Morgunblaðið - 03.12.2005, Page 81
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 81
Heppnir fá þá eitthvað fallegt...
ÁRIÐ 1994 var MAC-alnæmissjóðurinn stofnaður í
Bandaríkjunum með það að leiðarljósi að styðja alnæm-
issmitaða um heim allan. MAC-snyrtivörur eru seldar
víða um heim og eftir að sjóðurinn var stofnaður rennur
allur ágóði af sölu MAC VIVA GLAM-varalita fyrirtæk-
isins í alnæmissjóðinn.
Sjóðnum hefur vaxið ásmegin á undanförnum áratug
og hefur fjöldi heimsþekktra einstaklinga lagt málefninu
lið. Frá stofnun hafa safnast rúmir þrír milljarðar ís-
lenskra króna og til stendur að bæta enn í sjóðinn í dag
og kvöld hér á landi.
Í tilefni alþjóðlega alnæmisdagsins hinn 1. desember
ár hvert munu þjóðþekktir einstaklingar koma saman í
Debenhams í Smáralindinni í dag klukkan 13 og selja
rauða slaufu alnæmissamtakanna og VIVA GLAM-
varaliti auk þess að taka við frjálsum framlögum í sjóð-
inn.
Í kvöld fer svo fram styrktarkvöldverður á Café
Oliver. Miðaverð fyrir fimm rétta matseðil ásamt létt-
víni, kaffi og koníaki er 25 þúsund krónur og rennur allur
ágóðinn til forvarnarstarfs Alnæmissamtakanna. Logi
Bergmann Eiðsson verður veislustjóri en auk hans kem-
ur fram fjöldi landskunnra skemmtikrafta. Kvöldverð-
urinn stendur yfir til klukkan 23 en þá tekur við gleð-
skapur fram á rauða nótt.
Miðapantanir og nánari upplýsingar er að finna á vef-
síðu Café Oliver.
Söfnun | Styrktarkvöldverður á Café Oliver
Snætt til
styrktar
Alnæmis-
samtökunum
Pamela Anderson er næsta talskona og nýjasta andlit
MAC-alnæmissjóðsins.
cafeoliver.is
Beikonvafin skógardúfa ballontine, fyllt með villisveppum á rauðrófu-
þynnum og kryddjurtasalati.
Humarseyði ásamt parmesankexi.
Saltfiskur með kóríander-brandat, ruccola-salati og balsam-
vinaigrette.
Mjólkurkálfur með jarðsveppahjúp, hvítlaukskartöflu í terrine ásamt
dverggrænmeti (gulrætur, aspas og strengjabaunir).
Volg súkkulaðikaka með pistasíuís, súkkulaðisósu og hindberja-coulie.
Matseðill
KRINGLANÁLFABAKKI
Er frábær staður til að uppgötva sjálfan sig upp á nýtt.
eeee
V.J.V. Topp5.is
eee
H.J. Mbl.
Með Óskarsverðlaunahafanum og hinum
skothelda Nicolas Cage. Heimur vopnasala
hefur aldrei verið eins flókinn.
eeee
S.V. MBL
Frá höfundi Buffy the Vampire Slayer.
Ótrúlegar brellur og svöl átakaatriði.
Þau eru góðu vondu gæjarnir.
eee
H.J. Mbl.
eeee
V.J.V. topp5.is
Þar sem er vilji, eru vopn.
Jólalegasta jólamynd ársins er komin með Óskarsverðlauna-
hafanum, Susan Sarandon, blómarósinni Penelope Cruz ásamt
frábærum leynileikara sem á eftir að koma öllum á óvart.
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN
kl. 1 - 1.50 - 4.10 - 5 - 7.20 - 8.10 - 10.30 - 11.20 B.i. 10 ára.
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN VIP kl. 1.50 - 5 - 8.10 - 11.20
GREENSTREET HOOLIGANS kl. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.30 B.i. 16 ára.
LORD OF WAR kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára.
Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 2 - 4 - 6
CHICKEN LITTLE M/ensku.tali. kl. 4
TIM BURTON´S CORPSE BRIDE kl. 6
ELIZABETH TOWN kl. 8
TWO FOR THE MONEY kl. 10.30 B.i. 12 ára.
WALLACE AND GROMIT M/- Ísl tal. kl. 2
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára.
NOEL kl. 5.50 - 8 - 10.10
SERENITY kl. 11.05 B.i. 16 ára.
Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 12 - 2 - 4
WALLACE AND GROMIT M/- Ísl tal. kl. 12
a
Jólamyndin
í ár
MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI