Fréttablaðið - 08.05.2003, Side 8
8 8. maí 2003 FIMMTUDAGUR
Stórhuga
Við skulum fara
Stórasand.
Halldór Blöndal
leitar eftir stuðningi.
Morgunblaðið, 7. maí.
Að standa við stóru orðin
Margir sögðust aldrei ætla í
gegnum þau en þeir sömu bíða
nú óþreyjufullir ef þau lokast í
tvo klukkutíma.
Páll Sigurjónsson, fráfarandi framkvæmdastjóri
Ístaks, um Hvalfjarðargöngin.
Viðskiptablaðið, 7. maí.
Kannski ekki í þjóðskrá?
Ég hef reyndar furðað mig á því
hvers vegna í ósköpunum ég
hafi aldrei lent í úrtaki í þessum
könnunum.
Arna Schram, blaðamaður.
Morgunblaðið, 7. maí.
Orðrétt
Förðunarnám
sem gefur f jö lbreyt ta mögule ika
Sumarnámskeið: Kópavogi, 12. maí 2003
Akureyri, 19. maí 2003
Haustnámskeið: Kópavogi, 15. sep 2003
Akureyri, 22. sep 2003
Förðunarskóli NO NAME
Hjallabrekka 1 - Kópavogi
Srandgata 25 - Akureyri
hringdu og fáðu nánari upplýsingar
í síma 588 6525 eða á heimasíðu okkar,
www.noname.is
Nemendur NO NAME
sýndu sig og sönnuðu á
förðunarkeppni Tískan á
Hótel Íslandi, mars 2003:
Vörumerkið NO NAME er tákn um gæði og
fagmennsku. Bæði er það tákn um hágæða
snyrtivörur og einnig eitthvert besta og
reyndasta fagfólk sem völ er á atvinnu-
mennsku í förðun eða sem áhugamál, þá er
Förðunarskóli NO NAME svarið
Elva Hrund Þórðardóttir -
SVARTHVÍT FÖRÐUN
Harpa Lind Harðardóttir -
SMOKY FÖRÐUN
Silja Þórðardóttir -
TÍMABILAFÖRÐUN
Silja Þórðarrdóttir - KVÖLDFÖRÐUN
Harpa Lind Harðardóttir -
BRÚÐARFÖRÐUN
Ásthildur Davíðsdóttir -
LITADÝRÐ
Kennarar með áralanga reynslu í faginu:
Kristín Stefánsdóttir - Birta Björnsdóttir -
Embla Sigurgeirsdóttir - Andrea Magnúsdóttir -
Kristín Hlín Pétursdóttir.
T í s k u - o g l j ó s m y n d a f ö r ð u n
H æ g t a ð v e l j a u m 6 e ð a 1 2 v i k u r
Hugrún
Malmquist
var í 1. sæti
nema.
Agnes Björk
Helgadóttir
var í 2. sæti
nema.
WASHINGTON, AP Gamalreyndur
embættismaður, L. Paul Bremer,
mun hér eftir hafa yfirumsjón með
uppbyggingarstarfi og stjórnar-
myndun í Írak fyrir hönd banda-
rískra yfirvalda. Bremer, sem var
formlega útnefndur af George W.
Bush Bandaríkjaforseta, er nú
æðsti embættismaður Bandaríkj-
anna í Írak.
Útnefning Bremer er liður í því
að koma á sáttum á milli utanríkis-
ráðuneytisins og varnarmálaráðu-
neytisins varðandi tilhögun mála í
Írak. Utanríkisráðherrann Colin
Powell hafði óskað eftir því að
meira vald yrði sett í hendur borg-
aralegra stjórnvalda á meðan
Donald Rumsfeld varnarmálaráð-
herra taldi rétt að herinn gegndi
ráðandi hlutverki í uppbyggingar-
starfinu.
Í ræðu sem Bush forseti hélt í
tilefni af útnefningunni fór hann
stórum orðum um ágæti Bremer.
„Við erum að senda af stað einn af
okkar allra hæfustu þegnum.“
Bremer, sem er 61 árs, er fyrrum
sendiherra Bandaríkjanna í
Hollandi. Hann stýrði auk þess um
nokkurra ára skeið aðgerðum
bandarískra yfirvalda gegn hryðju-
verkum og á sínum yngri árum
starfaði hann sem aðstoðarmaður
tveggja fyrrum utanríkisráðherra.
Embætti Bremers heyrir beint
undir utanríkisráðuneytið og mun
hann gefa Colin Powell daglega
skýrslu af gangi mála í Írak. Jay
Garner, sem verið hefur í hlutverki
eins konar landstjóra í Írak, verður
undirmaður Bremers. ■
ÁSTRALÍA, SMH Ástralska morgun-
blaðið Sydney Morning Herald
skýrði frá því að blaðið hefði und-
ir höndum vikugamla upptöku af
rödd Saddams Husseins, þar sem
hann hvetur Íraka af öllum trúar-
brögðum til að hrekja innrásar-
herinn á brott og lofar glæstum
sigri innan tíðar.
Enn er verið að rannsaka hvort
röddin tilheyri Saddam en upptök-
una fengu blaðamenn SMH nánast
upp í hendurnar á hóteli í Bagdad.
„Algjör heppni,“ sagði Ed
O’Loughlin, fréttastjóri blaðsins.
„Tveir menn nálguðust blaða-
mennina og buðu þetta. Það er eng-
in ástæða ennþá til að vefengja
upptökuna, mennirnir vildu engin
laun fyrir og hurfu á brott áður en
mínir menn áttuðu sig.“
Saddam Hussein er enn ófund-
inn. Skilaboð hans eru þvert á þá
stöðu sem uppi er í Írak og vekja
spurningar um veruleikaskyn
Saddams ef það er í raun hann
sem upptakan er af. ■
Þaulreyndur embættismaður sendur til Íraks:
Powell fékk vilja
sínum framgengt
Á FUNDI Í HVÍTA HÚSINU
Bush Bandaríkjaforseti segir að L. Paul Bremer búi yfir ómetanlegri reynslu sem muni
koma að góðum notum í uppbyggingarstarfinu í Írak.
Segjast hafa upptöku með Saddam:
Lofar Írökum sigri
SADDAM HUSSEIN
Skilaboðin í upptökunni eru ekki
í takt við aðstæður í Írak.
AUÐLINDIN „Þetta eru að öllu leyti
einkaskoðanir Stefáns Jóns sem ég
held að séu raunar fræðilegar
vangaveltur af hans hálfu,“ segir
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, um ummæli
Stefáns Jóns Hafstein um fiskveiði-
kerfið í útvarpsþætti Hallgríms
Thorsteinssonar á Útvarpi Sögu.
Á Útvarpi Sögu sagði Stefán
Jón að réttlátara væri að bjóða út
auðlindina á alþjóðamarkaði held-
ur en að nokkrir einstaklingar
fengju þær til eignar. „Hann hef-
ur fullan rétt á að hafa þessar
skoðanir en þær koma Samfylk-
ingunni ekkert við,“ segir Össur.
„Viðhorf af þessu tagi eru alls
óskyld stefnu Samfylkingarinnar,
sem hefur aldrei rætt, hvað þá
áformað, að bjóða aflaheimildir út
á alheimsmarkaði. Það er svo fjar-
ri öllu lagi að það tekur því ekki
að þvælast um það.“ ■
Össur Skarphéðinsson:
Einkaskoðanir
Stefáns Jóns
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Þessar skoðanir koma
Samfylkingunni ekkert við.