Fréttablaðið - 08.05.2003, Page 43
43FIMMTUDAGUR 8. maí 2003
Þetta er að færast í aukana ogvið höfum af þessu áhyggjur,“
segir Jónmundur Guðmarsson,
bæjastóri á Seltjarnarnesi, um egg
sem bersýnilega eru tekin úr
hreiðrum í varplandi fugla á Nes-
inu. Á Seltjarnarnesi er grósku-
mikið fuglalíf og fjölskrúðugt og
þar verpa um 30 tegundir fugla.
„Við vitum ekki hvort það er fólk
sem er að taka eggin eða jafnvel
hundar sem ganga lausir, en eggin
hverfa,“ segir bæjarstjórinn nú
þegar varptíminn stendur sem
hæst, en samkvæmt hefð er Grótta
lokuð umferð almennings frá 1.
maí og fram til 30. júní.
Af þessu tilefni hefur bæjar-
stjórinn, í samráði við umhverfis-
nefnd bæjarins, látið sérhanna
skilti sem sett verða upp í varp-
landinu á Nesinu með upplýsing-
um um að bannað sé að taka egg úr
hreiðrum. Eru hundaeigendur
hvattir til að hafa sérstaka aðgát
og gæta þess að hundar þeirra
hirði ekki eggin.
„Ég veit ekki hvort fólk er að
taka þetta sér til matar. Þarna eru
bæði gæsa- og andaegg en ég er
ekki vanur að borða slíkt og veit
ekki hvort aðrir gera það,“ segir
bæjarstjórinn. ■
FLOTT FISKBÚÐ
Fiskbúðin Fylgifiskar á Suðurlandsbraut er skemmtileg viðbót í sælkeraflórunni. Grunnur-
inn er náttúrlega sælgæti hafsins sem við erum svo heppin að hafa umhverfis okkur. Hug-
myndaauðgi og matarsnilld sjá svo um afganginn. Útkoman er fjölbreyttur sælkeramatur.
Fiskbúðin bauð til veislu á dögunum og var þar meðal annars kynnt bókin „About fish“.
Gestir fengu að smakka á kræsingum búðarinnar og voru ekki sviknir af lostætinu.
Læra
að yrkja
Bæjarstjórn Árborgar hefurákveðið að bjóða bæjarbúum
upp á ókeypis námskeið í gerð ör-
sagna og ljóða. Hef-
ur skáldið Sjón ver-
ið ráðið til verksins
og heldur hann eitt
námskeið í Ráðhús-
inu á Selfossi þar
sem hann fer yfir
það helsta sem til
þarf til skáldskapar af þessu tagi.
Námskeiðið hefur verið dasgsett
laugardaginn 24. maí og er aðgang-
ur ókeypis sem fyrr greindi. Sjón,
eða Sigurjón Birgir Sigurðsson, er
velþekkt ljóðskáld bæði hér heima
sem og erlendis og var til að
mynda tilnefndur til Óskarsverð-
launa fyrir texta sína við lög
Bjarkar Guðmundsdóttur í kvik-
myndinni Dancer in the Dark. ■
MAGADANS
Áhöld eru um uppruna hans hér á landi.
Misskilning-
ur um
magadans
A dögunum var fjallað um vin-sældir og uppgang magadans í
höfuðborginni hér á síðunum. Sagði
þar að upptökin mætti rekja til
tveggja palestínskra stúlkna sem
hér búa og fluttu dansinn með sér
að heiman. Á þetta fellst Hinrik
Hoe Haraldsson ekki og sendi því
nokkrar línur:
„Þetta er alrangt þar sem þessar
palestínsku stúlkur stigu sín fyrstu
magadansskref hér á Íslandi undir
leiðsögn Josy Zareen frá Brasilíu,
sem kennir í Kramhúsinu. Síðast-
liðin ár hefur Josy kennt magadans
allt árið um kring. Erfitt er að koma
tölu á fjölda nemenda hennar en
þeir skipta líklega hundruðum.
Áður en Josy hóf kennslu hér hafa
nokkrir gestakennarar kennt í
Kramhúsinu. Meðal þeirra er
danskur magadanskennari, en
Helga Braga fór á námskeið hjá
henni. Síðar fór Josy að kenna og að
sjálfsögðu vildi Helga bæta við
kunnáttu sína og fór að sækja tíma
hjá Josy. Hjá þeim upphófst vin-
skapur og samstarf og saman stofn-
uðu þær magadans.is sem er fé-
lagsskapur magadansara á Íslandi
og hélt meðal annars fyrstu maga-
danskeppnina á Íslandi síðasta
sumar. Í dag eru um 300 konur í
félagsskapnum og vefsíðan er mjög
virk. Lesendur hennar eru ekki
síður virkir, en þær hittast reglu-
lega. Síðast en ekki síst má nefna að
magadanskeppni verður haldin í
annað sinn á Broadway 21. júní
næstkomandi.“ ■
TILMÆLI
Seltjarnarnesbær hefur látið hanna
sérstök skilti þar sem fólk er hvatt til að
virða rétt fugla til að verpa og hreyfa
ekki við eggjum í hreiðrum.
Varptími
■ Nýorpin egg eru herramannsmat-
ur. Það er hins vegar ekki sama hvar
þau eru tínd. Það er bannað að tína
egg á Seltjarnarnesi.
Eggin hverfa
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M