Fréttablaðið - 08.05.2003, Blaðsíða 44
44 8. maí 2003 FIMMTUDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
S
48 ÁRA „Ég bíð í tvö ár með að
halda upp á stórafmæli. Þetta
verður bara venjulegur dagur,“
segir knattspyrnukappinn Ásgeir
Sigurvinsson, sem er 48 ára í dag
og heldur sér í formi með því að
leika knattspyrnu þrisvar í viku
með félögunum. „Nú leik ég með
Lunch United og þar eru menn á
öllum aldri og úr öllum starfs-
greinum,“ segir Ásgeir, sem er
þar bestur á vellinum eins og á
árum áður á öllum helstu leik-
vöngum Evrópu. Ásgeir var topp-
maður á vellinum, eftirlæti millj-
óna Evrópubúa, og reynir enn að
standa sig á vellinum þó knatt-
spyrnuskónum hafi verið skipt út
fyrir blankskóna: „Auðvitað er ég
farinn að eldast en mestu skiptir
að vera ungur í anda og það reyni
ég að vera,“ segir kappinn.
Afmælisdaginn hóf Ásgeir með
því að fara á fætur eins og venju-
lega; upp úr klukkan átta og svo
taka hefðbundin verk við. Ásgeir
situr í stjórn nokkurra fyrirtækja
en er mest að snúast í kringum
rekstur knattspyrnufélagsins
Stoke og svo er hann KSÍ innan
handar með landsliðið í knatt-
spyrnu. „Ég er ýmislegt að bralla
sem ég læt ekki uppi enda mitt
mál,“ segir Ásgeir, sem á sér engar
sérstakar óskir um afmælisgjöf á
þessum degi. Nema hvað: „Sú eina
gjöf sem ég gæti óskað mér er að
ég sjálfur og fjölskylda mín verði
við góða heilsu og líði vel í framtíð-
inni. Það er það eina sem skiptir
máli,“ segir Ásgeir Sigurvinsson á
afmælisdaginn. ■
Afmæli
■ Knattspyrnukappinn og kaupsýslu-
maðurinn Ásgeir Sigurvinsson er 48 ára í
dag. Hann fór á fætur upp úr klukkan
átta og sinnir venjubundnum störfum í
dag. Ætlar að bíða í tvö ár eftir almenni-
legri stórveislu.
ÁSGEIR SIGURVINSSON
Spilar enn fótbolta þrisvar í viku – þrátt fyrir aldurinn.
Bestur á vellinum
Hlustaðu... þetta er tónlist
frá Navlaloha-ættbálkin-
um í Nýju-Mexíkó... svo-
lítið eins og Samatónlist,
finnst þér ekki?
Getur
vel
verið!
Vissir þú að það eru
sameiginlegir þættir
með þjóðlagatónlist
hvaðanæva úr heimin-
um? Ótrúlegt en satt!
Auðvitað
veit ég
það!
Langmest af
þessu er gjör-
samlega glatað!
Verð að
HUGSA!
...hugsa!
...hugsa!
10.30 Haraldur Lúðvíksson, Állfheim-
um 25, verður jarðsunginn frá
Langholtskirkju.
10.30 Ólöf Hólmfríður Kristinsdóttir,
Lólý, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
13.30 Páll Ólafsson, Álfheimum 44,
verður jarðsunginn frá Langholts-
kirkju.
13.30 Sigríður Bjarnadóttir, Skólabraut
3, Seltjarnarnesi, verður jarðsung-
in frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
15.00 Hugrún Hlín Ingólfsdóttir, Hjalla-
brekku 36, Kópavogi, verður jarð-
sungin frá Áskirkju.
15.00 Kjartan Friðbjarnarson verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Indriði Guðmundsson, Munaðarnesi,
Árneshrepppi, lést 5. maí.
Jóhannes Garðar Jóhannesson, Soga-
vegi 182, Reykjavík, lést 5. maí.
Jón Elliði Þorsteinsson, Hringbraut 48,
Keflavík, lést 2. maí.
Stefán Bryngeir Einarsson, Keilusíðu
12c, Akureyri, er látinn.
Aðalsteinn Birgir Ingólfsson, Kristni-
braut 37, lést 23. apríl.
Walter Rivers lést 22. apríl. Úförin fór
fram í Bellflower í Kaliforníu.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Bjarnarborg.
Gro Harlem Brundtland.
Victoria’s Secret.
Viltu leika við nýja hundinn minn fyrir mig?
Æ, ég veit ekki, bítur hann?
Það er það sem ég vil komast að!
Með súrmjólkinni
LAKKVÖRN
Á BÍLINN
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T