Fréttablaðið - 08.05.2003, Side 6
6 8. maí 2003 FIMMTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 73.49 -0,50%
Sterlingspund 118.14 -0,66%
Dönsk króna 11.28 0,00%
Evra 83.72 -0,07%
Gengisvístala krónu 118,65 -0,16%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 177
Velta 1.631 m
ICEX-15 1.415 -0,09%
Mestu viðskipti
SÍF hf. 277.800.000
Tryggingamiðstöðin hf. 102.000.000
Pharmaco hf. 83.164.000
Mesta hækkun
Marel hf. 1,90%
Flugleiðir hf. 1,14%
Hampiðjan hf. 1,10% 3%
Mesta lækkun
Vátryggingafélag Íslands hf. -1,16%
Síldarvinnslan hf. -1,10%
Tryggingamiðstöðin hf. -0,97%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8550,3 -0,4%
Nasdaq*: 1510,7 -0,9%
FTSE: 3992,9 -0,3%
DAX: 3006,7 -2,0%
NIKKEI: 8109,8 0,3%
S&P*: 932,6 -0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Félagsíbúðir iðnnema ætla að óskaeftir gjaldþrotaskiptum. Hvað heitir
húseign félagsins við Hverfisgötu sem er
veðsett langt umfram markaðsvirði?
2Hvað heitir framkvæmdastjóri Al-þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem
átti fund með evrópskum heilbrigðisráð-
herrum í vikunni?
3Tvítugri Grafarvogsmær hefur veriðboðið að auglýsa nærfatnað fyrir einn
þekktasta framleiðanda í heimi. Hvað
heitir vörumerkið?
Svörin eru á bls. 46
MENNTAMÁL „Ég hef haft eitt ár í
ráðuneytinu og það ber að líta á
það ár í heild,“ segir Tómas Ingi
Olrich menntamálaráðherra um
frétt Fréttablaðsins í gær um 1,7
milljarða fjárskuldbindingar
ráðuneytisins á liðnum vikum til
einstakra framkvæmda í mennta-
og menningarmálum. Í fréttinni
var greint frá því að um tveir
þriðju af þessum fjárskuldbind-
ingum hafi runnið til kjördæmis
ráðherrans.
Tómas Ingi hafnar þeim
útreikningum ekki, þó svo að
hann vilji taka fram að 64 millj-
óna styrkur til menningarmála á
Akureyri, sem greinir frá í
upptalningu með fréttinni, sé
rekstrarstyrkur sem byggi á
eldri samningum en ekki styrk-
ur til framkvæmda. Tómas legg-
ur áherslu á að í eins árs
ráðherratíð sinni hafi hann ein-
beitt sér að því að ganga frá
samningum um fjárskuldbind-
ingar ríkisins, samkvæmt sam-
þykktum ríkisstjórnar, mun víð-
ar en í sínu eigin kjördæmi.
Hann nefnir í því sambandi
framhaldsskólana á Suðurnesj-
um og á Vesturlandi, sem hlotið
hafa fjárframlög til bygginga-
framkvæmda. Þá segir hann
ráðuneytið hafa beitt sér fyrir
því að ná samkomulagi við
Reykjavíkurborg um uppbygg-
ingu framhaldsskólanna þar, og
að slíkt samkomulag sé á borð-
inu.
„Þá hef ég einnig undirritað
skuldbindingar fyrir hönd ríkis-
sjóðs út af tónlistar- og ráð-
stefnuhúsi í Reykjavík upp á 3,5
milljarða,“ segir Tómas, „Og ég
hef líka undirgengist fjárskuld-
bindingar við Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins. Þetta er að miklu
leyti á Suðvesturlandi.“
Tómas segir það ekki hafa
verið að yfirlögðu ráði að svo
margir samningar hafi verið
gerðir í kjördæmi hans sjálfs nú
í aðdraganda kosninganna.
„Tímasetningar á þessum samn-
ingum hafa farið eftir því
hversu langt þessir hlutir hafa
verið komnir,“ segir Tómas.
„Allt hefur átt sinn eðlilega að-
draganda.“
gs@frettabladid.is
TÓMAS INGI OLRICH
Vísar því á bug að hann hafi gert einstaklega vel við sitt eigið kjördæmi og látið önnur mæta afgangi í ráðherratíð sinni.
Segir Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra um samninga sem hann hefur gert
undanfarið um fjárframlög til verkefna í mennta-, menningar- og íþróttamálum.
KAUPMANNAHÖFN, DR Dómsmála-
ráðherra Danmerkur, Lene Esp-
ersen, hefur tilkynnt um róttæk-
ar aðgerðir til að breyta „frírík-
inu“ Kristjaníu, sem margir Ís-
lendingar hafa heimsótt, í venju-
legt íbúðahverfi, líkt og í öðrum
hlutum Kaupmannahafnar.
Fyrsta skrefið er að stöðva
sölu á fíkniefnum, sem er einn
aðalatvinnuvegur íbúa svæðis-
ins. Annað skref er að gera lög-
reglu virka og sjáanlega alls
staðar allan sólarhringinn. Eftir-
leiðis mun lögregla beina sjón-
um sínum að því fólki sem kaup-
ir fíkniefnin en hingað til hafa
kaupendur að mestu verið látnir
í friði.
Þann 1. janúar 2004 eiga að
vera tilbúnar tillögur um nýtt
skipulag svæðisins og skal taka
það til framkvæmda eins fljótt
og hægt er. Eftir það greiða íbú-
ar Kristjaníu leigu af húsnæði
sínu en það er nýlunda fyrir ann-
ars sérlundað fólkið sem þarna
hefur búið í langan tíma.
„Fyrst pólitíkusarnir vilja
þetta tökum við að sjálfsögðu
þátt en þá verður fólk að vita að
önnur verkefni lenda neðar á
forgangslistanum,“ sagði
yfirmaður Kaupmannahafnar-
lögreglunnar, Richard Ander-
sen, í viðtali við danska ríkisút-
varpið. Eru lögreglumenn
hræddir um að lítill mannskapur
sé til reiðu fyrir jafn stórt verk-
efni og að rýma Kristjaníu.
Víst er að margir munu sakna
fríríkisins, sem er orðið vinsæll
áfangastaður fyrir ferðamenn.
Upphaflega var Kristjanía fé-
lagsleg tilraun sem fór út um
þúfur en þrátt fyrir stöku rassí-
ur gegnum tíðina hafa lögreglu-
og borgaryfirvöld ekki séð
ástæðu til að hræra mikið í mál-
efnum hennar fyrr en nú. ■
FRÁ KAUPMANNAHÖFN
Brátt heyrir Kristjanía sögunni til.
Dönsk yfirvöld fengið nóg af fríríkinu:
Sjálfstæði Kristjaníu fyrir bí
PEKING, AP Bráðalungnabólgan er
banvænni en flestir aðrir öndun-
arfærasjúkdómar, samkvæmt
niðurstöðum nýrrar breskrar
rannsóknar. Hjá eldra fólki eru
innan við helmingslíkur á því að
ná bata.
Niðurstöðurnar, sem birtar
voru í læknatímaritinu The
Lancet, eru byggðar á rannsókn á
útbreiðslu HABL í Hong Kong.
Sýna þær að um fimmti hver mað-
ur sem lagður hefur verið inn á
sjúkrahús vegna bráðalungna-
bólgu hefur þurft að lúta í lægra
haldi fyrir sjúkdómnum. Um 55
prósent sjúklinga yfir 60 ára aldri
hafa látist en meðal yngra fólks er
dánartíðnin að líkindum ekki
nema um sjö prósent. Það er engu
að síður talsvert hærra hlutfall en
almennt þekkist meðal öndunar-
færasjúkdóma, að sögn sérfræð-
inga.
Dánartíðni HABL hefur hingað
til verið nokkuð á reiki en í skýrsl-
um Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar er því haldið fram að hún sé
á bilinu sex til tíu prósent.
Að minnsta kosti 479 manns
hafa látist af völdum bráðalungna-
bólgunnar í heiminum öllum. Yfir
6.700 manns hafa veikst og eru
hundruð þeirra enn í lífshættu.
FÉLAGI KVADDUR
Vinnufélagar fylgja 38 ára gömlum hjúkr-
unarfræðingi til grafar í Hong Kong.
Rannsókn á eðli og útbreiðslu bráðalungnabólgunnar:
Banvænni en aðrir
öndunarfærasjúkdómar
Ríkisendurskoðun:
Sólheimar
í geymslu
STJÓRNSÝSLA Skýrsla Ríkisendur-
skoðunar um stjórnsýsluúttekt á
rekstri Sólheima í Grímsnesi
fimm ár aftur í tímann er tilbúin í
prentsmiðju en bíður birtingar
þar til eftir kosningar. Þetta kom
fram í fréttum Stöðvar 2.
Í fyrri skýrslu Ríkisendurskoð-
unar um Sólheima var sett fram
mjög hörð gagnrýni á reksturinn.
Eins og sagt hefur verið frá í
Fréttablaðinu á heldur ekki að
birta stjórnsýsluúttekt Ríkisend-
urskoðunar á Flugmálastjórn fyrr
en að kosningunum loknum. Sú út-
tekt hófst fyrir tæpu ári. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
VI
LH
EL
M
Eðlileg fjárútlát