Fréttablaðið - 20.01.2003, Page 28
TÍSKA Á meðan frumlegheitin leka
af kjólunum á tískuvikunni í
Hong Kong leita hönnuðir aftur í
tímann í karltískunni sem nú er
sýnd í Mílanó. Flestir leita nú
áhrifa til hins glysgjarna níunda
áratugar en Gucci vakti á sér at-
hygli með því að fara áratug aft-
ar. Listamógúlar gáfu sýningu
hans því strax viðurnefnið „That
70’s Show“.
Mikið hefur verið um stutta
jakka og liti á sýningarpöllunum
í Mílanó. Poppkúlturinn frá ní-
unda áratugnum er greinilega of-
arlega í huga núna. Kannski ekki
undarlegt í ljósi þess að þeir
ungu hönnuðir sem brjótast fram
núna eyddu barnæsku sinni á
áratuginum.
Silki var einnig áberandi og
einföld snið virðast vera komin í
karlatískuna á ný.
Svo virðist sem fatahönnuðir
séu að aðhyllast kvenlegt útlit á
karlmönnum og mátti sjá margar
fyrirsætur með hárið greitt aftur
og gloss á vörunum.
Loðkragar í öllum litum sáust
víða, sem hlýtur að teljast hent-
ugt í ljósi þess að verið var að
kynna haust- og vetrarlínu ársins
2003. ■
28 20. janúar 2003 MÁNUDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
Hæ, Ella! Ég vildi
bara láta þig vita
að ég er að koma
heim! Er Lilli
farinn að sofa?
HA? Giftir þú þig
aftur fyrir ÁTTA
árum síðan? ... Lilli
farinn að vinna á
frystitogara??
Ja, hérna...
tíminn
flýgur!
En þú sagðir góða
nótt við þau
áður en þú
fórst út!
Það sak-
ar ekki
að gera
það einu
sinni enn!
HARÐJAXL
Leikarinn Steven Seagal heimsótti
gamla bæinn í Varsjá á meðan á tökum
myndarinnar „Foreigner“ stóð í Póllandi.
Seagal stendur nú í málaferlum við mafíu-
samtök í Berlín.
Karlatíska í Mílanó:
Litríkir
stelpustrákar
ROMEO GIGLI
Sýning ítalska fatahönnuðarins Romeo Gigli vakti mikla lukku. Hann þótti afar litaglaður í
ár. Hér sést hann þakka fyrir sig ásamt hópi sýningarpilta að lokinni sýningu.
APPELSÍNUGULUR
Tískan þarf ekki alltaf að vera flókin. Hér er
langerma appelsínugulur bolur með ein-
földum hvítum axlaböndum. Þessi flík var
sýnd á samsýningu New York-hönnuða á
tískuvikunni sem nú stendur yfir í Milanó.
HEITT OG GOTT
Það væri nú ekki verra að vera vopnaður
þessum loðkraga í vetrinum sem er nú
loksins skollinn á okkur. Jakkinn er hönn-
un Gianfranco Ferre.
BLEIKT FLAUEL
Það hafa líklega ekki allir karlmenn
kjark í að ganga í þessum bleika flauels-
jakka. Hann er hugarsmíð tískuhúss
Ralph Lauren.
SILKIBAÐSLOPPUR
Það er líklega ekki ónotalegt að ganga um
heima hjá sér í þessari flík. Þetta er fjólu-
blár silkibaðsloppur sem er hannaður af
Rocco Barocco.
JÓI MILLJARÐARMÆRINGUR
Heitir í raun Evan Marriott og er verka-
maður sem hefur um 19 þúsund dollara
í laun á ári.
Mótmæli við nýjum
sjónvarpsþætti:
Svik og
prettir við
konur
SJÓNVARP Raunveruleikaþátturinn
Jói milljarðarmæringur eða Joe
Millionaire sem sýndur er í
bandarísku sjónvarpi hefur verið
harðlega gagnrýndur af einum
stærstu kvenréttindasamtökum
landsins. Samtökin mótmæla
þættinum á þeim forsendum að
þar sé ekki um raunverulega ást
að ræða heldur svik og pretti.
Í sjónvarpsþættinum fær Jói,
sem heitir réttu nafni Evan
Marriott, 50 milljónir dollara og
býr á lúxusheimili ásamt
nokkrum konum. Þar á hann að
finna sér hina einu réttu.
Konurnar sem taka þátt vita
ekki hvaða mann Jói hefur í raun
að geyma.
„Skilaboðin sem fólk fær er að
það sé í lagi að ljúga og svíkja
konur,“ sagði einn meðlimur
kvenréttindasamtakanna. ■