Fréttablaðið - 13.06.2003, Side 13
FÖSTUDAGUR 13. júní 2003
ekki bara
sumar vörur
debenhams
S M Á R A L I N D
Sumarið er komið í Debenhams!
Klæddu þig eftir veðri
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
13
91
06
/2
00
3
Mikið úrval af sumarfötum á börn á ótrúlega góðu verði!
Úrvalið hefur aldrei verið meira
af frábærum og vönduðum barnafötum.
Stærðir fyrir allt að 14 ára.
heldur allar sumarvörur
fyrir börn
á frábæru ver›i
17.00 Sýn
Bein útsending frá öðrum keppnisdegi á
Opna bandaríska meistaramótinu í golfi.
18.00 Seyðisfjarðarvöllur
Huginn fær ÍA í heimsókn í 32 liða úr-
slitum VISA-bikarsins.
19.15 Víkingsvöllur
3. deildarlið Deiglunnar heimsækir Vík-
ing í 32 liða úrslitum VISA-bikarsins.
19.15 Hásteinsvöllur
Vestmannaeyjafélögin KFS og ÍBV mæt-
ast í 32 liða úrslitum VISA-bikarsins.
19.15 Kópavogsvöllur
1. deildarfélagið HK fær Íslandsmeistara
KR í heimsókn í 32 liða úrslitum VISA-
bikarsins.
19.15 ÍR-völlur
Reykjavíkurfélögin ÍR og Fram keppa í
32 liða úrslitum VISA-bikarsins.
19.15 Sauðárkróksvöllur
Tindastóll og Keflavík keppa í 32 liða
úrslitum VISA-bikarsins.
19.15 Selfossvöllur
Selfoss fær úrvalsdeildarfélag KA í
heimsókn í 32 liða úrslitum VISA-bikars-
ins.
19.15 Valsvöllur
3. deildarfélagið Númi heimsækir Val á
Hlíðarenda í 32 liða úrslitum VISA-bik-
arsins.
19.15 Njarðvíkurvöllur
1. deildarfélag Njarðvík leikur gegn
Þrótti úr Reykjavík.
hvað?hvar?hvenær?
10 11 12 13 14 15 16
JÚNÍ
Föstudagur
KNATTSPYRNA „Það sér hver maður
að Ásgeir og Logi eru að ná mjög
vel til strákanna í landsliðinu,“
sagði Eggert Magnússon, formað-
ur Knattspyrnusambands Íslands,
eftir landsleikinn gegn Litháum.
„Það hefur alltaf verið vilji KSÍ
að hafa íslenska þjálfara ef því
verður komið við og gengi Ás-
geirs þessa tvo leiki er slíkt að
ljóst má vera að hann veit alveg
hvað hann er að gera. Ásgeir er
náttúrlega einn allra besti knatt-
spyrnumaður þjóðarinnar og
gjörþekkir leikinn, gjörþekkir
hugarástand strákanna og Logi er
mjög fær þjálfari sem fylgist vel
með öllu í þeim heimi. Við munum
eiga fund við þá félaga fljótlega
og þar kemur meira í ljós en því
er ekki að leyna að við viljum
gjarnan sjá áframhald á þessu
samstarfi.“
Varðandi erlenda þjálfara
sagði Eggert ekkert vera ákveðið.
„Það er okkar reynsla að allir er-
lendir þjálfarar vilja talsvert
hærri laun en gengur og gerist
hér heima og að KSÍ er ekki fært
um að greiða svimandi há laun en
staðan er sú núna að eftir fundinn
með Ásgeiri og Loga skýrast mál-
in talsvert hvað framhaldið varð-
ar.“ ■
EGGERT MAGNÚSSON
Fundar með Ásgeiri og Loga um helgina.
Eggert Magnússon, formaður KSÍ:
Óskastaða að hafa ís-
lenskan þjálfara
FÓTBOLTI Fjórir nýliðar eru í 18
manna hópi A-landsliðs kvenna
sem leikur við Ungverja á morg-
un. Átta aðrir leikmenn hafa leik-
ið fimm leiki eða færri en sex
leikmannanna hafa talsverða leik-
reynslu í undankeppni stórmóta.
Nýliðarnir eru Dóra María Lár-
usdóttir, Ólína G. Viðarsdóttir,
Embla S. Grétarsdóttir og Mar-
grét Lára Viðarsdóttir. Þær hafa
allar leikið með yngri landsliðun-
um á undanförnum árum og stað-
ið sem vel með sínum félagsliðum
í vor. Dóra María og Margrét léku
með U17 liðinu sem varð í 3. sæti
á Norðurlandamótinu í fyrra. ■
NÝLIÐARNIR
Dóra María Lárusdóttir, Margrét Lára Við-
arsdóttir, Ólína G. Viðarsdóttir og Embla S.
Grétarsdóttir eru nýliðarnir í hópnum sem
mætir Ungverjum.
LEIKMENN - FÉLAG - LANDSLEIKIR - MÖRK
Þóra Björg Helgadóttir KR 24 -
María Björg Ágústsdóttir Stjarnan 3 -
Björg Ásta Þórðardóttir Breiðablik 1 -
Ólína G. Viðarsdóttir Breiðablik - -
Erla Hendriksdóttir FV København 36 2
Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV - -
Olga Færseth ÍBV 37 9
Ásthildur Helgadóttir KR 51 15
Edda Garðarsdóttir KR 19 -
Embla S. Grétarsdóttir KR --
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir KR 14 -
Hrefna H. Jóhannesdóttir KR 2 -
Dóra María Lárusdóttir Valur - -
Dóra Stefánsdóttir Valur 2 -
Íris Andrésdóttir Valur 1 -
Laufey Jóhannsdóttir Valur 3 -
Laufey Ólafsdóttir Valur 5 -
Málfríður Erna Sigurðardóttir Valur 1 -
A-landslið kvenna:
Fjórir nýliðar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI