Fréttablaðið - 16.01.2003, Page 44
TÍSKA Á miðvikudag tóku tíu ungir
tævanskir fatahönnuðir sig til og
sýndu föt sín á tískuvikunni í
Hong Kong sem nú stendur yfir.
Um var að ræða haust- og vetrar-
tískuna í ár.
Það er greinilegt að sköpunar-
gáfan ræður ríkjum þar í landi því
það var engu líkara en hönnuðirn-
ir væru að keppa á heimsmeist-
aramótinu í frumlegum klæðnaði.
Hver flíkin á fætur annarri fékk
sýningargesti til þess að gapa af
undrun. allt frá sjálflýsandi kjól-
um upp í stórhættulega gadda-
kjóla.
Tískuvikan í Hong Kong renn-
ur saman við karlatískuvikuna
sem nú stendur yfir í Mílanó á
Ítalíu.
Það er hins vegar deilumál
hvort þægilegt sé að vera í kven-
fatnaðinum sem kemur frá fata-
hönnuðum Tævan þessa dagana.
Listin er þar auðsjáanlega ofar
þægindum. ■
32 16. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
UMHVERFISMÁL Fullt var út að dyr-
um í Austurbæ við Snorrabraut í
fyrrakvöld þegar Ómar Ragnars-
son sýndi þar kvikmyndir sem
hann hefur gert um virkjanir og
þjóðgarða víða um heim:
„Það var gaman að sjá þennan
áhuga. Sumir þurftu að standa,“
segir Ómar, sem vel gæti hugsað
sér að sýna myndirnar aftur finni
hann fyrir frekari áhuga. Ómar
sýndi myndir sem hann tók af
virkjunum og þjóðgörðum í
Kanada og Bandaríkjunum. Þá
brá hann sér yfir til Noregs og
svo var það Vatnajökull og ná-
grenni:
„Kárahnjúkavirkjun er
stærsta framkvæmd sem ráðist
hefur verið í á Íslandi og hún er
óafturkræf fyrir komandi kyn-
slóðir. Hér er verið að taka
ákvörðun fyrir alla þá sem á eftir
koma. Þetta er stórmál,“ segir
Ómar, sem vinnur nú að því að
betrumbæta sýningu sína í ljósi
viðbragða áhorfenda sem fylltu
Austurbæ í fyrrakvöld. ■
Virkjanir:
Troðfullt hjá Ómari
ÓMAR RAGNARSSON
Náði til margra.
VINSÆLIR
Big Boi, rappari Outkast, og Killer Mike
hampa hér verðlaunum á Bandarísku tón-
listarverðlaununum. Þeir hlutu verðlaun
fyrir besta samstarf tvíeykis.
Tíska í Hong Kong:
Frumlegheit í fyrirrúmi
Heyrðu...
ertu með
kafaraveiki?
Nei, ég er bara
eitthvað slappur
á taugum!
Komdu Bjöggi!
Nú förum
við heim!
Heyrðu...
ertu með
kafaraveiki?
VÆNGIR
Í stað erma notar fatahönnuðurinn Lin
Kuo-chi eins konar vængi. Þessi vínrauði
„vængja“-bolur vakti verðskuldaða athygli á
tískuvikunni í Hong Kong. Buxurnar eru úr
flaueli og svörtu gerviefni.
TVÍBURABÚNINGAR
Þessar stelpur eru nánast eins og beint úr myndböndum New Order á níunda áratugnum.
Þessir brúnu búningar eru aðallega úr leðri og plasti. Pils stúlkunnar til hægri er úr ein-
hvers konar dýraskinni. Það var hönnuðurinn Chao Shu-Yun frá Tævan sem bjó þetta til.
SJÁLFLÝSANDI
Það er örugglega ekki óhentugt fyrir herr-
ann að fara með þessari stúlku á dansleik.
Það er að minnsta kosti engin leið að hún
geti stungið hann af. Þessi skemmtilegi
sjálflýsandi kjóll er hönnun Shih Yu-peng.
LAFANDI ERMAR
Þessi glæsilegi vínrauði kjóll var hluti af
sýningu Chao Shu-Yun. Hún leitar greini-
lega mikið í uppruna sinn en hún kemur
frá Tævan.
GADDAKJÓLL
Það getur verið stórhættulegt að móðga
þessa dömu. Þessi skærbleiki gaddakjóll
er hugarsmíð Lin Kuo-chi.
Stórútsala
30-70% afsláttur
Kápusalan Snorrabraut 38, sími 563 4362