Fréttablaðið - 20.01.2003, Page 27

Fréttablaðið - 20.01.2003, Page 27
MÁNUDAGUR 20. janúar 2003 HEILBRIGÐISMÁL Bónus færði á föstudag Barnaspítala Hringsins að gjöf umtalsverðan tækjabúnað. Um er að ræða þrjár stjórnstöðvar fyr- ir lífsmarkavaka fyrir nýjan barna- spítala. Stjórnstöðvar þessar eru tengdar tækjum til að vaka yfir hjartslætti, öndun, súrefnismettun og blóðþrýstingi barna sem liggja á Barnaspítalanum. Samtímis gefur Bónus einnig hjartalínuritstæki ásamt endurlífgunartæki. Verð- mæti gjafanna er áætlað 10-12 milljónir króna. Jóhannes Jónsson, forstjóri Bón- us, afhenti gjafirnar og veitti Ás- geir Haraldsson prófessor veitti þeim viðtöku. Bónus hefur á undan- förnum árum styrkt Barnaspítala Hringsins til tækjakaupa. Bónus hefur áður gefið Barnaspítalanum stjórnstöð fyrir lífsmarkavaka, fjóra hjartsláttar-, öndunar- og súr- efnisvaka, heilasírita, hitakassa fyrir Vökudeild og margt fleira. Áætlað er að verðmæti gjafa frá Bónus sé yfir 40 milljónir króna á undanförum árum. ■ Barnaspítali Hringsins: Bónus gefur tæki fyrir 10-12 milljónir GUNNLAUGUR SIGFÚSSON KANNAR HJARTALAG JÓHANNESAR Hann staðfesti með nýja tækinu að hjartalag Jóhannesar Jónssonar væri gott. HETJA Leikarinn Ewan McGregor sést hér bera hundinn Rivu út úr logandi húsi. Atriðið var tekið upp fyrir nýjustu mynd Tim Burton, sem heitir „Big Fish“. FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM Renee Zellweger: Söng fyrir hundana KVIKMYNDIR Leikkonan Renee Zellweger segist hafa liðið undar- lega þegar hún var valin til að fara með hlutverk Roxie Hart í kvikmyndinni Chicago. Hún segir að hlutverkið hafi krafist þess að hún myndi syngja og dansa, sem er nokkuð sem hún hafi aldrei verið þekkt fyrir. „Ég ætlaði aldrei að syngja neitt nema fyrir hundana mína þegar ég væri í sturtu. Síðan hringdi leikstjórinn Rob Marchall í mig og þá sá ég að tími minn væri kominn,“ sagði Zellweger. ■ ZELLWEGER Renee Zellweger leikur og syngur í söngvamyndinni Chicago.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.