Fréttablaðið - 16.01.2003, Page 32
20 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
TÓNLIST Breska hiphopsenan nýtur
greinilega mikilla vinsælda í heima-
landi sínu. Eins manns sveitin The
Streets og söngkonan Ms. Dynamite
fengu nefnilega flestar tilnefningar
til Brit-verðlaunanna í ár, fjórar
hvor. Það vekur einnig mikla athygli
að söluhæstu listamenn Breta,
Robbie Williams og Kylie Minogue,
eiga ekki velgengni að fagna í til-
nefningunum. Kylie fær enga, þrátt
fyrir að hafa smalað inn verðlaun-
um á síðustu hátíð, og Robbie aðeins
eina.
Poppgrúbban Sugababes, Will
Young, Gareth Gates, Pink og
djasssöngkonan Norah Jones eru
með þrjár tilnefningar hvert.
Hátíðin fer fram í Earls Court í
London 20. febrúar næstkomandi.
Fyrsta plata Mike Skinner (sem
mannar eins manns sveitina The
Streets), „Original Pirate Material“,
endaði í efsta sæti fjölda breskra
gagnrýnenda á ársuppgjörslistum
þeirra.
Í alþjóðlega geiranum keppast
Eminem, Norah Jones, Alicia Keys,
Pink og Red Hot Chili Peppers um
„alþjóðlega plötu ársins“. Söngvar-
inn Tom Jones, sem er fæddur og
uppalinn í Wales, fær sérstök verð-
laun fyrir framlag sitt til tónlistar í
gegnum árin. ■
MS. DYNAMITE
Brit-verðlaunin eru stærsta verðlaunahátíð breska tónlistariðnaðarins.
Tilnefningar til Brit-verðlaunanna 2003:
Ms. Dynamite og The
Streets með fernu
BRESKUR KARLTÓNLISTAR-
MAÐUR ÁRSINS
Badly Drawn Boy
Craig David
David Gray
The Streets
Robbie Williams
BRESKUR KVENTÓNLISTAR-
MAÐUR ÁRSINS
Sophie Ellis Bextor
Ms. Dynamite
Beverley Knight
Alison Moyet
Beth Orton
BRESK HLJÓMSVEIT ÁRSINS
Blue
Coldplay
Doves
Sugababes
Oasis
BRESKT LAG ÁRSINS
Atomic Kitten The Tide Is High (Get the Feeling)
Gareth Gates Anyone of Us (Stupid Mistake)
Gareth Gates Unchained Melody
Liberty X Just A Little
Will Young Anything Is Possible/Evergreen
BRESK PLATA ÁRSINS
Coldplay A Rush of Blood to the Head
Ms Dynamite A Little Deeper
The Coral The Coral
The Streets Original Pirate Material
Sugababes Angels with Dirty Faces
TÓNLIST Bono og The
Edge úr hljómsveit-
inni U2 vöktu mikla
lukku á dögunum þeg-
ar þeir fluttu lagið
„The Hands that Built
America“ órafmagnað
í veislu sem haldin var
eftir frumsýningu
k v i k m y n d a r i n n a r
„Gangs of New York“ í Dublin á
Írlandi.
Lagið er að finna í
myndinni, sem leik-
stýrt er af Martin
Scorsese.
Þess má geta að 8.
febrúar hefst sýning á
munum tengdum U2 í
frægðarhöll rokksins í
Cleveland í Bandaríkj-
unum. Sýningin kallast
„In the Name of Love: Two
Decades of U2“. ■
BONO
Bono var í góðum gír í veisl-
unni sem haldin var eftir
frumsýninguna í Dublin.
Bono og The Edge í stuði:
Órafmögnuð
veisla í Dublin
Ozzy Osbourne:
Gesta-
söngvari á
nýrri plötu
TÓNLIST Ozzy Osbourne hefur sung-
ið inn á plötu nýtt lag með þunga-
rokkhljómsveitinni Black Label
Society. Lagið kallast „Stillborn“ og
verður fyrsta smáskífan af plöt-
unni „The Blessed Hellride“, sem
kemur út í apríl. Myndavélar frá
MTV-sjónvarpsstöðinni sveimuðu
um allt í kring til að taka upp at-
burðinn. Osbourne er eins og kunn-
ugt er aðalpersónan í „raunveru-
leikaþáttunum“ „The Osbournes“
sem sýndir eru á stöðinni. ■
MENNING „Ég tók við rekstri Aust-
urbæjar í október og samkvæmt
uppgjöri fyrir þrjá síðustu mán-
uði ársins var hagnaður af
rekstrinum. Það sýnir að þetta er
hægt,“ segir Óttar Felix Hauks-
son sem tók Bíóborgina á leigu af
byggingaverktökum, sem keypt
höfðu kvikmyndahúsið af Árna
Samúelssyni og fjölskyldu, hugð-
ust rífa það og byggja nýtt hús á
lóðinni. „Bókanir í byrjun árs eru
góðar. Það er þéttbókað allt fram
í apríl,“ segir Óttar Felix sem
staðið hefur fyrir alls konar
menningaruppákomum eftir að
hann tók við rekstri hússins.
Standa vonir hans til að áfram-
hald verði á og að byggingin
verði ekki jöfnuð við jörðu fyrir
aðra og nýrri:
„Ég vona að byggingarverktak-
arnir sjái sér hag í því að byggja á
reitnum fyrir neðan húsið en
leyfa gamla Austurbæjarbíói að
standa. Þetta er of gott hús til að
rífa og ég þykist hafa sýnt fram á
að hægt sé að reka það með þeim
hætti sem ég hef verið að gera,“
segir Óttar Felix. ■
ÓTTAR FELIX HAUKSSON
Þéttbókað í Austurbæ fram í apríl.
Gamla Austurbæjarbíó í blóma:
Hagnaður af
Austurbæ
KVIKMYNDIR Leikkonan Catherine
Zeta Jones ætlar á næstunni að
hefja framleiðslu á barnafötum
undir vörumerkinu Zeta. Að því
er segir í breskum fjölmiðlum
ætlar leikkonan að hella sér í
verkefnið ásamt Ray Williams,
fyrrverandi rugby-leikmanni og
landa sínum frá Wales.
Talið er að vörumerkið verði
sett á laggirnar á sama tíma og
Catherine Zeta eignast annað barn
sitt í mars. Hún á fyrir tveggja ára
gamla soninn Dylan með eigin-
manni sínum Michael Douglas. ■
Catherine Zeta Jones:
Framleiðir
barnaföt
ZETA JONES
Catherine Zeta Jones ætlar sér
stóra hluti í barnafatabransanum.
DANSAÐ VIÐ VAMPÍRU
Michael Crawford og Mandy Gonzales eru
hér í hlutverkum sínum í Dansað við vamp-
íru sem sett var upp á Broadway. Sýning-
unni var hætt eftir aðeins 56 skipti og er
talið að hún skili tólf milljón dollara tapi.