Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2003, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 15.05.2003, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Og allir unnu... Það er magnað hvað allir flokk-arnir komu vel út úr kosningun- um sem voru um helgina og eru nú óðum að gleymast. Það er sama hvert litið er. Allir flokkarnir unnu, hver einasti einn. Mikil blessun væri ef það væri alltaf svona þegar att er kappi, að allir ynnu. RÍKISSTJÓRNIN vann. Það er óumdeilt. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði reyndar fjórum mönnum og hefur sjaldan mælst minni. Hann er þó enn stærsti flokkurinn. En skyldi hann vera sigurvegari kosninganna? Framsóknarflokkur- inn vann líka mikinn sigur í þess- um kosningum, varnarsigur að vísu, að minnsta kosti að sumra mati. Flokkurinn tapaði sem sagt bara lítillega og engum manni. Það það er því ljóst að varnarsig- urinn var stórsigur í stöðunni. En skyldi það vera stærsti sigurinn? Ekki gott að segja. STJÓRNARANDSTAÐAN vann líka, á. Henni tókst að vísu ekki að fella ríkisstjórnina. Samt vann hver flokkur um sig sinn sigur, jafnvel stórsigur. Samfylkingin vann þó að hún yrði ekki stærsti flokkurinn á þinginu og Ingibjörg næði ekki kjöri. Flokknum tókst að minnsta kosti að sprengja 30% múrinn og verða stærstur í tveimur kjördæm- um af sex. Ætli það sé besti árang- urinn? Ég veit ekki. Vinstri grænir unnu líka kosningarnar. Ungur flokkur sem býður fram í annað sinn festi sig í sessi með því að ná kjörfylgi síðustu kosninga, nærri því. Óheppnir voru þeir reyndar að tapa manni. Skyldi það hafa verið stærsti sigur kosninganna? Frjáls- lyndir unnu líka sigur. Þeir tvöföld- uðu þingmannafjölda sinn, geri aðr- ir betur. Örlítill skuggi er að vísu að þeim tókst ekki að tvöfalda fylgið eins og til stóð og að Margrét náði ekki inn. Eru þeir aðalsigurvegarar kosninganna? Kannski! ÞEGAR ÖLLU er á botninn hvolft held ég samt að allir hafi tapað. Meirihlutinn tapaði vegna þess að hann hefur minni meirihluta en hann hafði áður og minnihlutinn tap- aði, þó að hann stækkaði, af því að hann náði ekki meirihluta. Er þetta ekki bara niðurstaðan? Ég veit það ekki. ■ Bakþankar STEINUNNAR STEFÁNSDÓTTUR Reiðskólinn Hrauni Fyrir 10-15 ára. Grímsnesi S: 897-1992 www.mmedia.is/hrauni

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.