Fréttablaðið - 02.06.2003, Blaðsíða 45
45MÁNUDAGUR 2. júní 2003
■ Bækur
■ Nýjar bækur
BÆKUR Unglingaskáldsagan Holes
eftir Louis Sacher kom út á ís-
lensku fyrir síðustu jól undir
nafninu Milljón holur. Þýðing
þeirra Sigfríðar Björnsdóttur og
Ragnheiðar Erlu Rósarsdóttur
fékk á dögunum Barnabókaverð-
laun Fræðsluráðs Reykjavíkur
sem besta þýdda bókin árið 2002.
Íslenskir aðdáendur sögunnar
geta nú farið að láta sig hlakka til
að sjá hana á hvíta tjaldinu en Dis-
ney-fyrirtækið frumsýndi nýlega
kvikmynd byggða á bókinni í
Bandaríkjunum.
Myndin hefur fengið prýðileg-
ar viðtökur gagnrýnenda, sem
lofa hana meðal annars fyrir að
vera trú hnyttnum anda sögunnar
og snúinni atburðarás.
Gagnrýnandi The New York
Times segir meðal annars að þrátt
fyrir að Hollywood „eigi til að
þynna hluti sem þessa út“ hafi það
ekki gerst nú. Höfundurinn sjálf-
ur skrifaði handrit myndarinnar
og leikstjórinn Andrew Davis
(The Fugitive) þykir hafa leyst
verk sitt vel af hendi og er sagður
hafa skilað af sér mynd sem
krakkar muni draga foreldra sína
á í vorfríinu. Það fylgir einnig
sögunni að fyrir vikið muni for-
eldrarnir ekki missa af „bestu am-
erísku stórmyndinni á þessu ári“.
Hinn 17 ára gamli Shia
LaBeouf fer með aðalhlutverkið í
myndinni en hefur sér til fullting-
is reynslubolta á borð við Sig-
ourney Weaver, Jon Voigt, Earthu
Kitt og Patriciu Arquette. ■
Bókin Garðverkin - Hagnýt ráðum ræktunarstörf í görðum,
gróðurhúsum og sumarbú-
staðalöndum og leiðbeiningar um
lífræna ræktun er komin út. Í
henni má finna hagnýt ráð um
ræktunarstörf og viðhald gróðurs
í görðum, gróðurhúsum og sumar-
bústaðalöndum ásamt leiðbeining-
um um lífræna ræktun og safn-
haugagerð.
Höfundurinn, Steinn Kárason,
er landsmönnum að góðu kunnur
fyrir umfjöllun sína um garð-
yrkju, skógrækt, umhverfismál
og viðskipti í sjónvarpi, útvarpi,
blöðum og tímaritum.
Bókin er rúmar 200 blaðsíður
og skiptist í 24 kafla og 194 undir-
kafla. Í bókinni eru um áttatíu
ljósmyndir og á fjórða hundrað
skýringarmyndir. ■
Síðastliðinn mánudag fóru nem-endur úr þremur 8. bekkjum
Öldutúnsskóla í heimsókn í Hafn-
arborg. Þar tók á móti þeim
bandaríski listamaðurinn Richard
Vaux og sýndi þeim vinnuaðferðir
sínar, en hann gerir myndir úr
kolefnisdufti. Nokkrir nemend-
anna reyndu sjálfir hæfni sína og
gerðu þeir í samvinnu við Vaux
listaverk sem hann gaf skólanum.
Heimsókninni lauk síðan með
fjörugum umræðum og pizzu í
kaffistofunni. ■
Gunnlaðar saga eftir SvövuJakobsdóttur var nýlega gef-
in út í Frakklandi á vegum bóka-
útgáfunnar José Corti en á út-
gáfulista forlagsins eru verk
ekki minni meistara en Honoré
de Balzac, Charles Baudelaire,
Gustave Flaubert, Arthur
Rimbaud og Jorge Luis Borges.
Bókmenntatímaritið Le mat-
ricule des Anges fjallaði á dögun-
um um bókina undir fyrirsögn-
inni „Norrænn lífsmjöður“ þar
sem sagði meðal annars: „Svava
Jakobsdóttir sýnir fram á, í
skáldsögu sem sveiflast milli
raunsæis og hins yfirnáttúrlega,
að goðsögnin er raunveruleikan-
um yfirsterkari.“
Gagnrýnandi ritsins klykkir
svo út með þessum orðum:
„Fallegasti kostur Gunnlaðar
sögu er hversu marghliða hún
er. Hún er skáldsaga um vitfirr-
ingu, einsemd, útskúfun og um
það hversu lífseig goðsögnin
getur verið.“
Gunnlaðar saga kom upphaf-
lega út hjá Forlaginu árið 1987
en hefur einnig verið gefin út á
ítölsku, litháísku, dönsku,
sænsku, finnsku og norsku, auk
frönsku. ■
Norræn lífsmjöður í Frakklandi
Bók í bíó
■ Disney-fyrirtækið hefur frumsýnt nýja
barna- og unglingamynd byggða á hinni
margverðlaunuðu skáldsögu Milljón holur
og þykir aldrei þessu vant hafa leyft sög-
unni sjálfri að njóta sín á hvíta tjaldinu.
Milljón holur í bíó
MILLJÓN HOLUR
Er ekki bara fyrir börn og unglinga enda á ferðinni spennandi dæmisaga um græðgi, ör-
lög og rasisma.
RICHARD VAUX OG KRAKKARNIR ÚR ÖLDUTÚNSSKÓLA
Hittust í Hafnarborg, ræddu málin yfir pizzu og sinntu listsköpun í sameiningu.
Nemendur 8. bekkjar Öldutúnsskóla:
Gerðu mynd úr
kolefnisdufti
Mýrin í
Tékklandi
BÆKUR Tékkneska bókaforlagið
Bastei-Moba hefur tryggt sér út-
gáfuréttinn á Mýrinni, eftir Gler-
lykilshandhafann
Arnald Indriða-
son, og Bastei-
Lübbe í Þýska-
landi hefur fest
kaup á tveimur
öðrum reyfurum
h ö f u n d a r i n s ,
Napóleonsskjöl-
unum og Dauða-
rósum.
D a u ð a r ó s i r
komu út hjá
Vöku-Helgafelli
árið 1998 og
Napóleonsskjölin ári síðar.
Bastei-Moba er eins og nafnið
gefur til kynna í nánum tengslum
við Bastei-Lübbe, sem er meðal
öflugustu forlaga Þýskalands, en
það hefur nú tryggt sér útgáfu-
réttinn á öllum útgefnum bókum
Arnaldar. Mýrin hefur þar með
verið seld til átta landa en Þýska-
land er fyrsta landið sem Napóle-
onsskjölin og Dauðarósir fara til.
Nú eru í undirbúningi kvik-
myndir eftir Mýrinni og Napóle-
onsskjölunum. Baltasar Kormák-
ur vinnur að gerð bíómyndar eftir
Mýrinni og Snorri Þórisson stefn-
ir að gerð alþjóðlegrar stórmynd-
ar eftir Napóleonsskjölunum. ■
ARNALDUR
INDRIÐASON
Glæpasögur hans
úr íslenskum veru-
leika eiga greiða
leið á markað í ná-
grannalöndunum.