Fréttablaðið - 20.01.2003, Blaðsíða 30
30 20. janúar 2003 MÁNUDAGUR
Taminn líkt og
gamall reiðhestur
Jón Hjartarson, leikari og rithöfundur, er 61 árs í dag. Í tilefni dagsins
ætlar hann að bjóða konu og krökkum á einhvern hæfilega góðan
matsölustað.
61 ÁRS „Ég reikna nú með að eitt-
hvað lítilsháttar verði gert í til-
efni dagsins. Getur vel verið að
ég bjóði konunum og krökkunum
á einhvern hæfilega góðan mat-
stað. Ekkert í dýrari kantinum
þó. Þessir unglingar vilja ráða
ferðinni. Þeir vilja helst pizzu
eða eitthvað þvíumlíkt. Maður
verður að sæta þessari tísku sem
búið er að innleiða,“ segir Jón
Hjartarson, leikari og rithöfund-
ur – afmælisbarn dagsins.
Jón leikur nú um stundir í
Sölumaður deyr í Borgarleikhús-
inu. Hann jánkar því að það beri
vel í veiði fyrir sig sem leikara
að afmælisdaginn skuli bera upp
á mánudag því þeir dagar hafa
verið frá fornu fari fríkvöld leik-
ara.
„Annars verður þetta allt á ró-
legu nótunum. Bæði er að þetta
er nú ekki merkisafmæli og þeg-
ar maður er kominn á þennan
virðulega aldur er maður orðinn
svo taminn, líkt og gamall reið-
hestur, og lætur vel að stjórn.“
Í tengslum við hvort um
merkisafmæli sé að ræða eða
ekki beinist talið að umræðunni
um aldamótaárið, hvort það hafi
verið 2000 eða 2001. „Já, sam-
kvæmt því er þetta náttúrulega
stærri áfangi en ég hugði og er
þá að skríða á sjötugsaldurinn
núna fyrst.“
Þrátt fyrir þessa niðurstöðu
býst Jón ekki við neinum stór-
kostlegum afmælisgjöfum. „Ég
reikna nú frekar með að það
verði einhverjir tilburðir hjá
mínum nánustu að gleðja karlinn
en vona að menn fari ekki að
reisa sér hurðarás um öxl í þeim
efnum.“
Aðspurður um eftirminnileg-
ustu afmælisgjöfina kemst Jón í
vanda. Þegar hann varð fimm-
tugur hélt hann mikið hóf. „Ég
fékk heilmikið af gjöfum þá. Og
ég stend í þessum orðum töluð-
um fyrir framan eina þeirra sem
er karate-mynd eftir Tolla. Við
vorum saman í Taekwondo útí
Berlín, við vorum þar vetur sam-
tímis. Hún minnir mig á þann
tíma, sem var skemmtilegur.
Þetta var á árunum 1983 til 1984.
Ágæt gjöf hreint sem leiðir hug-
ann að þeim spörkum sem við
vorum að læra hjá kóreskum
meistara, ansi góðum. Tolli hélt
lengur tryggð við þau asnaspörk
en ég. Svo fékk ég mikið koníak
þá sem ég var lengi að torga með
góðra manna hjálp. Annars er
mér engin leið að gera þarna upp
á milli.“
jakob@frettabladid.is
TÍMAMÓTVIKUNESTI
AFMÆLI
HÁSKÓLANEMI „Við skulum athuga
að engin ákvörðun er fyrirliggj-
andi um að ég taki sæti á lista
Frjálslynda flokksins. Við Guðjón
A. Kristjánsson höfum rætt þetta
lauslega og þeir eru að undirbúa
sín mál. Ég er bara í startholun-
um,“ segir Hjálmar Blöndal, sem
er við nám í Viðskiptaháskólanum
á Bifröst og lætur vel af dvöl sinni
þar.
„Ég hef verið hér búsettur í
eitt og hálft ár og hefur aldrei lið-
ið betur. Allt til alls, náttúran,
fólkið og frábær skóli. Og Fram-
sóknarlyktin verður minni og
minni með hverju árinu hér. Eftir
að ég kom upp á Bifröst hafa ný
áhugamál komið fram. Ég fer í
langa göngutúra á gönguskíðum
og hef öðlaðist nýja sýn á lífið.“
Hjálmar hefur alltaf verið
áhugamaður um stjórnmál og
fylgist vel með. Þeir sem til hans
þekkja hefðu fremur talið hann
fylgjandi Sjálfstæðisflokknum að
málum en Frjálslynda flokknum.
„Enginn veit sína ævina. Ég hafna
því að vera talinn einhver tæki-
færissinni. Það vita þeir sem
þekkja mig að ég er fylginn mér
og staðfastur í skoðunum. Sjávar-
útvegsstefna Frjálslynda flokks-
ins er mér að skapi.“
Foreldar Hjálmars eru Guðjón
Baldursson, læknir í Reykjavík,
og Kristín Blöndal, hjúkrunar-
fræðingur í Garðabæ. Hann á
þrjú yngri systkini.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, er
fyrrum lærismeistari Hjálmars
frá því að þeir störfuðu saman á
DV, Hjálmar sem blaðamaður og
Össur ritstjóri. „Já, ég var læri-
sveinn Össurar og mér er sagt að
þegar hann spurði að hugsanlega
tæki ég sæti á lista Frjálslyndra
hafi hann mikið reynt að ná í mig
en ekki tekist. Hann er víst ekki
mjög sáttur en hann hlýtur að
skilja manna best að svona tæki-
færi bjóðast ekki oft.“ ■
Hjálmar Blöndal, nemi í viðskiptalögfræði,
er kandídat í annað sætið á lista Frjálslynda
flokksins í nýju Norðvesturkjördæmi á eftir
Guðjóni A. Kristjánssyni fyrir næstu alþing-
iskosningar.
Persónan
Fylginn sér og staðfastur í skoðunum
JÓN HJARTARSON LEIKARI
Eftirminnileg afmælisgjöf er karatemynd eftir Tolla en þeir tveir lögðu stund á
Taekwondo úti í Berlín á sínum tíma.
JARÐARFARIR
13.30 Haraldur Steingrímsson, húsa-
smíðameistari, verður jarðsunginn
frá Grafarvogskirkju.
14.00 María Njálsdóttir, dvalarheimil-
inu Höfða á Akranesi, verður jarð-
sungin frá Akraneskirkju.
14.00 María Guðbjörg Jónsdóttir, áður
til heimilis á Suðurgötu 14, Kefla-
vík, verður jarðsungin frá Keflavík-
urkirkju.
15.00 Hjálmar Júlíusson, Fellsmúla 12,
verður jarðsunginn frá Grensás-
kirkju.
15.00 Indriði Einarsson, bóndi, Mel-
um, Kjalarnesi, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju.
ANDLÁT
Olga Betty Antonsdóttir, Tjarnarbóli 6,
lést 17. janúar.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram Kára-
hnjúkavirkjun er áformuð á hálendinu
austan Vatnajökuls.
Leiðrétting
HJÁLMAR BLÖNDAL
„Össur er víst ekki sáttur en hann hlýtur
að skilja manna best að svona tækifæri
bjóðast ekki oft.“
NOVUS B 225
Gatar 25 blöð..
Með kvarða og
læsingu
Verð 635 kr
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
www.mulalundur.is
Alla daga
við hendina
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK.
Tilboðið gildir til 31. janúar 2003
Kjölmiðar
með ártali
Skilblöð
af öllum
gerðum
og góðum
verðum
STABILO kúlupenni
10 í pakka á 299 kr/pk
LÁRÉTT: 1 sáldra, 4 skemmir, 9 úfna, 10 ljómi, 12 naut, 13 henda, 15 rotnun,
17 tarfur, 19 fjármuni, 20 feitu, 22 hindra, 24 spýja, 25 klifur, 27 svif, 29 sauð,
32 spil, 34 karlmannsnafn, 35 umhyggjuna, 36 ríki, 37 nirfil.
LÓÐRÉTT:
1 mann,
2 stillir,
3 hagur,
4 auðveldu,
5 óhreinka,
6 hár,
7 þættir,
8 fræga,
11 kútur,
14 drakk,
16 buldi,
18 efi,
20 lánið,
21 þvegið,
23 útbreidd,
26 sefaði,
28 vind,
30 angrar,
31 slæmt,
33 trekk.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 blæs, 4 raskar, 9 stjákla, 10 súta, 12 skyn,
13 trufli, 15 snös, 17 Lára, 19 afl, 20 hlein, 22 karla, 24 áll, 25 saur, 27 viss, 29
ranga, 32 kæsa, 34 ráin, 35 atorkan, 36 aurinn, 37 tifi.
Lóðrétt: 1 best, 2 æstu, 3 stafli, 4 rásir, 5 akk, 6 slys, 7 kannar, 8 reisla, 11 úr-
illi, 14 láns, 16 öflugi, 18 akur, 20 hávaða, 21 elskar, 23 Ararat, 26 akarn, 28
sæti, 30 náni, 31 andi, 33 son.
KROSSGÁTA
Borðið fleirib a n a n a .
Besti skyndibit-
inn. Í þægilegum
umbúðum. Ekk-
ert klístur.
Steikið banana. Óvænturglaðningur sem meðlæti með
flestum réttum.
Fiskur verður
suðrænn á diski
með steiktum
banana. Kjöt-
réttir verða sæt-
ari.
Bræðið súkku-laði og hellið
yfir banana. Eft-
irréttur á heims-
m æ l i k v a r ð a .
Fallegur og vek-
ur eftirtekt.
Notið bananasem skraut.
Bananakippa er
eins og óður til
fegurðar innar
hvort sem er í
ávaxtaskál eða uppi á vegg.
Bananar erulíka eins og
klukka. Þroskast
hratt og á þeim
má sjá að tíminn
stendur ekki í
stað. Banani er lífið í hnotskurn.
Hafið banana ávalt innan seil-
ingar.
Simpson-fjölskyldan.
Botnleðja.
Björgvin Þorsteinsson.
1.
2.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
3.
Hvað er það versta sem hendirtvo hestamenn?
Þegar þeir hnakkrífast.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Hinn fluggáfaði liðsmaðurVinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs Ármann Jakobs-
son telur Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur hafa selt sig ódýrt með því
að heimsækja bullukollana í 70
mínútum á tónlistarstöðinni Popp-
tíví. Honum fannst hún þó nokkuð
svöl þegar hún skellti einhverjum
ógeðsdrykk, sem umsjónarmenn
þáttarins brugguðu handa henni, í
sig. Ármann segist nú vilja vita
hvort „Skallinn“, væntanlega Stein-
grímur J. Sigfússon, geti komið
þessum drykk niður. Bresti Skall-
ann kjark stingur Ármann svo upp
á því á bloggsíðu sinni á Netinu að
VG setji systur sína, Katrínu Jak-
obsdóttur, til höfuðs Ingibjörgu en
hún „hefur étið súrmat frá barns-
aldri og finnst vondur matur al-
mennt betri en góður.“ Vinstri
grænir eiga greinilega mótleiki
gegn flestum uppátækjum Sam-
fylkingarinnar.
FRÉTTIR AF FÓLKI