Fréttablaðið - 08.05.2003, Qupperneq 12
12 8. maí 2003 FIMMTUDAGUR
PIM FORTYUN HEIÐRAÐUR
Ný stytta af hollenska stjórnmálamannin-
um Pim Fortyun var afhjúpuð í Rotterdam
í tilefni af því að ár er liðið frá því að hann
var skotinn til bana. Nýtt hvítt túlípanaaf-
brigði var nefnt í höfuðið á Fortyun til þess
að heiðra minningu hans enn frekar.
ÚTHLUTUN Pokasjóður verslunarinn-
ar hefur úthlutað 60 milljónum til
54 aðila víðsvegar á landinu. Það
var í áttunda skipti sem úthlutað er
úr sjóðnum en um 300 milljónum
hefur verið úthlutað frá upphafi.
Sjóðurinn fær tekjur af sölu
plastburðarpoka í verslunum en
160 verslanir víða um land greiða í
hann. Hlutverk sjóðsins er að legg-
ja málum lið sem horfa til al-
mannaheilla á sviði umhverfis-
mála, mannúðar- og heilbrigðis-
mála, menningar og lista og íþrótta
og útivistar.
Umsóknarfrestur rann út 3.
mars sl. og bárust um 550 umsókn-
ir. Stjórn sjóðsins skipa Bjarni
Finnsson, formaður, Höskuldur
Jónsson, frá ÁTVR, Jóhannes Jóns-
son, frá Baugi, og Sigurður Á. Sig-
urðsson, frá samtökum samvinnu-
verslana og Kaupási. ■
Menningarhátíð:
Vor í
Árborg
MENNING Menningarhátíðin Vor í
Árborg verður haldin í lok maí.
Hátíðin stendur yfir í fjóra daga,
frá 22. til 25. maí, og verður hún
bæði umfangsmikil og fjölbreytt.
Áhersla verður lögð á að virkja
heimamenn, þar sem margir og
fjölhæfir listamenn búa í sveitar-
félaginu. Í boði verður meðal ann-
ars ríflega tugur myndlistar- og
ljósmyndasýninga og fimmtán
tónlistarviðburðir eru bókaðir. Sú
stefna hefur verið mörkuð að frítt
sé inn á svo til alla viðburði hátíð-
arinnar sem er styrkt af sveitar-
félaginu, fyrirtækjum og félaga-
samtökum. ■
NEYTENDUR Valgerður Sverrisdótt-
ir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
undirritaði í dag nýjan þjónustu-
samning við Neytendasamtökin. Í
samræmi við ákvæði samningsins
taka Neytendasamtökin að sér að
veita neytendum leiðbeiningar-
þjónustu og aðstoð vegna kvart-
ana þegar vörur eru gallaðar eða
þjónustu er áfátt.
Jóhannes Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna segir að samningurinn snú-
ist um að neytendur geti fengið
aðstoð við að ná fram rétti sínum.
„Ég vek hins vegar athygli á því
að samkvæmt samningnum fáum
við 10 milljónir en reksturinn
kostar okkur 27 milljónir á ári.“
Jóhannes segir líta svo á að
samningur sé áfangi en Neytenda-
samtökin geri kröfu um að stjórn-
völd greiði allan kostnaðinn eins
og tíðkist í öðrum löndum. „Það
þarf að vera til leið utan dómstóla-
kerfisins því kostnaður við dóm-
stólaleiðina er í flestum tilfellum
allt of hár,“ segir Jóhannes Gunn-
arsson. ■
STJÓRNMÁL Minnkandi fylgi Sam-
fylkingarinnar í skoðanakönnun-
um má einna helst rekja til
hræðsluáróðurs stjórnar-
flokkanna og ýmissa hagsmuna-
aðila í sjávarútvegi að sögn Ingi-
bjargar Sólrún Gísladóttir, for-
sætisráðherraefnis Samfylking-
arinnar.
„Þetta hefur
verið mikil orra-
hríð, enda miklir
s é r h a g s m u n i r
þarna á ferðinni,“
segir Ingibjörg
Sólrún. „Um 80%
þjóðarinnar hefur
lýst andstöðu sinni við kvótakerf-
ið en nú hefur það verið prentað
inn að ef því verði breytt fari allt
á annan endann. Svona hræðslu-
áróður getur virkað.“
Aðspurð segir hún að þeir
hagsmunaaðilar sem helst hafi
beitt sér gegn flokknum séu
Landssamband íslenskra útvegs-
manna og Vinnslustöðin í Vest-
mannaeyjum. Hún segist hins
vegar ekkert gefa eftir þótt
flokkurinn hafi mælst undir kjör-
fylgi í könnun Gallup í fyrradag
og rétt yfir kjörfylgi í síðustu
könnun Fréttablaðsins.
„Maður er í pólitík til þess að
koma ákveðnum hugmyndum á
framfæri og ákveðnum stefnu-
miðum og það eru þau sem gilda.
Kosningar eru enginn spilagald-
ur. Þetta snýst um málefni og þau
breytast ekkert á síðustu vik-
unni. Á endanum verða menn
bara að standa með sjálfum sér
og sínum málefnum.“
Samkvæmt niðurstöðum síð-
ustu skoðanakannana heldur
stjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks velli. Ingi-
björg Sólrún segist alls ekki vera
viss um að það verði niðurstaðan
á kjördag. Það yrðu allavega mik-
il vonbrigði ef sú yrði reyndin.
„Við höfum ekki trú á því að
það sé það sem fólk vill. Að hér
verði ríkisstjórn undir forystu
Sjálfstæðisflokksins í 16 ár. Það
er geysilega mikil hreyfing á
fylginu og ég tel að staðan núna
bjóði upp á mörg tækifæri og
möguleika. Það er bara spurning
um að koma auga á þá og nýta þá
og það munum við gera.“
Ingibjörg Sólrún segir að eftir
sem áður sé meginmarkmið Sam-
fylkingarinnar að koma stjórn-
inni frá.
trausti@frettabladid.is
Pokasjóður verslunarinnar:
Sextíu milljónum úthlutað
UM 60 MILLJÓNUM ÚTHLUTAÐ
Stjórnarmenn í Pokasjóði, Höskuldur Jóns-
son frá ÁTVR, Jóhannes Jónsson frá Baugi
og Sigurður Á. Sigurðsson frá samtökum
samvinnuverslana og Kaupási, afhenda
ungum styrkþegum skerf úr sjóðnum.
Nýr þjónustusamningur:
Neytendur fá aðstoð
NÝR SAMNINGUR UNDIRRITAÐUR
Neytendasamtökin fengu 10 milljónir en
þurfa 27 segir Jóhannes Gunnarsson.
Markmiðið er að
koma stjórninni frá
Samfylkingin dalar verulega í skoðanakönnunum. Ingibjörg Sólrún
segir að stjórnarflokkarnir og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi beiti
hræðsluáróðri. Trúir ekki öðru en að fólk vilji breytingar.
■
„Þetta hefur
verið mikil
orrahríð enda
miklir sérhags-
munir þarna á
ferðinni.“
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar segir að þeir hagsmunaaðilar sem helst hafi beitt sér gegn flokknum séu Landssamband
íslenskra útvegsmanna og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum.
BLÁU HÚSIN FAXAFENI
SÍMI 553 6622
www.hjortur.is.
Opnunartími: mánudaga-föstudaga 10-18 • laugardaga 11-16
V o r ú t s a l a
25-50%
fimmtudag, föstudag,
laugardag og mánudag.