Fréttablaðið - 08.05.2003, Page 30
■ ■ FUNDIR
16.15 Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir
og Elsa Sigríður Jónsdóttir lektorar
halda fyrirlestur á vegum Rannsóknar-
stofnunar KHÍ í salnum Skriðu í Kenn-
araháskóla Íslands við Stakkahlíð. Í fyr-
irlestrinum, sem nefnist Getur Rauð-
hetta verið brún?, fjalla þær um rann-
sókn á fjölmenningarstarfi í leikskólan-
um Lækjaborg.
17.30 Hilmar J. Malmquist líffræð-
ingur flytur fræðsluerindi um lífríki El-
liðavatns í Kórnum, fundarsal á 1. hæð
Bókasafns Kópavogs.
20.00 Félagar úr ritlistahópi Kópa-
vogs lesa úr verkum sínum á Café Borg,
Hamraborg 10.
20.00 Sumarið og sorgin er yfir-
skrift síðasta fræðslufundar vetrarins hjá
Nýrri dögun, samtökum um sorg og
sorgarviðbrögð, sem verður haldinn í
Safnaðarheimili Háteigskirkju, 2. hæð.
Séra Halldór Reynisson mun leiða um-
ræðuna með þátttöku syrgjenda.
■ ■ ÚTIVIST
14.00 Rútuferð fyrir eldri borgara
verður farin frá Gjábakka og Gullsmára
í Kópavogi. Skoðaðir verða þingstaður-
inn Þingnes við Elliðavatn og gamli
þingstaðurinn á Kópavogstúni. Farar-
stjórar eru Björn Þorsteinsson hjá
Kópavogsbæ og Guðmundur Ólafsson
fornleifafræðingur. Kaffi og meðlæti á
Gjábakka að ferð lokinni.
■ ■ TÓNLIST
18.00 Nemendatónleikar Fjöl-
menntar, fullorðinsfræðslu fatlaðra,
verða haldnir í Salnum, Kópavogi í til-
efni af Evrópuári fatlaðra. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
20.00 Tónleikar Kvennakórs
Kópavogs og Karlakórs Kópavogs
verða í Kópavogskirkju. Einsöngvarar
á tónleikunum verða þær Sigríður Sif
Sævarsdóttir og Inga Þórunn Sæ-
mundsdóttir, undirleikari verður Juli-
an Hewlett og stjórnandi beggja kóra
er Natalia Chow Hewlett.
■ ■ DANSLIST
20.00 Íslenski dansflokkurinn
fagnar 30 ára starfsafmæli nú í byrjun
maí með sýningu í Borgarleikhúsinu
þar sem sýnd verða brot úr nokkrum af
eftirminnilegust verkum flokksins og
frumsýnt verður nýtt verk eftir Láru Stef-
ánsdóttur. Hljómsveitin Skárren ekkert
flytur lög úr eldri verkum auk þess sem
Egill Ólafsson og Jóhanna Linnet flytja
lög úr sýningunni Ég dansa við þig.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Rauða spjaldið eftir Kjartan
Ragnarsson og Sigríði Margréti Guð-
mundsdóttur verður sýnt á Stóra sviði
Þjóðleikhússins.
20.00 Kvetch eftir uppreisnar-
manninn Steven Berkoff á Nýja sviði
Borgarleikhússins í samstarfi við Á
senunni.
20.00 Gesturinn eftir Eric-
Emmanuel Schmitt á Nýja sviði Borgar-
leikhússins verður sýndur nokkrum
sinnum vegna fjölda áskorana.
20.00 Einleikurinn Sellófon eftir
Björk Jakobsdóttur í NASA við Austur-
völl.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Englishman & Shangoband
frá Jamaíku ljúka reggíhátíðinni á Grand
Rokk í kvöld.
22.00 Valur úr Buttercup og
Steinarr úr Dead Sea Apple spila uppá-
haldslögin ykkar á Café Amsterdam.
22.30 Furstarnir spila á Hverfis-
barnum ásamt Geir Ólafssyni og Har-
ald Burr.
■ ■ SÝNINGAR
Fyrsta einkasýning Markúsar Þórs
Andréssonar hófst um helgina í Engla-
borg, Flókagötu 17. Húsið byggði list-
málarinn Jón Engilberts sem vinnustofu
og íbúð handa sér og fjölskyldu sinni
skömmu eftir stríð. Í húsinu er stór salur
sem nú er í fyrsta sinn lagður í hendur
utanaðkomandi listamanns.
30 8. maí 2003 FIMMTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
5 6 7 8 9 10 11
MAÍ
FimmtudagurS
umarið reynist syrgjendum
oft erfiður tími,“ segir séra
Halldór Reynisson og tilgreinir
þrjár meginástæður fyrir því. „Í
fyrsta lagi vegna þess að ýmsar
hefðir og venjur bundnar sumr-
inu eru oft mjög sterkt tengdar
fjölskyldunni. Þá fer fólk í ferða-
lög og í sumarbústaði. Í öðru lagi
má nefna að fólk er oft í fríi á
sumrin og þá sækja oft að erfið-
ar hugsanir og tilfinningar þegar
fólk er ekki að vinna, þar sem
það getur dreift huganum. Loks
getur oft reynst erfiðara að fá
aðstoð og stuðning á sumrin þeg-
ar þeir sem slíkt veita eru sjálfir
í sumarfríi, svo sem prestar,
læknar og aðrir í heilbrigðisgeir-
anum.“
Samtökin Ný dögun, sem eru
samtök um sorg og sorgarvið-
brögð, ætla einmitt að helga síð-
asta fræðslufund sinn þennan vet-
ur „sumrinu og sorginni“. Fundur-
inn verður haldinn í kvöld í Safn-
aðarheimili Háteigskirkju.
„Fræðslufundirnir hjá okkur
hafa verið tvenns konar í vetur.
Annars vegar eru fyrirlestrar
um hinar ýmsu hliðar sorgarinn-
ar og viðbrögðin við henni. Hins
vegar eru samræðufundir þar
sem fólk mætir og segir reynslu
sína af sorginni og deilir hugs-
unum sínum um þessi mál.“
Fundurinn í kvöld verður
eins konar sambland af þessu.
Séra Halldór leiðir umræðuna
með þátttöku syrgjenda.
„Samtökin Ný dögun voru
stofnuð af syrgjendum fyrir
nærri sextán árum. Þessi sam-
tök hafa hjálpað mjög til að gera
umræðu um sorgina opnari og
eðlilegri hér á landi, því áður
fyrr áttu Íslendingar helst að
bera harm sinn í hljóði.“ ■
■ KIRKJUSTARF
Sumarið og sorgin
BALDUR ÞÓRHALLSSON
Ég hef lengi ætlað mér að sjásýningu Helga Þorgils á Kjar-
valsstöðum,“ segir Baldur Þór-
hallsson, dósent í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands. „Ég er
mjög hrifinn af málverkunum
hans og langar mikið að sjá þessa
sýningu. Mig langar líka til að
skoða kosningaáróðurinn. Það er
ekki síst spennandi svona þegar
það er að koma kosningahelgi og
það er gaman að sjá hvernig þetta
hefur breyst. Þá eru tvær áhuga-
verðar leiksýningar sem ég hef
áhuga á en það eru Sellófón sem
Björk Jakobsdóttir er að leika og
Kvetch á Nýja sviðinu í Borgar-
leikhúsinu. Þetta er held ég næst-
síðasta sýning þannig að það fer
hver að verða síðastur. Mér sýnist
þetta vera svona hæfileg blanda
myndlistar, leiklistar og áróðurs.“
Val Baldurs
Þetta lístmér á!
✓
SÉRA HALLDÓR REYNISSON
„Sumarið og sorgin“ er yfirskrift síðasta fræðslufundar vetrarins hjá samtökunum
Nýrri dögun, sem haldinn verður í Safnaðarheimili Háteigskirkju í kvöld.
✓
✓
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími: 563 1770
LESSTOFA OG AFGREIÐSLA
opin alla virka daga kl. 10-16.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790
Langar þig í mynd af Reykjavík t.d. frá árunum
1910, 1930 eða 1950? Verð frá 1.000 kr.
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi,
nánari upplýsingar í síma 563-1790
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga frá 10-16
Opnunartími sýninga virka daga
12-19 og 13-17 um helgar
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnreykjavikur.is Sími 590 1200
Vorsýning
Listaháskóla Íslands
opnuð 10. maí kl. 14.00
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR
Helgi Þorgils (lýkur 11.maí)
Listamannsspjall listamannsins sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN
13-16
Eygló Harðardóttir,
Ásmundur Sveinsson (lýkur 11. maí)
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð en boðið
er upp á leiðsögn alla mánud., miðvikud. og
föstudaga kl. 13. Einnig er tekið á móti hóp-
um eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar í
síma 577 1111. Upplýsingar um leiðsögn í
Viðey í síma 568 0535.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
www.gerduberg.is • sími 575 7700.
Opnanir 10. maí kl. 14.00
Brýr á þjóðvegi 1:
Gunnar K. Gunnlaugsson opnar sýningu
á ljósmyndum af brúm á þjóðvegi 1
Íslandsteppið:
Íslenska bútasaumsfélagið opnar sýningu
á bútasaumsteppum.
18.maí - Dagur hljóðfærisins
Óbó og fagott
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma:
s. 552 7545 og á heimasíðu
www.bokasafn.is
Hefurðu kynnt þér
bókamenntavef
Borgarbókasafns?
www.bokmenntir.is
Minjasafn Orkuveitunnar
Minjasafn Orkuveitunnar í
Elliðaárdal er opið
sun. 15-17
og eftir samkomulagi
í s. 567 9009