Fréttablaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 26
26 8. maí 2003 FIMMTUDAGUR
FRAMBOÐ „Við fáum mjög sterk
viðbrögð við því að fólki finnst
forgangsröðunin vera röng, að
stjórnmálamennirnir séu á röng-
um stað að verja þessu sameigin-
lega fé okkar,“ segir Guðmundur
G. Þórarinsson, formaður Nýs
afls. Þetta ásamt umræðu um æv-
intýralega eignatilfærslu á und-
anförnum misserum, hvort sem
er í gegnum
fiskveiðikerfið
eða fjármála-
markaði, beri
hátt í kosninga-
baráttu flokks-
ins.
„Við erum
mikið að tala um
að það verði að
afnema verð-
tryggingu,“ seg-
ir Guðmundur
og tiltekur
dæmi. „Við
bendum á að
þegar spænsku
agúrkurnar eru
uppseldar og verð hækkar þess
vegna, þá hækka skuldir lands-
manna. Þetta er náttúrlega gamalt
kerfi sem er að vernda fjár-
magnseigendur. Allar sveiflur
bitna á lántakendum.“
Lífeyrissjóðir gagnrýndir
„Við tölum um lífeyrissjóðina
og það sem er að gerast á fjár-
magnsmarkaði. Lífeyrissjóðirn-
ir eru sekir um margt. Þeir ferð-
ast um heiminn, kaupa hlutafé í
vafasömum fyrirtækjum og
missa niður ávöxtunina þannig
að lífeyririnn skerðist,“ segir
Guðmundur. Hann telur að þetta
valdi því einnig að lífeyrissjóð-
irnir kaupi ekki húsbréf. „Af-
föllin af þeim hafa aukist og
voru 12-15% um tíma. Sem aftur
hafði þau áhrif að unga fólkið
sem er að fá lán er miklu skul-
dugra en ella.“ Guðmundur seg-
ir afleiðinguna af stjórn lífeyr-
issjóðanna tvíþætta. „Lægri líf-
eyrir vegna skertra sjóða og
auknar skuldir unga fólksins.“
Guðmundur er þaulreyndur í
kosningabaráttu, hefur setið
hvort tveggja á þingi og í borg-
arstjórn fyrir Framsóknarflokk-
inn. Hann segir mikinn mun á
þessari kosningabaráttu og
fyrri baráttum sem hann hefur
tekið þátt í. „Ég upplifi þessa
kosningabaráttu þannig að fólk
taki okkur afskaplega vel, alls
Á KOSNINGAFUNDI Á LANDAKOTSSPÍTALA
Guðmundur segir að sér sé mun betur tekið nú en þegar hann var í kosningabaráttu á árum áður. Svo kunni að vera að kjósendur séu
orðnir jákvæðari í garð vinnustaðaheimsókna en áður.
Greidd atkvæði falla
aldrei dauð niður
Guðmundur G. Þórarinsson, formaður Nýs afls, gagnrýnir vitlausa for-
gangsröðun hinna stjórnmálaflokkanna. Spjótunum er líka beint að líf-
eyrissjóðunum, sem Guðmundur segir engan veginn vera að standa sig.
„Þeir ferð-
ast um heim-
inn, kaupa
hlutafé í
vafasömum
fyrirtækjum
og missa nið-
ur ávöxtunina
þannig að líf-
eyririnn
skerðist.
KOSNINGAR „Spurningar sem fólk
sendir inn á kosningavefinn
www.kosning2003.is skiptast
eftir tímabilum og fara þær
mikið eftir umfjöllun í fjölmiðl-
um hverju sinni,“ segir Friðjón
R. Friðjónsson, vefstjóri Dóms-
og kirkjumálaráðuneytisins.
Vefurinn er vel sóttur og nú síð-
ustu dagana fyrir kosningar eru
um eitt þúsund gestir á dag.
Friðjón segir að algengustu
spurningarnar séu um utankjör-
fundaratkvæði og skiptingu
kjördæma. Einnig komi spurn-
ingar um opnunartíma kjörstaða
og hvar þeir eru. Hann vill
benda fólki á að sveitarfélögin
og kjörstjórnir á hverjum stað
sjái um hvernig þeim málum sé
háttað. Á vef Reykjavíkur-
borgar www.rvk.is geta Reyk-
víkingar slegið inn kennitölu
sína og fengið uppgefinn
kjörstað og kjördeild. Friðjón
segir kosningavefinn létta mikið
á spurningum í gegnum síma
því þar sé hægt að finna nánast
allt sem kjósendur þurfa að vita
um kosningarnar. ■
KOSNINGAVEFUR
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið starfrækir upplýsingavef fyrir kjósendur.
Kosningar 2003:
Fyrirspurnir
og svör á vefnum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M