Fréttablaðið - 20.01.2003, Side 24

Fréttablaðið - 20.01.2003, Side 24
24 20. janúar 2003 MÁNUDAGUR GILBERTO GIL Nýr menningarmálaráðherra Brasilíu treð- ur upp á samkomu þar sem hann kynnti starfslið sitt. Skipun Gils í embætti þykir sýna fram á að forseti landsins, Luiz Inacio da Silva, sé í nánum tengslum við fátækan og þeldökkan almenning. Gil hlaut Grammy-verðlaun árið 1998 en áður en hann var skipaður í embætti hafði aðeins einn hörundsdökkur maður verið skipaður ráðherra í Brasilíu, en það var fótboltakappinn Pele sem var skipað- ur af fyrrum forseta Brasilíu, Fernando Henrique Cardoso. Drauga- og tröllaskoðun- arfélag Evrópu: Vilja pen- inga í bíó KVIKMYNDIR Á síðasta fundi bæjar- ráðs Árborgar var fjallað um um- sókn frá Drauga- og tröllaskoðun- arfélagi Evrópu þar sem leitað var eftir styrk til kvikmyndagerð- ar. Bæjarráðsmenn bundust sam- tökum um að fresta ákvörðun í málinu þar til fjárhagsáætlun sveitarfélagsins lægi fyrir. Ekki tókst að afla upplýsinga um hverjir standa að baki um- sókninni en hún var einfaldlega undirrituð „Drauga- og trölla- skoðunarfélag Evrópu“. Ekki er heldur vitað um hvað kvikmynd félagsskaparins á að fjalla en bæj- arráðsmenn gera þó fastlega ráð fyrir að þar komi draugar og tröll á Suðurlandi við sögu. ■ BÆKUR „Á Akureyri er nánast hver einasti maður uppnefndur. En þeir verða alltaf voðalega hissa þegar þetta er hermt upp á þá. Því er það nú svo að við lögð- umst í miklar rannsóknir og nið- urstöðurnar munum við svo kynna í bókinni,“ segir Ragnar Gunnarsson, betur þekkur sem Raggi Sót, forsöngvari Skrið- jökla. Raggi Sót er ásamt félaga sínum Jóni Hauki Brynjólfssyni þýðanda (sem nefndur hefur ver- ið „Þögli útvarpsmaðurinn“) með bók í smíðum sem ber vinnuheit- ið „Norðlensk viðurnefni“. Til stóð að henda sér í jóla- bókaflóðið en svo vannst ekki tími til og bókin því væntanleg í október. „Jú, ég get ekki neitað því að þarna eru vafasöm viður- nefni og ágætt væri að prufu- keyra þau í Fréttablaðinu til að athuga hvort bókin á nokkuð yfir höfði sér lögbann.“ Ragnari verð- ur ekki að ósk sinni. Blaðið er vant að virðingu sinni og kýs að hafa ekki eftir þau allra skraut- legustu. „Hvað er þetta?“ spyr Raggi Sót undrandi. „Það verður nú að gera eitthvað til að lyfta munnvikunum á Íslendingum nú á þessum síðustu og verstu þegar hálf þjóðin arkar um í jakka- fötum, grallaralaus á svip, með misverðmikil verðbréf upp á vasann.“ Einn þeirra sem koma við sögu í bókinni er kallaður Kalli með viðurnefni sem vísar til þess helgasta á kúm. „Já, það er afskaplega gaman að vinna þessa bók. Ég hitti til dæmis Kalla um daginn og var að velta fyrir mér þessu sérstæða viðurnefni - sem þú þykist ekki mega nefna. Eftir að hafa haft hann fyrir augunum í góða stund og hugleitt þetta þá hallast ég helst að því að það sé munnsvipurinn.“ Ragnar vill ekki ljóstra upp um þau nöfn sem koma fyrir í bókinni þó tókst að kreista úr honum nöfnin: Lúlli límónaði, Jón í loftinu, Tarzan taugahrúga, Jói hrúðurkarl að ógleymdum Jóni í pútnahúsinu. Það viður- nefni hlaut hann blásaklaus vegna kvensemi sonar síns Jak- obs Jónssonar gítarleikara.“ Ragnar telur bókina líklega til vinsælda og gefur lítið fyrir það hvort hún muni reynast við- kvæmum sálum nyrðra erfið. „Ég reikna með að hún fari í svona 3.500 eintökum í Eyjafirði einum. Viðkvæmt? Það er búið að kalla mig Ragga Sót frá blautu barnsbeini. Aldrei hef ég steytt hnefann þess vegna og látið mér vel líka. Þetta var starfsheiti föð- ur míns á sínum tíma og festist við fjölskylduna. Var kannski viðkvæmt meðan barnsskóm var slitið en alls ekki á seinni árum. Er nú svo komið að þetta er eig- inlega meira svona ættarnafn en viðurnefni.“ Að sögn Ragnars slást forleggjarar um verkið og óvíst hver hreppir hnossið. „Þar sem bókin mun auglýsa sig að mestu leyti sjálf kæmi alveg eins til greina að gefa hana út sjálfur.“ jakob@frettabladid.is Lúlli límonaði og Tarzan taugahrúga Norðlendingar eiga von á glaðningi í tengslum við bókaútgáfu. Ekki er þó víst að öllum falli það í geð. Sjálfur Raggi Sót vinnur nú að bók um norðlensk viðurnefni, sem mörg hver eru skrautleg með afbrigðum. RAGGI SÓT Segir svo komið að viðurnefni sitt sé orðið hálfgildings ættarnafn fremur en uppnefni. Metsölulistinn: King lækkar flugið BÆKUR Iris Johansen býður upp á morð, misþyrmingar, sprenging- ar, eiturbrugg og bílaeltingaleiki í Body of Lies, fjórðu bókinni um Eve Duncan sem var fyrst kynnt til sög- unnar í The Face of Decept- ion. Eitthvað þykir henni þó vera að fatast flugið og um- fangsmikil flétt- an þykir vera farin að skyggja á persónusköp- un. Þetta breyt- ir því þó ekki að henni tekst að ýta meistara Stephen King niður í annað sætið með smásagnasafnið Everything´s Eventual. Kóngur- inn hefur líka sjálfur oft verið í betra formi og þó hann bregðist vart hörðustu aðdáendunum þá skákar þessi bók seint eldri smá- sagnasöfnum hans. ■ 1 METSÖLULISTI 2 3 4 5 6 7 8 9 10 MEST SELDU ERLENDU BÆKUR Í VERSL- UNUM PENNANS/EYMUNDSSONAR BODY OF LIES Iris Johansen EVERYTHING´S EVENTUAL Stephen King MIDNIGHT BAYOU Bora Roberts ONCE A THIEF Kay Hooper THE GRAVEYARD SHIFT Jack Higgins BEGGAR´S BANQUET Ian Rankin STRANGERS IN THE NIGHT Linda Howard THE AMAZING MAURICE Terry Pratchett HER FATHER´S HOUSE Belva Plain THE SUMMONS John Grismham STEPHEN KING Fellur niður um sæti á metsölulista er- lendra bóka í versl- unum Pennans/Ey- mundssonar með smásagnasafninu Ev- erything´s Eventual. MANNRÆKT OG LANDRÆKT Þrjátíu og sjö aðilar fengu styrk úr Menning- ar- og styrktarsjóði Búnaðarbanka Íslands á föstudaginn. Sjóðurinn var stofnaður árið 1999 og er ætlað að styrkja íslenska menningu og listir, liðsinna líknar- og mannúðar- málum, stuðla að menntun, vísind- um og tækni og loks að styrkja verkefni á sviði umhverfismála. Sjóðurinn ráðstafaði 9.350.000 krónum til 37 styrkþega að þessu sinni og í hópi þeirra eru Þorsteinn Jónsson, sem hyggst gera heimild- armynd um meðferðarheimilið Rockville, og Áskell Másson, sem fær styrk til að vinna að stóru tón- verki fyrir sópran og sinfóníu- hljómsveit. Þá fékk Kammersveit Reykjavíkur styrk en hún gaf út geisladisk með verkum Leifs Þór- arinssonar í sumar. Sveinbjörn Már Davíðsson, sem hefur búið á Kópavogshæli frá níu ára aldri og er bundinn í hjólastól, fékk styrk til langþráðr- ar Danmerkurferðar og Lands- samband Gídeonfélaga á Íslandi fær styrk til fjármögnunar og dreifingar á Nýja Testamentinu. Félag eldri borgara fær styrk til eflingar starfs eldri borgara en félagið hefur staðið fyrir öflugu félagsstarfi. Jazzklúbbur Egilsstaða fær styrk vegna 16. jazzhátíðar sinnar sem haldin verður í sumar og Kiwanisklúburinn Setberg fær styrk til að vinna að verkefninu „Dýrin í sveitum landsins“ sem er ætlað 7-10 ára börnum. Samtök þeirra sem hafa misst börn sín í móðurkviði, við fæðingu eða stuttu eftir fæðingu, Litlir englar, eru einnig á meðal styrk- þega en ljóst þykir af viðbrögðum almennings að mikil þörf var á samtökum sem þessum. ■ Menningar- og styrkjasjóður Búnaðarbankans: Rúmlega níu millj- ónum úthlutað HRAFN GUNNLAUGSSON Fær styrk vegna nýrrar kvikmyndar sinnar, Ísland í öðru ljósi. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA? Arna Kristín Einarsdóttir, flautuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands. „Ég er að lesa rosalega skemmtilega bók sem heitir Notes from a Small Island. Hún er eftir mann sem heitir Bill Bryson sem hefur búið í Bretlandi í 20 ár og segir hér frá lokareisu sinni um allt landið áður en hann yfirgefur það. Hann er frábær penni, með fínan breskan húmor. Ég ef lesið aðra ferðasögu eftir hann og þetta er frábær skemmtilestur.“ www.casema.is Harðviðarhús, einbýlishús, sumarhús, klæðn- ingarefni, pallaefni og bílskúrar. Sími: 564-5200 og 865-7990 Stórútsala 30-70% afsláttur Kápusalan Snorrabraut 38, sími 562 4362

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.