Fréttablaðið - 16.01.2003, Blaðsíða 26
Töluvert tjón hjá
iðnaðarmönnum
Iðnaðarmenn verða fyrir töluverðu
tjóni á ári hverju vegna verkfæra-
missis. Þá er stolið allt frá léttum
verkfærum upp í stór rafmagns-
verkfæri.
„Það eru margir iðnaðarmenn sem
sjá ástæðu til að tryggja verkfæri sín í
húsnæði sem þeir eru að vinna í,
hvort sem það er fullbúið eða í byggingu,“ segir Sveinn
Segatta, forstöðumaður fyrirtækjaþjónustu hjá Sjóvá-
Almennum.
„Þetta er vandamál á nýbyggingasvæðum, sérstaklega þar
sem svæðið hefur ekki verið lokað af.“ Sveinn segir einyrkja
frekar verða fyrir barðinu á þjófum en stærri verktaka þar sem
þeir síðarnefndu loka byggingasvæðum frekar af. Sjóvá-
Almennar bjóða upp á svokallaða iðnaðarmannatryggingu.
Nokkur hundruð einyrkjar eru nú með slíka tryggingu. Iðgjald
iðnaðarmannatryggingar er um 8-10 þúsund krónur á ári fyrir
verkfæri sem metin eru á um eina milljón. Vátryggingavernd-
in er þó löguð að þörfum hvers og eins. Víðtæk eignatrygging
gildir hvar sem er í heiminum og er sjálfsábyrgð í hverju tjóni
26 þúsund krónur.
Sjóvá-Almennar hefur á síðustu mánuðum boðið iðnaðar-
mönnum upp á heildstæða vernd, þar sem tekið er tillit til
persónuverndar, sem jafnframt eru sniðin að þörfum
heimilisins. Iðnaðarmaður sem lendir í tjóni þar sem grunur
leikur á refsiverðu athæfi skal undantekningarlaust kalla til
lögreglu. Þegar uppvíst verður um tjón skal láta
tryggingarfélag vita um leið og gefa því tækifæri á að skoða
aðstæður. Iðnaðarmaður verður að senda tryggingarfélagi
skýrslu um tjónið. Tryggingarfélög ganga út frá því að þar
sem húsnæði í byggingu er ekki orðið fokhelt eða hefur ekki
verið lokað með fullnægjandi hætti þá séu iðnaðarmenn með
læsta vinnuskúra sem hægt er að geyma verkfærin í.
Tryggingafélögin eru ekki bótaskyld nema farið sé inn í
verkfærageymsluna með afbrigðilegum hætti og það séu
merki um það.
- sjálfsögð varúðarráðstöfun
8