Morgunblaðið - 03.12.2005, Síða 76
auðvelt fyrir hvern þann
sem hittir stjörnu að
smella af og senda í blöð.
Líka er mikið í tísku að
láta taka myndir af sér
með þekktu fólki, nokkurs
konar eiginhandaráritun
21. aldarinnar.
Blöð eins og Star og In
Touch „þrífast á pap-
arazzi-myndum og
kannski einhverjum mynd-
um af rauða dreglinum“,
sagði Andrew Gunn, fram-
leiðandi mynda á borð við
Freaky Friday og Sky
High, í samtali við NYT.
„Ef þú þarft ekki að vinna
með blaðafulltrúa sem ten-
gil þarftu ekki að hafa
áhyggjur af því hvað hon-
um finnst. Eftir því sem
blaðafulltrúarnir missa
tökin hjá blöðunum, því
erfiðara verður fyrir þá að
stjórna því hvað skjólstæðingurinn
gerir.“
Cruise er ekki sá eini sem hefurfengið að kenna á því hjá blöð-
unum. Upp komast svik um síðir
eins og Jude Law fékk að kynnast
en hann var tekinn í gegn fyrir að
hafa haldið framhjá Siennu Miller
með barnapíunni. Endaði það með
því að hann þurfti að biðjast op-
inberlega afsökunar á hegðun
sinni.
Það er ekki góð stefna fyrir
blaðafulltrúa að ljúga því erfitt er
að stjórna upplýsingaflæðinu og
sannleikurinn ratar út að lokum.
Gott dæmi um það er barneignir
leikkvenna eins og einn þekktur
blaðafulltrúi minnnist á í áð-
urnefndri grein: „Ef skjólstæðingur
þinn er óléttur og vill ekki að neinn
viti það, þá geturðu ekki neitað því.
Níu mánuðum seinna kemur barn í
heiminn.“
Flestir láta sig ímynd ein-hverju varða og er ekkisama hvernig aðrir líta á
þá. Ímynd skiptir þó líklega enga
eins miklu máli og fræga fólkið,
ekki síst í Hollywood.
Allar fréttir eru góðar fréttir er
oft sagt. Getur það átt við í sumum
tilfellum en Tom Cruise er líklega
ekki sammála því. Á síðastliðnu ári
hafa blöð haldið því fram að sam-
band hans og Katie Holmes sé aug-
lýsingabrella, sprautað var vatni
framan í hann á frumsýningu og
búið er að gera gys að vísindatrú
hans. Ímynd hans er farin út um
víðan völl og fólki finnst hann
hreint og beint hlægilegur. Til að
bregðast við þessu er hann búinn að
losa sig við blaðafulltrúa sinn, syst-
ur sína Lee Anne DeVetta, eftir
minna en tvö ár í starfi og réð van-
an mann í staðinn. Paul Bloch hefur
40 ára reynslu í faginu og kann bet-
ur en margir að halda einkalífi
stjarna sinna fyrir utan kastljós
fjölmiðla þegar þess þarf.
Cruise var þekktur fyrir að geta
stjórnað sviðsljósinu, fá mikla
kynningu án þess að hún færi úr
böndum. Hann var hins vegar orð-
inn stjórnlaus (sófahoppið hjá
Opruh eitt dæmi) og fór athyglin af
myndinni sem hann var að kynna,
War of the Worlds, á hann. Það
þykir mikil synd í Hollywood.
Viðtekið er að „stórum“ fréttum
um stjörnurnar er lekið út á sama
tíma og ný mynd þeirra er frum-
sýnd en kvikmyndafyrirtækin eru
ekki ánægð ef leikararnir fá meiri
athygli en myndin.
Spurningin er hvort Bloch tekst
að hafa heimil á Cruise og umfjöll-
un um hann. Þótt hann sé vanur
maður hefur heimur fræga fólksins
breyst. Í grein New York Times er
því haldið fram að blaðafulltrúar
eigi sífellt erfiðara með að stjórna
bæði skjólstæðingum sínum og
blöðunum. Slúðurblöðin hafa svo
miklu fleiri leiðir til að nálgast
fréttir um kvikmyndaleikara en í
gegnum blaðafulltrúann. Umfjöll-
unin er orðin ágengari, ljósmynd-
arar fylgja stjörnunum hvert fót-
mál, farið er í gegnum ruslið þeirra
og húshjálpinni mútað. Bellibrögð-
um er beitt og er þetta ekki endi-
lega heiðarlegur heimur.
Núna er annar hver maður kom-
inn með myndavélasíma svo það er
Hvernig lít ég út?
’Umfjöllunin er orðinágengari, ljósmyndarar
fylgja stjörnunum hvert
fótmál, farið er í gegn-
um ruslið þeirra og hús-
hjálpinni mútað.‘
AF LISTUM
Inga Rún Sigurðardóttir
Tom Cruise umkringdur aðdáendum í Kína
en þar er verið að taka upp myndina Mission
Impossible III. Sumir fylgjast með honum
með myndbandsupptökuvél og farsíma og
getur Cruise engan veginn stjórnað því hvar
þær myndir enda.
ingarun@mbl.is
Reuters
76 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sími 562 2600
SVÖR
N
æ
st
LÍKAMI/HUGUR/ANDI
• Hvernig veistu hvort þú ert dáinn?
• Hvernig er ferðin yfir í næsta heim?
• Get ég haft samband við ástvini á jörðinni?
• Eru verndarenglar til?
• Hvað gerist þegar einhver verður bráðkvaddur?
• Get ég beitt viljastyrk mínum til að snúa aftur?
VIÐ SPURNINGUM UM LÍF OG DAUÐA
Íslandsvinurinn CRAIG HAMILTON-PARKER er frægur
miðill sem hefur gert efahyggjumenn orðlausa
með nákvæmum lýsingum sínum. Hann hefur
skrifað margar bækur, þar á meðal metsölu-
bókina „Draumar, að muna þá og skilja“.
FYRRIPARTUR þáttarins Orð
skulu standa að þessu sinni er á
þessa leið:
Á aðventunni óskum þess
að allir verði prúðir.
Þátturinn er á dagskrá Rásar 1
klukkan 16.10. Gestir dagsins eru
Þórhallur Gunnarsson og Þórunn
Hrefna Sigurjónsdóttir.
Hlustendur geta sent inn til þátt-
arins sína eigin botna í netfangið
ord@ruv.is eða til Orð skulu
standa,
Ríkisútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.
Fyrripartur síðustu viku var:
Mónakó er lítið land
og langt í burtu að auki.
Hlín Agnarsdóttir botnaði m.a. í
þættinum:
Þar ég vildi verða strand
með vænan sjóð í bauki.
og:
Seðla Albert eins og sand
á í sparibauki.
Ásdís Káradóttir:
Teygist Ólafs tryggðarband
ég trúi samt hann þrauki.
Davíð Þór Jónsson sneri öllu á
haus að vanda og breytti fyrriparti
í botn:
Hvílíkt ógnaruppistand
á einum fréttahauki.
Mónakó er lítið land
og langt í burtu að auki.
Dofri Hermannsson:
Íslenskt vina bundið band
er Berta ættarlauki.
Valdimar Lárusson:
Treystum okkar bræðraband
best með ættarlauki.
Ort um aðventuna
Útvarp | Orð skulu standa á Rás 1
HIN magnaða einmenningssveit
Bob Log III er komin hingað til
lands og spilar á Grandrokki í
kvöld.
Bob Log III kemur frá borginni
Tucson í Arisonaríki í Bandaríkj-
unum og lét fyrst að sér kveða í
óhljóðasveitinni Modo Guano og síð-
ar í tvímenningsbandinu Doo Rags.
Bob á að baki þrjár plötur, School
Bus (1998) og Trike (1999) undir
merkjum Epitaph-útgáfunnar og nú
síðast plötuna Log Bomb (2002)
sem Fat Possum gaf út.
Tónleikar Bob Log III þykja
mikil upplifun en á þeim leikur
hann með mótorhjólahjálm á höfði á
meðan aðrir limir djöflast eins og
skrattinn sjálfur við gítar- og
trommuleik. Einhverjir hafa lýst
tónlist Bobs sem einhvers konar
delta-blússkotnu og viskí-lögðu
„psychobilly“ en sjón og heyrn eru
sögu ríkari.
Áður en Bob stígur á svið spilar
pönksveitin landskunna Rass fyrir
gesti Grandrokks.
Það eru Dead og Sheptone sem
standa fyrir komu Bob Log III til
landsins.
Tónlist | Bob Log III á Grandrokki
Eins og skrattinn sjálfur
Miðaverð er 1.200 krónur og for-
sala er hafin í 12 tónum.