Morgunblaðið - 03.12.2005, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 51
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Á UNDANFÖRNUM árum hefur
öðru hvoru blossað upp hér á landi
umræðan um hvort Ísland ætti,
sem allra fyrst, að hefja undirbún-
ing að inngöngu í ESB. Þáverandi
forsætisráðherra, Davíð Oddsson,
lýsti því strax yfir að það mál væri
ekki til umræðu á yfirstandandi
kjörtímabili. Það fannst mér góð og
mjög þörf yfirlýsing. Og ég tel Dav-
íð Oddsson mann
að meiri að gefa
strax út svo ein-
dregna yfirlýs-
ingu um þetta
mál. Og ég vænti
þess að allir
sannir sjálfstæð-
ismenn styðji
formann sinn í
þessu stóra máli,
þá fyrst stæði
Sjálfstæðisflokkurinn undir nafni
sínu, og þá hygg ég að hann mundi
auka fylgi sitt í næstu alþingiskosn-
ingum. Síðan Davíð gaf út þessa yf-
irlýsingu hafa alltaf öðru hvoru
komið fram tillögur um að Íslend-
ingar tækju upp könnunarviðræður
við ESB um hugsanlega inngöngu í
það. Annar stærsti flokkur lands-
ins, Samfylkingin, og einkum al-
þingismenn hennar hafa skrifað
fjölda greina í dagblöðin til að
hvetja landsmenn til að sækja sem
fyrst um áðurnefndar könn-
unarviðræður. Og ekki má gleyma
formanni Framsóknarflokksins, því
að hann hefur verið iðinn við að tala
og skrifa um könnunarviðræður við
ESB. Mér finnst hann helst eiga
samleið með Samfylkingunni.
Ég gekk ungur í Framsókn-
arflokkinn en hann hefur á síðustu
30 árum verið að þokast meira og
meira til hægri. Nú síðustu árin
hefur þó keyrt um þverbak. Nú er
hann orðinn hægrisinnaður mið-
flokkur.
Þegar hann studdi inngöngu í
EES þá gekk ég úr flokknum. Ég
tel að þá hafi allir þingmenn, sem
greiddu því atkvæði, selt stóran
hluta af sjálfstæði og fullveldi Ís-
lands.
Formaður Framsóknarflokksins
var alltof lengi búinn að vera utan-
ríkisráðherra og ég held að koll-
egum hans í Evrópu hafi tekist að
heilaþvo hann á síðustu árum.
A.m.k. finnst mér að hann sé á
hreyfingu til hægri síðustu árin. Ég
vil þó taka það fram að ég tel Hall-
dór vel gefinn og mætan mann, en
ég held að hann ætti að fara að
hugleiða það að hætta í pólitík þeg-
ar þessu kjörtímabili lýkur.
Gaman væri að fá upplýst hvað
marga fasta starfsmenn Íslend-
ingar hafa í Brüssel og annars stað-
ar í Evrópu á vegum EES og ES,
og hvað það allt saman kostar þjóð-
ina á hverju ári.
Þeir ágætu menn, sem á síðustu
tveimur öldum voru mest búnir að
berjast fyrir fullu sjálfstæði og full-
veldi Íslands, eftir nærri sjö alda
einokun erlendra ríkja, mundu ekki
trúa því, að hér væri til fólk sem
beitti sér af öllu afli fyrir því að
landið og þjóðin framseldi sjálf-
stæði sitt í hendur gömlu nýlendu-
veldanna í Evrópu, sem voru um
margar aldir þekkt fyrir einokun og
kúgun á fjölda ríkja, bæði í Evrópu
og í fleiri heimsálfum.
Nú eru stórveldin í Evrópu búin
að ná með samningum því sem þau
ætluðu áður að ná með tveimur
heimsstyrjöldum. Ég teldi það
hrein landráð, ef íslenskum stjórn-
málamönnum tækist í byrjun 21.
aldar að framselja fullveldi lands-
ins. Því hefur verið haldið fram
ESB til málsbóta, að þetta þjóða-
bandalag sé fyrst og fremst til að
styrkja fátækari þjóðir Evrópu. En
nú á síðustu áratugum er op-
inberlega talað um að Ísland sé eitt
af 10 ríkustu löndum heimsins, mið-
að við mannfjölda. Nýlega las ég
grein í Morgunblaðinu eftir Hannes
Jónsson, fv. sendiherra. Það voru
sannarlega orð í tíma töluð. Land-
ráðalýðurinn hefði gott af að lesa
þá grein og fleiri greinar í þeim
dúr. Þá kannski skildi það fólk
hversu mikið efnahagslegt tjón Ís-
lendingar taka á sig, ef þeir gengju
í ESB.
Ég tel að við ættum að ganga
sem allra fyrst úr EES-samtök-
unum og losa okkur á þann hátt við
öll þau lög og reglugerðir sem þessi
samtök hafa lagt á þjóðina.
SIGURÐUR LÁRUSSON,
Egilsstöðum.
Sjálfstæðið og fullveldið –
Mesta auðlind Íslands
Frá Sigurði Lárussyni:
Sigurður Lárusson
GLEÐILEG
TÓNLISTARJÓL!
Mest seldu plöturnar á Íslandi í dag!
Björgvin Halldórsson
Guðrún og Friðrik
Nylon
Garðar Thor Cortes
Írafár
Helgi Björns
Sálin hans Jóns míns
1
2
6
8
9
11
4
góða skemmtun
um jólin