Fréttablaðið - 20.01.2003, Qupperneq 31
31MÁNUDAGUR 20. janúar 2003
FRÉTTIR AF FÓLKI
Laugavegi 13. Sími: 511 1185 | Brautarholti 2. Sími: 520 7605
VIÐ ELSKUM TÓNLIST... ÞÚ ELSKAR VERÐIÐ!
RISAÚTSALA
ALLT AÐ 90% AFSLÁTTUR
FULLT AF NÝJUM TITLUM Á FRÁBÆRU VERÐI.
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF KLASSÍSKRI TÓNLIST Í VERSLUNINNI Á LAUGAVEGI.
ÞÝSKUNÁMSKEIÐ
Á VORÖNN 2003
Námskeiðin hefjast 3. febrúar. Skráning og beiðni
um upplýsingar í síma 551 6061 (kl. 15-18 frá
þriðjudegi til föstudags) og á netfanginu
goethe@simnet.is.
Skráningu lýkur 31. janúar.
Stöðupróf á netinu: www.goethe.de/i/deitest.htm
Byrjendur 1
mánudaga 18-19.30; Katharina Gross
Byrjendur 2
föstudaga 17.30-19; Katharina Gross
Grunnstig 1
mánudaga 18-91.30; Katharina Gross
Grunnstig 2
fimmtudaga 20-21.30; Katharina Gross
Grunnstig 3
Þriðjudaga 18-19.30; Magnús Sigurðsson
Talþjálfun og málfræði
miðvikudaga 18-19.30; Angela Schamberger
Talþjálfun og málfræði
fimmtudaga 18-19.30; Angela Schamberger
Talþjálfun
þriðjudaga 20-21.30; Angela Schamberger
Barnanámskeið: fyrir yngri og eldri börn
yngri: laugad. 13.30-14.15,
eldri: laugad. 14.30-15.15;
Katharina Gros
Bókaútgáfan Bjartur á það sam-eiginlegt með nafna sínum
kenndum við Sumarhús að vera
jafnan stórhuga. Uppgangurinn er
slíkur í upp-
hafi árs að sett
hefur verið á
laggirnar stór-
virkjadeild hjá
forlaginu. Jón
Karl Helgason,
einn höfunda
Njálu, er aðal-
ritstjóri deild-
arinnar, sem
vinnur út frá
þeirri skilgreiningu að verk sé
ekki stórvirki nema það kosti
meira en þrjár milljónir í fram-
leiðslu og vegi meira en þrjú kíló.
Þannig að nú er bara að bíða og
sjá hvort annað bindi Landnemans
mikla eða næsti þúsund blaðsíðna
doðrantur um gullkálf Bjarts,
Harry Potter, vegi þyngra og
verði fyrsta stórvirkið.
Dansglaðir Selfyssingar og nær-sveitarmenn eru harmi slegnir
en á föstudaginn var haldinn síð-
asti dansleikurinn í Inghóli. Ein
uppáhaldshljómsveit Sunnlend-
inga, Sálin hans Jóns míns, kvaddi
húsið, sem verður nú breytt í
skyndibitastað. Tuttugu ára sögu
Inghóls sem skemmtihúss er sem
sagt lokið og óttast margir að fátt
verði um fína drætti í skemmtana-
lífi sveitarinnar þar sem nýlegar
breytingar á Hótel Selfossi hafa
einnig orðið til þess að pláss fyrir
hljómsveitir sem vilja breiða út
fagnaðarerindi sitt á Ölfusárbökk-
um er orðið lítið sem ekkert.
Valgerður Sverris-dóttir iðnaðar- og
viðskiptaráðherra sér
ástæðu til þess að árét-
ta á heimasíðu sinni
hvar hún á lögheimili.
Segir hún að mikið hafi
farið fyrir fréttum af
búsetu frambjóðenda
og því ítrekað haldið
fram að hún búi í
Reykjavík. Auðvitað býr Valgerður
að Lómatjörn í Grýtubakkahreppi í
Eyjafirði og hefur að sögn gert allt
sitt líf fyrir utan tveggja ára bú-
setu á Akureyri. Eins og aðrir
landsbyggðarþingmenn þarf Val-
gerður hins vegar að halda heimili
í Reykjavík.
Ekkert verður af formannsslag álandsfundi Ungra jafnaðar-
manna síðar í mánuðinum. Í það
minnsta ekki á milli Ágústs Ólafs
Ágústssonar, núverandi formanns,
og Eiríks Jónssonar, fyrrum Stúd-
entaráðsformanns, sem hafði íhug-
að framboð gegn Ágústi. Eiríkur ku
hafa ákveðið að sækjast eftir
kjöri í embætti varafor-
manns og talið nóg að taka
það stökk í fyrsta sinn sem
hann gefur kost á sér í emb-
ætti á vegum Ungra jafnað-
armanna. Svo er aftur spurn-
ing hvort einhver annar hjóli
í formanninn eða hvort menn
bíði fram á næsta haust en þá
verður væntanlega haldinn
annar landsfundur Ungra
jafnaðarmanna á árinu.
Mick Jagger og John Lennon:
Týnd upptaka boðin upp
TÓNLIST Upptaka af samstarfi
Mick Jagger og John Lennon sem
talin var vera týnd verður brátt
boðin upp.
Upptakan hefur ekki heyrst í
um 25 ár. Á henni má heyra
blúslagið „Too Many Cooks,“ sem
tekið var upp árið 1974, þar sem
Jagger syngur en Lennon leikur á
gítarinn. Lagið var aldrei gefið út.
Upptakan var löngu talin týnd.
Þegar Tom Fisher, 34 ára gamall
plötuútgefandi, keypti upptökur í
suðurhluta Lundúna varð honum
hverft við þegar hann áttaði sig á
hvað hún innihélt. Hann hafði
keypt upptökuna á um 220 pund
og er talið að hann eigi eftir að
margfalda þá upphæð á uppboð-
inu.
Jagger sjálfur segir að upptak-
an hafi verið gerð á hinu svokall-
aða „Týnda tímabili“ Lennons en
það var þegar hann og Yoko Ono
voru aðskilin um langt skeið.
„Too Many Cooks“ var samið af
Willie Dixon og að sögn uppboðs-
haldara er útsetning Jagger og
Lennon afar sérstök. ■
MICK JAGGER
Fékk tækifæri til að vinna með John
Lennon þegar Yoko Ono var fjarri.