Fréttablaðið - 13.06.2003, Page 11
17FÖSTUDAGUR 13. júní 2003
LUNDÚNIR Hans Blix, yfirmaður
vopnaeftirlitssveita Sameinuðu
þjóðanna, sakar bandaríska
ráðamenn um að hafa borið út
óhróður um sig og reynt að grafa
undan starfi sínu í Írak.
Í viðtali við breska blaðið
Guardian segir Blix að banda-
rísk yfirvöld hafi þrýst á sig að
nota stór orð í skýrslum um
meinta vopnaeign Íraka. Blix
heldur því fram að starfsmenn
bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins hafi matað
fjölmiðla á ósannindum um sig.
„Þetta var eins og að fá moskító-
bit á kvöldin sem var enn að
angra mann morguninn eftir,“
sagði Blix.
Blix viðurkenndi engu að síð-
ur að samstarfið við Bandaríkin
hefði á heildina litið verið gott.
Hann benti á að írösk stjórnvöld
hefðu sennilega aldrei komið til
móts við vopnaeftirlitsmenn ef
þeim hefði ekki stafað veruleg
ógn af bandarísku herafli.
Hersveitum Bandaríkja-
manna og Breta hefur ekki tek-
ist að finna gereyðingarvopn í
Írak þrátt fyrir að hafa fínkembt
yfir 230 staði. Í viðtali í sjón-
varpsþættinum „Good Morning
America“ ítrekaði Blix að yfir-
völd í Bandaríkjunum hefðu
engar haldbærar upplýsingar
um vopnaeign Íraka þrátt fyrir
allan þann hátæknibúnað sem
bandaríska leyniþjónustan hefði
yfir að ráða. ■
Í HÖFUÐSTÖÐVUM SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Hans Blix lætur af störfum hjá Sameinuðu þjóðunum sökum aldurs í lok mánaðarins.
Yfirmaður vopnaeftirlitssveita Sameinuðu þjóðanna:
Sakar bandaríska ráðamenn um rógburð
FERNINGSLAGA MELÓNUR
Garðyrkjufyrirtæki í Zentsuji í Japan er farið
að rækta ferningslaga melónur sem eru
seldar innanlands og til Hong Kong.
Melónurnar eru ekki ætar en seljast dýrum
dómum til fólks sem vill geta sýnt gestum
eitthvað nýstárlegt.
DÓMSMÁL Einn sakborninganna í
fíkniefnamálinu sem er til með-
ferðar í héraðsdómi Reykjaness
er einnig ákærður fyrir að hafa
haft barnaklám í vörslu sinni. Við
húsleit hjá manninum fundust
rúmlega níu þúsund ljósmyndir
og fimmtíu og sex hreyfimyndir
sem sýna börn á kynferðislegan
og klámfenginn hátt.
Lögfræðingur mannsins krafð-
ist þess að ákæruliðnum um
vörslu barnaklámsins yrði
frestað. Hann hefði ekki fengið
efnið til skoðunar og væri því
óljóst hvað hann væri að verja.
Saksóknari var ósáttur við þetta
og kvað verjandann hafa vitað að
efnið væri í vörslu dómara og þar
hefði hann getað nálgast það.
Engu að síður var þessum ákæru-
lið frestað þar til í dag. ■
Héraðsdómur Reykjaness:
Ákærður fyrir barnaklám
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
Málsmeðferð kæru um vörslu barnakláms
var frestað þar til í dag.
SADDAM BÝÐUR PENINGAVERÐ-
LAUN Leiðtogi fyrr-
um stjórnarandstöðu
Íraks segir að
Saddam Hussein
bjóði nú peninga-
verðlaun fyrir hvern
bandarískan her-
mann sem er drepinn í landinu.
Fjöldi bandarískra hermanna hef-
ur látið lífið í árásum stuðnings-
manna fyrrum stjórnvalda Íraks.
■ Írak
EIÐUR TIL MONGÓLÍU Eiður
Guðnason hefur afhent forseta
Mongólíu trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra Íslands í Mongólíu.
TÓMAS SKIPAR THOMAS Tómas
Ingi Olrich hefur skipað Thomas
Möller formann verkefnisins
Iceland Naturally. Thomas tekur
við af Ómari Benediktssyni, for-
stjóra Íslandsflugs.
■ Stjórnvöld