Fréttablaðið - 20.01.2003, Side 11
11MÁNUDAGUR 20. janúar 2003
AMERÍKA
BARNAMORÐINGI LÍFLÁTINN
Maður hefur verið tekinn af lífi í
Oklahoma í Bandaríkjunum fyrir
morð sem hann framdi 1987. Þá
barði hann rúmlega árs gamalt
barn sambýliskonu sinnar til ólíf-
is.
HALLINN ALDREI MEIRI Við-
skiptahalli Bandaríkjanna gagn-
vart útlöndum nam 40 milljörð-
um króna í nóvember. Hallinn
hefur aldrei verið meiri.
Skipsflak í Svartahafi:
Grikkir á
Krímskaga
WASHINGTON, AP Skipsflak sem
fannst á botni Svartahafsins er
talið sönnun á því að Forn-Grikkir
hafi flutt inn mat alla leið frá
norðurströnd Svartahafs. Flakið,
sem fannst skammt undan strönd-
um Búlgaríu, er það elsta sem
fundist hefur í innhafinu eða frá
3.-5.öld f.Kr. Það var könnuðurinn
Robert Ballard sem fann skipið en
hann er frægastur fyrir að hafa
fundið flak Titanic á botni Atl-
antshafsins.
Lítið er heillegt af skipsflakinu
annað en farmur þess, sem sam-
anstendur af stórum forngrískum
leirkrukkum. Í krukkunum hafa
fundist bein ferskvatnsfisks frá
Krímskaga. Þetta bendir til þess
að Grikkir hafi flutt inn fisk frá
Krímskaganum, þar sem nú er
Úkraína. Í fornum heimildum er
getið um að Grikkir hafi átt ný-
lendur á þessu svæði og rennir
fundurinn stoðum undir það. ■
Evrópusambandið:
Kúariðutil-
fellum fækk-
ar um 17%
LANDBÚNAÐUR Kúariðutilfellum
innan Evrópusambandsins fækk-
aði um 17% milli áranna 2001 og
2002, samkvæmt sænska land-
búnaðarblaðinu Lantbruk.
Árið 2001 komu upp 2.162
kúariðutilfelli innan Evrópusam-
bandsins en í fyrra hafði þeim
fækkað í 1.797. Kúariða greindist
oftast á Bretlandi en þar komu
upp 907 tilfelli á sl. ári. Það er þó
lægsta tíðni síðan árið 1988. Í
Frakklandi greindust 177 tilfelli
og 97 í Þýskalandi. Á Írlandi
greindust fleiri nautgripir með
kúariðu en undanfarin ár, eða
313. ■
IÐNAÐUR Trúnaðarmannaráðs-
fundur í Félagi járniðnaðar-
manna lýsir áhyggjum yfir mikl-
um samdrætti í málmiðnaði og
fleiri iðngreinum og hvetur
stjórnvöld til aðgerða gegn vax-
andi atvinnuleysi. Járniðnaðar-
menn benda á að stóriðjufram-
kvæmdir á Austurlandi skila
ekki atvinnu í málmiðnaði fyrr
en í fyrsta lagi á næsta ári og þá
því aðeins að notast verði við
innlent vinnuafl. Enn fremur er
minnt á að verktakar hafi ítrek-
að flutt inn erlent vinnuafl á
fölskum forsendum og verið
staðnir að svikum með launa-
greiðslur. Þess er krafist að
Landsvirkjun og stjórnvöld
tryggi fulla atvinnuþátttöku Ís-
lendinga í framkvæmdunum,
ásamt því að ganga ríkt eftir því
að erlendir launþegar njóti sömu
kjara. ■
Félag járniðnaðarmanna lýsir áhyggjum vegna
atvinnuleysis:
Varar við svikul-
um verktökum