Fréttablaðið - 16.01.2003, Síða 20
Hleðsluborvélar
Margar gerðir hleðsluborvéla eru á mark-
aðnum í dag. Gríðarlegur munur er á gæðum
vélanna. Almenningur kaupir yfirleitt vélar á
verðbilinu 3-14 þúsund krónur en
iðnaðarmenn kaupa að jafnaði dýrari vélar, á
bilinu 12-45 þúsund krónur.
Munurinn á vélunum er fólginn í ýmsu, svo
sem mótor, patrónu, húsi, fjölda rafhlaða og
endingu þeirra, krafti og svo framvegis.
Það tekur fimm til sjö klukkustundir að hlaða
ódýrari vélarnar. Í dýrari vélunum er
hleðslutíminn yfirleitt klukkustund eða minna.
Endingartími rafhlaða er mældur í Ah
(amperhour) og því hærri sem talan er því
lengur endast þær. Hitachi hleðsluborvélarnar
eru 1,4 -2,0 Ah. Hitachi og fleiri framleiðendur
bjóða líka vélar með rafhlöðum sem eru
3,0 Ah Ni-MH en þær eru „umhverfisvænar“.
Almennt leggja söluaðilar ekki mikla áherslu
á þessa gerð rafhlaðna þar
sem gæði
þeirra eru enn mun lakari en venjulegar
rafhlöður.
Gott er að athuga hvort tvær rafhlöður
fylgi vélunum. Aukarafhlaða getur
numið allt að helmingi af verði
vélarinnar.
Hleðsluborvélar eru til 9,6 til 24
volta. Það segir þó lítið til um kraft
þeirra. Kraftur hleðsluborvéla getur
verið afar mismunandi og er hann
mældur í Nm. Framleiðendur
vélanna nota tvær til þrjár mæliaðferðir á
Nm. Gullna reglan er þó að dýrari vélar eru
öflugri en þær ódýrari.
Hleðsluborvélar með stiglausum hraða gera
notanda kleift að stýra snúningshraða
þeirra. Sumar vélar eru ekki með
stiglausum hraða sem þýðir að þær fara á
fullan snúning um leið og þrýst er á
rofann.
en veljum vél sem hentar
2