Fréttablaðið - 16.01.2003, Page 35

Fréttablaðið - 16.01.2003, Page 35
23FIMMTUDAGUR 16. janúar 2003 degi til sunnudags kl. 14-18. Sýningunni lýkur 2. febrúar. Freygerður Dana Kristjánsdóttir sýnir tvö verk á sýningu sinni í MOJO á Vega- mótastíg 4. Annað er háðsádeila á fálka- orðuna, hitt er um rollur á réttum eða röngum hillum í lífinu. Sýningin stendur út janúar. Anna Guðrún Torfadóttir myndlistar- maður sýnir verk unnin með blandaðri tækni í Scala, Lágmúla 5 í Reykjavík. Birgir Rafn Friðriksson heldur sýning- una Án samhengis - allt að klámi í Café Presto, Hlíðasmára 15, Kópavogi. Birgir sýnir 34 þurrpastelmyndir unnar á árinu 2000. Sýningin stendur út janúar og er opin á opnunartíma Café Presto, 10-23 virka daga og 12-18 um helgar. Ingólfur Júlíusson ljósmyndari stendur fyrir sýningunni Grænland - fjarri, svo nærri í Reykjavíkurakademíunni, 4. hæð. Sýningin er opin virka daga frá 9- 17 og stendur til 31. janúar. Í hers höndum er yfirskrift á sýningu sem stendur yfir í Borgarskjalasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð. Sýningin er opin alla daga klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar. Sýning á málverkum Aðalheiðar Val- geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýn- inguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið, tíminn og eilífðin. Sýningin í Hallgríms- kirkju er haldin í boði Listvinafélags Hall- grímskirkju og stendur til loka febrúar- mánaðar. Sýning á nokkrum verkum Guðmundar Hannessonar ljósmyndara stendur yfir í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja- víkurminningar en myndirnar tók Guð- mundur um miðja síðustu öld í Reykja- vík. Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista- safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Inga Svala fjallar um og endurvekur draum- sýnina um hið fullkomna samfélag. Hún leggur fram hugmynd að milljón manna borgarskipulagi í Borgarfirði og á norð- anverðu Snæfellsnesi. Sýningin er opin alla daga klukkan 10-17. Henni lýkur 19. janúar. Á Kjarvalsstöðum eru sýnd nokkur verk eftir Jóhannes S. Kjarval úr Kjarvals- safni. Sýningin er opin alla daga 10-17. Henni lýkur 31. janúar. Íslandsmynd í mótun - áfangar í kortagerð er yfirskrift sýningar í Þjóð- menningarhúsinu. Sýnd eru þau kort sem markað hafa helstu áfanga í leitinni að réttri mynd landsins. Sýningin stend- ur þangað til í ágúst. Milli goðsagnar og veruleika er yfir- skrift sýningar á nútímalist frá araba- heiminum í Listasafni Reykjavíkur, Hafn- arhúsi. Sýningin kemur frá Ríkislistasafn- inu í Jórdaníu. Á henni er úrval verka eftir karla og konur frá sextán löndum. Sýningin er opin alla daga 10-17. Henni lýkur 19. janúar. Þórarinn Eldjárn er skáld mánaðar- ins í bókasal Landsbókasafnsins í Þjóðmenningarhúsi. Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð- menningarhúsinu. Sýningin er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er frá klukkan 11 til 17. Guðlaugur Valgarðsson er með sýning- una Myndir úr lífinu í gluggagalleríinu að Vatnsstíg 9. Á sýningunni eru átta ljósmyndir, allar frá síðasta ári. Sýning á bútasaumsverkum eftir 10 konur stendur nú yfir í Garðabergi, fé- lagsmiðstöð eldri borgara að Garðatorgi 7 í Garðabæ. Sýningarnar verða opnar alla daga nema sunnudaga frá kl. 13 til 17. MYNDLIST „Þótt ég hafi gegnum tíðina mest verið að mála, þá hef ég samt aldrei verið neitt bund- inn af því að ég þyrfti að vinna með málverk,“ segir Tumi Magnússon myndlistarmaður, sem í dag opnar sýningu í Kúl- unni í Ásmundarsafni við Sigtún. Þar sýnir hann vídeó- verk, og er það í fyrsta sinn sem hann sýnir verk af því tagi opin- berlega. Lengi vel málaði Tumi fyrst og fremst á striga, en fyrir nokkrum árum fór hann að mála á veggi og einnig að taka ljós- myndir þar sem hann var að vinna með rýmið. „Þetta er bara svona framhald á því. Þetta er svipað viðfangsefni, aðeins unn- ið með annarri aðferð. En reynd- ar breytist viðfangsefnið þá að- eins í leiðinni.“ Litir hafa verið ær og kýr Tuma undanfarin ár. Hann hef- ur sýnt verk sem eru að uppi- stöðu nánast hreinir litafletir. Við fyrstu sýn kann að virðast lítið í slíkt spunnið, en þegar nánar er að gætt búa óvæntar vangaveltur á bak við sem koma hugarfluginu heldur bet- ur af stað. „Þegar ég fór að vinna með liti ákveðinna efna, þá er það ekki endilega af því að mér finnist þetta svo fallegir litir, heldur er það út af tengingunni við ákveðið efni. Þegar maður veit að þetta er litur af ákveðnu efni þá breytir það tilfinning- unni, þá finnur maður kannski næstum því lykt af efninu.“ Kúlan í Ásmundarsafni við Sigtún er allsérstæður sýning- arstaður. Tumi hefur látið myrkva gluggana. Eina lýsing- in er af vídeóinu, sem lýsir beint upp í loftið. „Ég hef ákaflega gaman af að vinna hlutina inn í ákveðið rými. Ekki síst svona sérstætt og fallegt rými eins og hérna er. Hljóðið er líka mjög óvenju- legt. Þegar maður talar í miðju rýminu þá er eins og það heyr- ist úr öllum áttum í einu. Og ég notfæri mér það auðvitað í þessari sýningu líka.“ gudsteinn@frettabladid.is Tumi Magnússon opnar sýningu í Ásmundarsafni: Sýnir vídeó í kúlunni TUMI MAGNÚSSON Sýnir í fyrsta sinn vídeóverk eftir sig, sem er í beinu framhaldi af rýmis- og litapælingum hans undanfarin ár. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Borgarskjalasafn Reykjavíkur www.rvk.is/borgarskjalasafn Sími: 563 1770 Reykjavík í hers höndum. Sýning á skjölum og ljósmyndum af Reykjavík á stríðstímum. Opin alla daga kl. 12-17 á 6. hæð, Tryggvagötu 15. ________________________________________________________ www.ljosmyndasafnreykjavikur.is Langar þig í mynd af Reykjavík t.d. frá árinu 1910, 1930 eða 1950? Verð frá 1000 kr. Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Opið mán.-fös. kl. 10-16 ________________________________________________________ www.listasafnreykjavikur.is Sími 552 6131 HAFNARHÚS Arabíulistsýning, Inga Svala Þórsdóttir, Erró Leiðsögn sunnud. kl. 15.00 KJARVALSSTAÐIR Odd Nerdrum, Kjarval Leiðsögn sunnud. kl. 15.00 ÁSMUNDARSAFN Tumi Magnússon, Ásmundur Sveinsson ________________________________________________________ Minjasafn Reykjavíkur - Árbæjarsafn - Viðey www.arbaejarsafn.is Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð en boðið er upp á leiðsögn alla mánud., miðvikud. og föstudaga kl. 13. Einnig er tekið á móti hópum eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar í síma 577 1111. Upplýsingar um leiðsögn í Viðey í síma 568 0535. ________________________________________________________ www.gerduberg.is Gerðubergi 3-5, s. 575 7700 Opnunartími sýninga frá kl.11-19 mán.-fös., kl.13-16.30 lau.-sun. Ókeypis aðgangur. Sýning: Bauhaus ljósmyndasýning. Sýningin stendur til 23. febrúar. Í fé- lagsstarfi: Árni Sighvatsson. ________________________________________________________ www.borgarbokasafn.is s. 563 1717 Upplýsingar um afgreiðslutíma: s. 552 7545 Nýtt á vef Borgarbókasafns Lesið um jólabækurnar og sendið ykkar álit á www.bokmenntir.is ________________________________________________________ Minjasafn Orkuveitunnar Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal er opið sun. 15-17 og eftir samkomu- lagi í s. 567-9009

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.