran hluta lands- ins á miðsvæðinu, en þeim kaupum voru fulltrúar Á-lista í bæjarstjórn á móti eins og þeir voru á móti samningum við Eir. Um leið og til- lagan hlýtur staðfestingu verður hafist handa við úthlutun lóða til einstaklinga á svæðinu næst Breiðumýri og það hlýtur að vera fagnaðarefni. Ennfremur hefur skipulagsnefnd verið falið að hefja undirbúningsvinnu við að skipu- leggja það svæði sem er sunnan Grásteins, en það land er einnig í eigu sveitarfélagsins. Þar eru einn- ig spennandi verkefni framundan. Ég hvet íbúa Álftaness til að kynna sér tillöguna og skilmála hennar vel, bera saman við áherslur sem fram komu á íbúa- þingum og mynda sér sjálfstæðar skoðanir. Allt þetta efni er aðgengilegt á heimasíðu bæjarins. Glæsileg tillaga að miðbæjarskipu- lagi Álftaness Erla Guðjónsdóttir fjallar um skipulagsmál á Álftanesi ’Allar þessarstaðhæfingar eru ómálefna- legur málflutn- ingur, reistur á óskiljanlegri heift …‘ Höfundur er formaður skipulagsnefndar Álftaness. Erla Guðjónsdóttir Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.