Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Tækni- og gæðadeild
Óskum eftir að ráða starfsmann á rannsóknar-
stofu BM Vallá, Suðurhrauni, Garðabæ. Starfið
felst í daglegu eftirliti með framleiðslu fyrirtæk-
isins, svo sem mælingum á rannsóknarstofu
og í verksmiðju. Æskilegt er að umsækjendur
hafi lágmarks tölvuþekkingu, séu samvisku-
samir og skipulagðir. Þekking á steypu eða
rannsóknarstörfum ekki nauðsynleg.
Áhugasamir hafi samband við Jón Ólafsson
(jon.olafsson@bmvalla.is eða 565 1444).
Bíldshöfða 7
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Tillaga að breytingu á svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins 2001-2024
Þétting íbúðarbyggðar á miðborgarsvæði Reykjavíkur
Borgarstjórn Reykjavíkur auglýsir skv. 2. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997
m.s.br. tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024. Gerð er tillaga um
að heildaríbúðafjöldi árið 2024 á byggðasvæðum nr. 2-4 (Nesið norðan Miklubrautar og vestan
Kringlumýrabrautar), verði aukinn úr 10.700 íbúðum í 12.000 íbúðir. Hér er um að ræða 12%
viðbótaraukningu á fjölda íbúða á umræddu svæði. Telji einstakir aðilar sig verða fyrir tjóni samfara
þessari breytingu munu borgaryfirvöld Reykjavíkur taka að sér að bæta það tjón.
Tillagan hefur verið send sveitstjórnum á höfuðborgarsvæðinu til kynningar. Tillagan verður send
Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna geta snúið sér til skrifstofu skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar, Borgartúni 3.
Sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgarr
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar
um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á
umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat
á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b.
Rannsóknir á niðurrennslissvæði Hellis-
heiðarvirkjunar, Sveitarfélaginu Ölfusi.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun-
ar: www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 13. janú-
ar 2006.
Skipulagsstofnun.
Auglýsing um tillögu að aðalskipulagi
Álftaness 2005-2024
Sveitarstjórn Álftaness hefur tekið aðalskipulag
Álftaness til fyrri umræðu sbr. 2. mgr. 17. gr.
Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Sveitarstjórn Álftaness hefur samþykkt að aug-
lýsa, samkvæmt 18. gr. Skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum, til-
lögu að aðalskipulagi Álftaness 2005-2024. Til-
lagan samanstendur af greinargerð og upp-
drætti í mælikvarðanum 1:10.000. Aðalskipu-
lagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitar-
félagsins Álftaness, Bjarnastöðum, 225 Álfta-
nesi, frá og með 16. des. 2005 til 12. jan.
2006. Ennfremur er tillagan til sýnis á heima-
síðu sveitarfélagsins, www.alftanes.is, og hjá
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
er hér með gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við skipulagstillöguna. Frestur til að
skila inn athugasemdum er til og með 27.
janúar 2006. Athugasemdir skulu vera skrif-
legar og þeim skilað til skrifstofu Sveitarfélags-
ins Álftaness, Bjarnastöðum. Hver sá sem eigi
gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn
frest telst samþykkja hana.
Auglýsing um tillögu að deiliskipulagi
Norðurness á Álftanesi
Sveitastjórn Álftaness hefur samþykkt að aug-
lýsa, samkvæmt 25. gr. Skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum, til-
lögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.
Í deiliskipulagstillögunni er m.a. gert ráð fyrir
nýjum íbúðarsvæðum, golfvallarsvæði, hest-
húsasvæði, smábátahöfn, þjónustusvæði og
athafnasvæði. Deiliskipulagið er lagt fram á
uppdrætti og í greinargerð. Uppdrátturinn er
í mælikvarðanum 1:2500.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á skrif-
stofu Sveitarfélagsins Álftaness, Bjarnastöð-
um, 225 Álftanesi og á heimasíðu sveitarfélags-
ins, www.alftanes.is, frá og með 16. des.
2005 til 12. jan. 2006.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
er hér með gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við deiliskipulagstillöguna. Frestur til
að skila inn athugasemdum er til 27. janúar
2006. Athugasemdir skulu vera skriflegar og
þeim skilað til skrifstofu Álftaness, Bjarnastöð-
um. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við
tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkja
hana.
Deiliskipulagstillagan er byggð á tillögu að að-
alskipulagi Álftaness 2005-2024 sem auglýst
er samhliða. Hægt er að nálgast upplýsingar
um aðalskipulagið á skrifstofu Sveitarfélagsins
Álftaness og á heimasíðu þess.
Auglýsing um breytingu á svæðisskipu-
lagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024
Sveitarstjórn Álftaness auglýsir hér með, skv.
2. mgr. 14. gr. Skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 með síðari breytingum, tillögu að
breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgar-
svæðisins 2001-2024. Gerð er tillaga um að
árið 2024 verði fjöldi íbúða í sveitarfélaginu
1.080 talsins árið 2024, í stað 850 eins og kem-
ur fram í núgildandi svæðisskipulagi. Sveitar-
stjórn bætir það tjón sem einstakir aðilar kunna
að verða fyrir við breytinguna.
Tillagan hefur verið send sveitarstjórnum á
höfuðborgarsvæðinu til kynningar. Tillagan
verður send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu
til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu. Þeir
sem óska nánari upplýsinga um tillöguna geta
snúið sér til skrifstofu sveitarfélagsins Álfta-
ness, Bjarnastöðum, 225 Áfltanesi.
Samhliða auglýsingu á breytingu á svæðis-
skipulagi höfuðborgarsvæðisins er auglýst
aðalskipulag Álftaness 2005-2024.
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum,
er hér með auglýst til kynningar tillaga að breyt-
ingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001 - 2024.
Mýrargötusvæði.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
Þéttingarsvæði nr. 4 er endurskilgreint og
verður nú gert ráð fyrir 700 íbúðum á svæðinu
(þar af allt að 200 hjúkrunaríbúðum), í stað
200 íbúða áður. Þéttingarsvæði nr. 4 markast
af Ánanaustum og Grandagarði í vestri,
Ægisgarði til norðurs, Verbúðarbryggjum og
Hafnarbúðum að austan og að sunnanverðu
af Mýrargötu, Ægisgötu, lóðamörkum milli
Nýlendugötu og Vesturgötu, Seljavegi og
Vesturgötu að Ánanaustum, sbr. afmörkun
rammaskipulags Mýrargötu-Slippasvæðis.
Gert er ráð fyrir færslu Mýrargötu sem
stofnbrautar til norðurs inná núverandi
Slippasvæði. Stofnbrautin verður lögð í stokk
og er gert ráð fyrir gangamunnum, annars-
vegar skammt vestan Seljavegar og hins-
vegar austan Ægisgötu. Stofnstígur sem
samkvæmt aðalskipulagi liggur með Mýrar-
götu að norðanverðu, mun áfram liggja með-
fram núverandi götu. Umhverfisáhrif gatna-
framkvæmdanna verða metin samkvæmt
lögum nr. 106/2005 m.s.br. Ofangreindar
breytingar ná til skipulagsuppdráttar og 5.
myndar í staðfestri greinargerð (1. mynd í
netútgáfu), samanber myndir á uppdrætti.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3,
1. hæð, virka daga kl. 08:20 – 16:15, frá 16.
desember 2005 til og með 27. janúar 2006.
Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins,
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við
hana skal skila skriflega eða á netfangið
skipulag@rvk.is, til skipulagsfulltrúa, merkt
viðkomandi svæði og undirritað skilmerki-
lega, eigi síðar en 27. janúar 2006.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 16. desember 2005
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur