Fréttablaðið - 16.01.2003, Side 39
27FIMMTUDAGUR 16. janúar 2003
Farðu úr bænum á góðum bíl frá Avis – Helgarbíllinn þinn
Hringdu í Avis sími 5914000
Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík – www.avis.is Við gerum betur
Helga
rbíll
frá Ope
l Cor
sa
kr. 9.999
Helga
rleig
a
Eign Kurt Cobain á uppboði:
Svarti Stratocaster
gítarinn seldur
TÓNLIST Gítarinn sem Kurt Cobain
lék á í „Nevermind“-tónleika-
ferðalagi Nirvana verður seldur á
uppboði þann 20. febrúar næst-
komandi.
Svarti Stratocaster-gítarinn
var notaður á einu frægasta tón-
leikaferðalagi sögunnar í kjölfar
útgáfu plötunnar „Nevermind“,
sem kom út árið 1991. Talið er að
allt að 15 þúsund pund, um rúmar
tvær milljónir króna, fáist fyrir
gítarinn þegar hann fer undir
hamarinn.
Auk gítarsins verða óútgefnar
upptökur með John Lennon og
Mick Jagger boðnar upp. ■
Stórhuga Hafnfirðingar:
Ætla að
grafa sig
inn í klett
HÓTEL Eigendur Víkingahótelsins
í Hafnarfirði eru með stórbrotn-
ar hugmyndir um frekari fram-
kvæmdir á staðnum en hótelið er
rekið í tengslum við Fjörukrána
og er í eigu sömu aðila. Víkinga-
hótelið stendur við hlið Fjöru-
kráarinnar, 29 herbergi í vík-
ingastíl:
„Næsta sumar er fyrirhugað
að búa til alvöru helli við annan
enda hótelsins með því að grafa
sig inn í klettinn hérna á bak
við,“ segir Benedikta Þorsteins-
son, starfsmaður hótelsins, en
Benedikta var eitt sinn félags-
málaráðherra Grænlands en
starfar nú við útbreiðslu á vest-
norrænni menningu hér á landi.
„Þá er einnig hugmynd uppi um
að reisa risastyttu af víkingi með
sverð hér fyrir framan, svona í
líkingu við Frelsisstyttuna í New
York þó hún verði að sjálfsögðu
ekki jafn stór,“ segir Benedikta.
Nýr hótelstjóri hefur verið
ráðinn að Víkingahótelinu í
Hafnarfirði en það er Karl
Rafnsson, sem áður var hótel-
stjóri á Selfossi. ■
KURT COBAIN
Platan „Nevermind“ hafði mikil áhrif á
rokkheiminn þegar hún kom út.
Imbakassinn eftir Frode Øverli
Éta minna, hreyfa
sig meira.
Megrunar-
kúr
Visamlegast látið vita ef blaðið berst ykkur ekki!
Dreifingardeild Sími 515 7520