Fréttablaðið - 20.01.2003, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 20. janúar 2003
Fitulítil
og freistandi
Um 90% af lífrænu skólpi kemur frá fyrirtækjum:
Íbúaskólp veldur
sjónmengun
UMHVERFISMÁL Innan við 10% af
öllu lífrænu skólpi í sjávarbyggð-
um kemur frá íbúum, en um 90%
kemur frá matvælafyrirtækjum.
Íbúaskólp veldur sjónmengun.
Þetta er niðurstaða skýrslu
Náttúrufræðistofu Vestfjarða um
skólpmengun við Tálknafjörð,
Ísafjörð, Bolungarvík, Hvamms-
tanga, Skagaströnd, Sauðárkrók
og Siglufjörð.
Í niðurstöðum skýrslunnar
segir að þynning skólpsins sé al-
mennt góð og viðtakinn ráði vel
við þá mengun sem í hann berist.
Það breyti litlu fyrir umhverfi
bæja við sjávarsíðuna að hreinsa
lífrænt efni úr fráveituvatni
heimila. Þar sem stærsti hluti
þess komi frá matvælafyrirtækj-
um sé skynsamlegra að bæta
mengunarvarnir hjá þeim.
„Rökrétt er því að hreinsun
íbúaskólps eigi einungis að vera
mjög gróf síun og hafa að mark-
miði að ná pappír, smokkum og
drasli sem mögulega getur borist
með fráveituvatninu og valdið
sjónmengun,“ segir í skýrslunni. ■
Ný reglugerð um útlendinga eftir helgi:
Erum að ná Dönum
og Norðmönnum
FÉLAGSMÁL Um áramót gengu í
gildi ný lög um útlendinga en ný
reglugerð sem átti að vera tilbúin
um leið hefur ekki verið gefin út.
Stefán Eiríksson, skrifstofu-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu,
segir nýju reglugerðina rétt hand-
an við hornið og mun hún líta
dagsins ljós á allra næstu dögum.
„Við höfum sent reglugerðina
víða til umsagnar. Athugasemdir
voru að berast á milli jóla og ný-
árs og sú síðasta kom frá Persónu-
vernd um miðja vikuna. Síðan tók
við vinna þar sem tekið var að ein-
hverju leyti tillit til þeirra athuga-
semda sem okkur bárust. Áður
hefur dómsmálaráðherra áhuga á
að kynna hana á fundi ríkistjórn-
arinnar og þá ætti hún að verða
tilbúin.“
Útlendingum hefur fjölgað
mjög hér á landi síðustu ár og ósk-
um um dvalarleyfi er alltaf að
fjölga. Samkvæmt skýrslu útlend-
ingaeftirlitsins fyrir árið 2001 eru
þeir sem hlotið hafa ríkisborgara-
rétt 3,1% af heildarfjölda íbúa hér
á landi. Sambærilegar tölur fyrir
nágrannalöndin eru 5,4% í Sví-
þjóð, 4,8% í Danmörku og 4,1% í
Noregi og Bretlandi. Í Finnlandi
eru sambærilegar tölur mun
lægri eða aðeins 1,8%.
Nær helmingur þeirra sem
hlotið hafa ríkisborgarrétt er frá
Filippseyjum, Póllandi, Taílandi
og Júgóslavíu. Á síðustu sex árum
hefur lítil breyting orðið á nema
Taílendingum hefur fækkað en
Pólverjum fjölgað. ■
Ofbeldi gegn lögreglumönnum:
Níutíu og átta voru kærðir
LÖGREGLAN Níutíu og átta einstak-
lingar voru kærðir árið 2001 fyr-
ir ofbeldi gegn lögreglumönn-
um. Um var að ræða áttatíu og
tvo karla og sextán konur. Flest-
ir þeirra sem voru kærður eru á
aldrinum 13-29 ára eða 59 talsins
og á það jafnt við um karla og
konur. Þegar ofbeldi var framið
voru flestir undir áhrifum
áfengis. Þau mál sem komu til
kasta dómsvalda voru áttatíu og
eitt talsins, sem er nokkur fækk-
un milli ára.
Í fimmtíu tilvikum hlutu lög-
reglumenn meiðsl. Sextán fengu
höfuðhögg, ellefu voru bitnir,
níu hlutu spörk, átta slösuðust í
átökum við handtekna menn,
þrír voru skallaðir í andlitið og
þrír hlutu meiðsl þegar vopnum
var beitt.
Ofbeldi gegn lögreglumönn-
um átti sér oftast stað frá mið-
nætti til átta að morgni. Flest
málanna eru skráð á sunnudegi
og því næst á laugardegi. Þá áttu
flest ofbeldisverkin sér stað við
skemmtistaði og á lögreglu-
stöðvum. ■
TÁLKNAFJÖRÐUR
Náttúrufræðistofa Vestfjarða kannaði m.a.
skólpmengun við Tálknafjörð.
ÚTLENDINGAR ERU 3,1% LANDSMANNA.
Sambærilegar tölur í Danmörku og Bretlandi eru 4,1%.
DÆMI UM OFBELDI:
Lögreglumenn stöðvuðu ökumann vegna gruns um ölvun við akstur. Kona sem var far-
þegi í bílnum hlýddi ekki fyrirmælum lögreglu að koma út. Hún réðst síðan á lögreglu-
mann og beit hann í handlegg. Lögreglumaðurinn fékk mar. Konan var dæmd til að
greiða 60.000 krónur í sekt til ríkissjóðs og að greiða verjanda sínum 80.000 krónur í
málsvarnarlaun.
81 mál kom til kasta dómsvalda. Upphaf mála skiptist eftirfarandi:
Fyrirmælum Fyrirvaralaus Afskipti af störfum Hótanir Lögreglumaður á
ekki hlýtt/átök árás lögreglu frívakt
49 16 8 5 3