Fréttablaðið - 02.06.2003, Qupperneq 35
Kristján Þórhallur Halldórssonbariton og Aladár Rácz píanó-
leikari halda söngtónleika í Saln-
um, Tónlistarhúsi Kópavogs, í
kvöld klukkan 20. Auk Kristjáns
og Aladárs munu söngkennari
Kristjáns, Judit Gyorgy sópran,
Kristveig Sigurðardóttir sópran
og Þórhallur Barðason bariton
koma fram.
Kristján er búsettur og starf-
andi á Kópaskeri. Hann hefur
stundað söngnám undanfarin ár
sér til gamans. Kennarar hans síð-
ustu fjögur ár, þau hjónin Aladár
og Judit, komu frá Ungverjalandi
haustið 1999 og starfa við Tónlist-
arskólann á Húsavík. Þau Þórhall-
ur, Kristveig og Kristján hafa
sungið saman við ýmis tækifæri
mörg undanfarin ár. Á efnisskrá
kvöldsins eru íslensk sönglög, er-
lend ljóð, aríur og dúettar. ■
15MÁNUDAGUR 2. júní 2003
Mánudagurinn 2. júní
12.00 Tónlistarandakt
Prestur: Sr. Kristján Valur Ingólfsson
Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson
spinna á saxófón og orgel.
20.00 Quattro Stagioni og Karlakórinn
Fóstbræður.
Kvartettinn Quattro Stagioni frá Noregi og
Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna
Harðarsonar flytja verk eftir Perotinus,
Tallis, Gesualdo, Poulenc, Snorra S. Birgis-
son og Stabat mater dolorosa fyrir karla-
kvartett og karlakór eftir norska tónskáldið
Kjell Habbestad. Ennfremur verður Missa
brevis eftir Wolfgang Plagge frumflutt á
tónleikunum.
Miðaverð: 2000 kr.
KIRKJULISTAHÁTÍÐ 2003
hvað?hvar?hvenær?
30 31 1 2 3 4 5
JÚNÍ
Mánudagur
Kvartettinn Quattro Stagioni fráNoregi og Karlakórinn Fóst-
bræður eru með tónleika í Hall-
grímskirkju í kvöld, þar sem flutt
verða verk eftir fjölda tónskálda.
Enn fremur verður frumflutt
Missa Brevis eftir Wolfgang
Plagge og Fagur er söngur í himna-
höll eftir Snorra S. Birgisson.
Karlakvartettinn Quattro
Stagioni hélt sína fyrstu tónleika
1987 og hefur síðan verið fremsti
söngkvartett Noregs. Efnisskrá
kvartettsins spannar alla sögu
evrópskrar tónlistar. Fóstbræður
hafa alla tíð verið í fremstu röð ís-
lenskra karlakóra og tekið þátt í
fjölda tónlistarviðburða. Þeir hafa
í þrígang tekið þátt í alþjóðlegum
kórakeppnum og unnið til verð-
launa í öll skiptin.
„Það er óhætt að segja að þetta
verði óhefðbundnir tónleikar þar
sem nýju og gömlu er blandað
saman á nýstár-
legan hátt,“ segir
Árni Harðarson,
stjórnandi Fóst-
bræðra. „Quattro
Stagioni nýtur sín
sérstaklega vel í
flutningi endur-
reisnartónlistar,
en hljómur kvar-
tettsins er mjög
sérstakur, sem
meðal annars má þakka björtu
tónsviði kontratenórsins.“
Andleg og veraldleg endur-
reisnarverk frá Frakklandi, Ítalíu
og Englandi eiga fastan sess á efn-
isskrá kvartettsins.
Árni segir efnisskrá tónleik-
anna spanna næstum 900 ár.
„Tónleikarnir hefjast á tveimur
verkum eftir Perotinus, organista
við Notre Dame-kirkjuna í París á
12. öld. Í endurreisnarhluta efnis-
skrárinnar er
boðið upp á
verk eftir
Cornyshe, Tallis
og Byrd,
flæmska meist-
arann Lasso og
Ítalann Palestr-
ina.“
N ý s a m i n
verk mynda svo
mótvægi við
hina fornu tónlist á efnisskránni.
„Karlakór Reykjavíkur mun svo
frumflytja lagið Fagur er söngur í
himnahöll eftir Snorra S. Birgis-
son,“ segir Árni. „Snorri samdi lag-
ið árið 2001 og endurskoðaði það ári
síðar, en textinn er gamalt morgun-
vers frá kaþólskri tíð, prentað í
þjóðlagasafni séra Bjarna Þor-
steinssonar.“ Tónleikarnir hefjast
klukkan 20. ■
■ ■ TÓNLIST
12.00 Tónlistarandakt í Hall-
grímskirkju. Prestur: sr. Kristján Valur
Ingólfsson. Sigurður Flosason og Gunnar
Gunnarsson spinna á saxófón og orgel.
20.00 Quattro Stagioni og Karla-
kórinn Fóstbræður í Hallgrímskirkju.
Flutt verða verk eftir Perotinus, Tallis,
Gesualdo, Poulenc, Snorra S. Birgisson
og Stabat mater dolorosa fyrir karla-
kvartett og karlakór eftir norska tón-
ALADÁR RÁCZ PÍANÓLEIKARI
Leikur undir hjá Kristjáni Þórhalli Hall-
dórssyni bariton og vinum hans, sem
eru með tónleika í Salnum í kvöld.
Salurinn í Kópavogi:
Til gamans gert
■ TÓNLEIKAR
skáldið Kjell Habbestad. Enn fremur
verður Missa brevis eftir Wolfgang
Plagge frumflutt á tónleikunum.
20.00 Söngtónleikarnir Til gamans
gert í Salnum, Kópavogi. Kristján Þ.
Halldórsson bariton og Aladár Rácz pí-
anóleikari flytja íslensk sönglög, erlend
ljóð og aríur og dúetta. Gestaflytjendur:
Judit Gyorgy sópran, Kristveig Sigurðar-
dóttir sópran og Þórhallur Barðason
bariton.
■ ■ SÝNINGAR
Gallerí Hlemmur Sýning Ómars
Smára Kristinssonar, Fréttir. Gestur
Ómars Smára er myndlistarmaðurinn
Karl Jóhann Jónsson sem sýnir í hliðar-
rými gallerísins.
Alain Garrabé er með sýningu í
Gallerí Smíðar og Skart. Á sýningunni
eru rúmlega 30 verk, unnin með olíu á
striga. Þetta er fyrsta einkasýning Alan í
Reykjavík. Sýningin stendur til 14. júní.
Ljósmyndir Yann Arthus-Bertrand á
Austurvelli. Sýningin ber nafnið Jörðin
séð frá Himni og hefur verið sýnd víðs
vegar um heiminn. Á sama tíma verður
upplýsingamiðstöð að Kirkjustræti 12
(Skjaldbreið) þar sem sjá má kvikmynd
um tilurð verkefnisins.
■ TÓNLEIKAR
Fóstbræður og Quattro Stagioni á kirkjulistahátíð:
Efnisskrá sem spannar 900 ár
QUATTRO STAGIONI
Einn fremsti söngkvartett Noregs sem hef-
ur haldið tónleika víða um heim.