Fréttablaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 22
FÖSTUDAGUR 13. júní 2003 Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Hva› ertu a› hugsa? 17 . og 2 4. j ún í o g 22 . jú lí. V er › kr. á mann 36 .9 67 *Innifalið: Flug, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára. **Innifalið: Flug, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Miðað við 2 fullorðna. Takmarkað sætaframboð Sólarplús fiú velur dagsetningu, bókar og grei›ir sta›festingargjald. Gistista›urinn er sta›festur viku fyrir brottför. * 48 .3 55 k r. ** Sama sólin, sama fríi› bara a›eins ód‡rara Po rt úg al Po rt úg al 36 .9 67 TÓNLIST Sumartónleikar í Skál- holtskirkju hefjast laugardaginn 28. júní og standa fram á verslun- armannahelgina, 4. ágúst. Sumar- tónleikarnir hafa verið ein stærs- ta tónlistarhátíð landsins á hverju sumri í hartnær þrjátíu ár. Þeir hafa fest sig í sessi í íslensku tón- listarlífi og eru vel sóttir bæði af innlendum og erlendum ferða- mönnum og tónlistaráhugamönn- um. Það er sérstaða þessarar há- tíðar að aðgangur er ókeypis enda stendur kirkjan ávallt öllum opin. Tónleikarnir verða haldnir kl. 15 og 17 á laugardögum og kl. 15 á sunnudögum. Messa er á sunnu- dögum kl. 17 en tónlistarflutning- ur hefst kl. 16.40 fyrir messu. Fyr- irlestrar tengdir tónleikahaldinu eru í Skálholtsskóla á laugardög- um kl. 14.00. Tónlistarmenn, inn- lendir sem erlendir, eru í Skál- holti allan hátíðatímann og þar sem æfingar fara fram í kirkjunni má segja að kirkjan ómi af tónlist allan þennan sumartíma. Hátíðin hefst laugardaginn 28. júní kl. 15 á tónleikum til heiðurs Gunnari Reyni Sveinssyni sjötug- um. Flutt verða eftir hann trúarleg söngverk og orgelverk. Flytjendur eru Kammerkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnar Agnarsson- ar, organista Skálholtskirkju, og á orgel leikur Kári Þormar. Á undan tónleikunum verður erindi í Skál- holtsskóla þar sem Atli Heimir Sveinsson tónskáld mun fjalla um tónverk Gunnars Reynis Sveins- sonar. Þessa fyrstu helgi eru að venju tvær tónleikaefnisskrár á laugardegi og sunnudegi. Kamm- erhópurinn Contrasti mun á seinni efnisskránni flytja nú- tímatónlist og tónlist frá endur- reisnartímanum, auk þess sem frumflutt verður verk eftir Oli- ver Kentish. Í sunnudagsmessunni klukkan 17 verða flutt trúarleg verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson en prest- ur er sr. Egill Hallgrímsson. ■ SKÁLHOLTSKIRKJA Sumartónleikarnir í kirkjunni hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem stærsta sumar- tónlistarhátíð ársins. Tónlistarveisla í Skálholti: Fastur liður í þrjátíu ár TÓNLIST „Þeir geta nú verið stoltir af því hér fyrir austan að vera bæði með jazzhátíð og óperustúd- íó“, segir Árni Ísleifsson, sem stendur fyrir Jazzhátíð Egilsstaða sextánda árið í röð dagana 27. og 28. júní. „Þessi hátíð spratt nú eig- inlega upp úr brandara en sumar- ið 1987 var ég á gangi í góðu veðri á Egilsstöðum ásamt Steini Stein- grímssyni, píanista úr KK sextett, og hann sagði við mig: „Hér þyrfti að vera jazz“. Og árið eftir var fyrsta jazzhátíðin haldin á Egils- stöðum. Fyrra kvöldið treður átta manna Blues & Brass hljómsveit upp. Hana skipa Garðar Harðar- son, Þorleifur Guðjónsson, Anna Lilja Karlsdóttir, Bára Sigurjóns- dóttir, Grétar Sigurðarson, Ragn- ar Eymundsson, Halldór Bene- diktsson og Árni sjálfur. „Á laugardeginum bjóðum við svo upp á skandinavískan kvinde- jazz“, segir Árni en þá leikur danska kvennasveitin Sophist- icated Ladys ásamt norsku jazz- söngkonunni Hilde Hefte. Þær koma hingað með sérstökum stuðningi frá Nordisk Kulturfond sem setur það sem skilyrði að listamenn komi frá tveimur lönd- um og sýni í því þriðja.“ Árni segir hátíðina ætíð vel sótta. „Hingað kemur meira að segja fólk alla leið frá Reykjavík og margir gæta þess að vera á hringveginum í námunda við Eg- ilsstaði þegar líður að hátíðinni.“ Árni segist þegar vera byrj- aður að skipuleggja hátíðina að ári enda taki það sinn tíma að smala listamönnum saman „þó það komist nú alltaf færri að en vilja“. ■ ÁRNI ÍSLEIFSSON Heldur Jazzhátíð Egilsstaða í sextánda sinn í ár og er þegar farinn að huga að næstu hátíð enda í mörg horn að líta. Jazzhátíð Egilsstaða: Hér þyrfti að vera jazz FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.