Morgunblaðið - 03.12.2005, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
SKÓLAKERFI eru í sífelldri þró-
un og endurskoðun og því er mik-
ilvægt að líta á skólagöngu nemenda
sem eina samfellu, allt frá leikskóla til
loka framhaldsskóla, hvort sem í því
felst bóknám, starfsnám eða listnám.
Markmiðið með breyttri námsskipan
til stúdentsprófs er
einmitt að miða þróun
kerfisins út frá sjón-
arhorni nemandans.
Að skoða á ábyrgan
hátt samfellu og nýt-
ingu þeirra verðmætu
ára sem nemendur eru
í skólakerfinu. Mark-
miðið er að end-
urskipuleggja náms-
tíma, námsefni og
breyta kennsluaðferð-
um í kjölfar þess að
grunnskólinn hefur
lengst um sem nemur
tveimur árum og fram-
haldsskólinn 12 vikum á und-
anförnum áratug.
Það er eðlilegt að uppi séu marg-
víslegar skoðanir á því hvort end-
urskipuleggja þurfi námstímann eða
ekki. Það þarf hins vegar sterk rök
fyrir því ef íslenskir nemendur eiga
áfram að þurfa tæplega 3.000 fleiri
kennslustundir til stúdentsprófs en
nemendur annars staðar á Norð-
urlöndunum. Jafnvel eftir að breytt
námsskipan hefur tekið gildi verða
kennslustundir á Íslandi fleiri en víð-
ast hvar á Norðurlöndunum. Flestir
virðast sammála um að end-
urskipulagningu þurfi í mennta-
kerfinu til að nýta tíma nemenda bet-
ur. Það eru fyrst og fremst tvö
sjónarmið sem heyrast í því sam-
bandi.
Í fyrsta lagi eru þeir sem segja
kerfið nægilega sveigjanlegt í dag og
að það geti haldið áfram að þróast af
sjálfu sér.
Því miður er veruleikinn ekki svo
einfaldur. Til að skólakerfi sé sveigj-
anlegt þarf að vera fyrir
hendi einhvers konar
rammi sem í þessu tilfelli
eru aðalnámskrá grunn-
skóla og aðalnámskrá
framhaldsskóla og verð-
ur sá rammi að hafa
reglugerðarígildi.
Til þess að kerfið geti
haldið áfram að þróast
þarf einmitt að leggjast í
vinnu við að endurskoða
námskrár beggja skóla-
stiga, skoða hvar sveigj-
anleiki er fyrir hendi,
hvernig námskrár ólíkra
skólastiga spila saman
og hvar tími nemenda gæti nýst bet-
ur. Allar þessar breytingar krefjast
aðkomu skólafólks, fagkennara og
námskrárdeildar menntamálaráðu-
neytisins.
Í öðru lagi hafa þau rök heyrst að
skynsamlegra sé að stytta grunnskól-
ann um eitt ár en að stytta framhalds-
skólann enda sé það í grunnskólanum
sem kennslustundum hefur fjölgað til
muna á síðustu árum. Slíkar hug-
myndir hafa verið kannaðar og rædd-
ar ítarlega með fagfólki á und-
anförnum árum og flestir þeir sem
hafa skoðað málið til hlítar eru sam-
mála um að ekki komi til greina að
minnka lögbundið nám um eitt ár,
fækka árum nemenda í vernduðu um-
hverfi grunnskólans og krefja nem-
endur fyrr um val á sérnámi á fram-
haldsskólastigi en nú er. Með
styttingu grunnskólans væri verið að
stytta skólaskyldu á Íslandi um heilt
ár. Er það markmið sem menn vilja
stefna að?
Tillögur menntamálaráðherra um
breytta námsskipan til stúdentsprófs
byggjast á faglegum sjónarmiðum,
umfangsmiklu samráði við hags-
munaaðila og ítarlegri reynslu ráðu-
neytis menntamála af málefnum
framhaldsskóla. Í þeim breytingum
sem áformaðar eru felst að færðar
verða til grunnskóla 12 einingar af
kjarnanámsefni framhaldsskóla og að
námsár framhaldsskólans lengist um
eina viku. Tveir áfangar færast úr
kjörsviði námskrárinnar og verður
því í valdi nemenda hvort þeir verði
teknir sem val eður ei. Engin „skerð-
ing“ á námi á sér stað og yfirlýsingar
um annað byggjast ekki á stað-
reyndum. Haft er að leiðarljósi að
ekki megi draga úr þeim sveigj-
anleika sem nú einkennir framhalds-
skólanámið.
Áfram verður gert ráð fyrir sömu
hlutföllum á milli kjarna, kjörsviðs og
vals og eru í núverandi kerfi. Allar
brautir framhaldsskólans verða skoð-
aðar í samhengi við breyttan starfs-
tíma, bóknámsbrautir, listnáms-
brautir, iðn- og starfsnámsbrautir,
almenna braut og sérnámsbrautir.
Við alla framkvæmd við breytta
námsskipan liggja fagleg sjónarmið
til grundvallar og samráð hefur verið
haft við fagaðila á öllum stigum.
3.000 stundir
umfram aðra?
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
fjallar um styttingu náms til
stúdentsprófs
’Engin „skerðing“ ánámi á sér stað.‘
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
Höfundur er ráðgjafi
menntamálaráðherra.
NÚ GERA menn hróp að
Ingibjörgu Sólrúnu vegna þess
að kjósendum Samfylkingarinn-
ar fækkar dag frá degi. En er
það henni að kenna? Ég held
ekki. Það er miklu líklegra að
um sé að kenna síhækkandi
menntunarstigi þjóðarinnar.
Skólakerfið er alltaf að eflast,
grunnskólar og framhaldsskólar
taka upp nýjar og betri kennslu-
aðferðir, háskólar þjóta upp eins
og gorkúlur á síðsumri, fjöldi
manna sækir námskeið um allt
milli himins og jarðar. Allir sem
vettlingi geta valdið keppast við
að öðlast nýja þekkingu, færni
og víðsýni. Fyrirtæki styrkjast
og leggja land undir fót.
En þessi þróun er ekki góð
fyrir Samfylkinguna. Eftir því
sem fólk verður fróðara á það
auðveldara með að sjá í gegnum
lýðskrum og blekkingar. Fyrr á
dögum voru hér flugmælskir
kommúnistar á borð við Einar
Olgeirsson, Brynjólf Bjarnason
og Magnús Kjartansson. Þessir
menn fóru á fundi og hrifu nær-
stadda með mælskunni. Það var
ekki viskunni fyrir að fara hjá
þessum mælskusnillingum, mál-
flutningur þeirra var sama yf-
irborðslega, ofstækisfulla þvæl-
an og hvarvetna í heiminum, þar
sem kommar voru og hétu, en
þeir heilluðu fjöldann með
leiftrandi ræðusnilld sem enn er
höfð í minnum.
Ingibjörg reyndi að marka
sér sess með málflutningi sem
hefði örugglega dugað henni vel
fyrir fimmtíu árum en vekur
núna aðeins góðlátlega fyrirlitn-
ingu. Borgarnesræðurnar voru
skrum, samráðsstjórnmálin
(urðu síðar samræðustjórnmál)
voru skrum, varnartilburðir
hennar fyrir Baugsveldið voru
aumkunarverðir, daður hennar
við sægreifana var pólitísk
sjálfsvígstilraun.
Ingibjörg hefði heillað marga
fyrir hálfri öld, en nú er hún
bara vitlaus kona á vitlausum
stað og vitlausum tíma. Hún
hefur í hreinskilni sagt ekki
burði til þess að vera stjórn-
málaforingi á Íslandi á 21. öld.
Sívaxandi menntun fólksins ger-
ir það að verkum, að þeir
stjórnmálamenn sem treysta á
skrumið verða að sætta sig við
minnkandi fylgi. Þess vegna
hrapar Samfylkingin en Vinstri
grænir vaxa dagvöxtum, eins
geðslegir og þeir nú eru. Ég
spái því að Vinstri grænir verði
næststærsti flokkur landsins
eftir næstu kosningar.
Baldur Hermannsson
Ingibjörg
Sólrún – Ræðusnilld
á röngum tíma
Höfundur er eðlisfræðingur.