Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.01.2003, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 16.01.2003, Qupperneq 17
17FIMMTUDAGUR 16. janúar 2003 Létt & laggott er viðbit með litlu fituinnihaldi og bragðast líkt og smjör. Nú á 20% afslætti í næstu verslun. N O N N I O G M A N N I • 5 1 3 2 / sia .is Ráðningar fjögurra stjórnenda hjá RÚV: Kostuðu tæpar tvær milljónir RÁÐNINGAR „Það getur kostað fé að fá gott starfsfólk í mikilvægar stöð- ur en að það kosti upp undir tvær milljónir króna að ráða innanhúss- menn í þessar fjórar stöður er væg- ast sagt sérkennilegt, sérstaklega vegna þess að stöðuveitingarnar á Sjónvarpinu hafa verið opinbert leyndarmál í nokkur misseri,“ segir Mörður Árnason, fulltrúi í útvarps- ráði, og vísar til þess að fyrifram hafi verið ákveðið hverjir yrðu ráðnir í umræddar stöður. Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri lagði í gær fram tölur um kostnað við ráðningu þriggja stjórn- enda hjá Útvarpi og Sjónvarpi. Um er að ræða stöður dag- skrárstjóra Rásar 1 og Rásar 2 og fréttastjóra Sjónvarpsins. Mannafl annaðist auglýsingar, tók við umsóknum og gris- jaði og lagði loks fram lista fyrir útvarpsráð með umsögnum. Samtals hljóðaði reikningur Mannafls upp á tæpar 900 þúsund krónur án virðisaukaskatts en hann fær RÚV endur- greiddan. Þar af kostaði ráðning fréttastjóra Sjónvarpsins tæpar 400 þúsund krónur án virðis- aukaskatts. Áður hafði útvarps- stjóri upplýst að RÚV hefði greitt 845 þúsund krónur vegna ráðningar yfirmanns fréttasviðs RÚV. Í heild hafa ráðningar í þessar fjórar stöður því kostað tæpar 1.800 þús- und krónur. „Ég tel að við í út- varpsráði þurfum að ræða betur um aðferðir við ráðningar og kostnað við þær. Ríkisútvarpið er ennþá í fjárhagslegri spennitreyju og það er ábyrgðarhluti að hella næstum tveimur miljónum króna í leikrit af þessu tagi,“ sagði Mörður Árnason. ■ VIÐSKIPTI Áhugi fjárfesta á bréfum DeCode hefur vaxið að undan- förnu eftir að fjármálafyrirtækið JP Morgan hækkaði mat sitt á fyr- irtækinu. Bréf félagsins hækkuðu úr tveimur dollurum á hlut í tæpa þrjá. Þá hefur umfang viðskipta með bréfin á Nasdaq-markaðnum verið margfalt meira en venjulegt er. Bragi Smith, verðbréfasér- fræðingur hjá Búnaðarbankanum, segir hækkun bréfanna hafa vak- ið athygli. „Bréfin hækkuðu þegar markaður var að lækka. Þau vöktu því athygli og fengu um- fjöllun sérfræðinga, meðal annars á CNBC-sjónvarpsstöðinni.“ Bragi segir að aukning viðskipta með bréfin sýni að þeim sé sýnd- ur áhugi á markaðnum. Hann von- ar að þessi aukni áhugi geti orðið til þess að stærri fjárfestar, svo sem sjóðir, fari að sýna bréfunum áhuga. JP Morgan telur að markgengi bréfa DeCode sé á bilinu 4-5 doll- arar á hlut á næsta ári. Vonir standa til þess að rannsóknir fyr- irtækisins skili á næstunni tveim- ur uppgötvunum inn á annað stig í lyfjaþróunarferlinu. Lyfjaþróun er skipt í þrjú stig og hver áfangi í þeirri leið skiptir miklu fyrir endanlega útkomu. Ströng skil- yrði eru fyrir því að lyf komist í gegnum hvern áfanga lyfjaþróun- arinnar. Bragi segir JP Morgan meta það svo að ef DeCode nái að landa tveimur nýjum samningum muni það hafa jákvæð áhrif á gengið. Takist það ekki sé gengi DeCode það lágt að það muni ekki hafa veruleg áhrif. „Þeir meta það svo að hækkunarmöguleikar bréfanna séu meiri en áhættan af því að þau lækki,“ segir Bragi. Gengi bréfa DeCode náði há- marki á föstudag en hefur sigið síðan. Bragi segir líftæknina hafa átt undir högg að sækja að undan- förnu eins og alla nýsköpun. Þar við bætist að fjárfestar horfi fremur til árangurs en yfirlýsinga greiningarfyrirtækja. Mikilvægt sé því fyrir fyrirtækið að standa við áætlanir sínar og sýna fram á jákvætt sjóðstreymi undir lok ársins. haflidi@frettabladid.is NÝTT MAT Íslensk erfðargreining hefur mátt taka á honum stóra sínum að undanförnu. Aukin bjart- sýni er nú meðal fjárfesta á framtíð fyrirtækisins. Aukin bjartsýni með bréf DeCode JP Morgan jók tiltrú fjárfesta á DeCode með nýrri matskýrslu. Áhætta af lækkun bréfa talin mun minni en möguleikar á hækkun. MÖRÐUR ÁRNASON Segir kostnað við ráðn- ingar fjögurra yfirmanna sérkennilegan á sama tíma og RÚV sé í fjár- hagslegri spennitreyju. KOSTNAÐUR VEGNA RÁÐN- INGAR FJÖGURRA STJÓRN- ENDA HJÁ RÚV ÁN VSK. Mannafl * Dagskrárstjóri Rásar 1 237.600 kr. * Dagskrárstjóri Rásar 2 285.240 kr. * Fréttastjóri Sjónvarpsins 375.400 kr. Deloitte & Touche * Yfirmaður fréttastviðs RÚV 845.000 kr. Samtals 1.743.240 kr. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.