Fréttablaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 27
34 13. júní 2003 FÖSTUDAGUR rað/auglýsingar Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi og á aðalskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 18. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að breytingum á deiliskipulagsáætlunum og aðalskipulagi í Reykjavík: Reykjanesbraut/Stekkjarbakki, Smiðjuvegur, mislæg göngutenging (göngubrú). Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Reykjanesbrautar við Mjódd og Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001- 2024. Tillögurnar gera ráð fyrir að í stað þess að göngutenging liggi um gatnamótin verði byggð aðskilin göngubrú yfir Reykjanesbraut, norðan fyrirhugaðra gatnamóta. Breytingin er gerð þar sem hæðarlega tengingarinnar verður betri auk þess sem umferð óvarinna vegfarenda er aðskilin frá bílaumferð. Nánar um tillögurnar vísast til kynningargagna. Nauthólsvík, breyting á deiliskipulagi. Tillaga lýtur að breytingum á deiliskipulagi Nauthólsvíkur. Tillagan gerir m.a., ráð fyrir að afmörkuð verði lóð og byggingarreitur fyrir veitingahús þar sem núverandi veitingahús stendur (Nauthóll). Við það verður hluti af bílastæðum, sem áður voru almenn stæði, hluti af lóð veitingahússins. Þá gerir tillagan ráð fyrir að byggingarreitur fyrir biðskýli verði minnkaður, almenn bílastæði, næst baðhúsi, breytist í stæði fyrir fatlaða og 40 hjólastæði, lóð fyrir bátanaust er skilgreind og skilmálum breytt. Einnig gerir tillagan ráð fyrir að stígar, lagnir og sjóvarnargarður séu færðir inn á skipulagið í samræmi við framkvæmdir auk þess sem byggingarreitur á svæði D, sem áður var fyrir veitingahús, falli niður og breytist á ný í svæði fyrir leikvöll. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Skildinganes, endurskoðað deiliskipulag. Tillaga lýtur að endurskoðun á deiliskipulagi Skildinganess sem afmarkast af Einarsnesi, Skildinganesi, Skeljanesi og útivistarsvæði með strandlengju. Um er að ræða tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir svæðið sem byggir á eldra skipulagi og þeim húsum og byggðamynstri á svæðinu. Tillagan gerir þó ráð fyrir nokkrum breytingum m.a. á skilmálum svæðisins, m.t.t. fenginnar reynslu, en markmið hennar er að gera þá skilmála skýrari. Þá gerir tillagan jafnframt ráð fyrir breytingum á byggingarreitum og skilmálum nokkurra óbyggðra lóða m.t.t. óska, ábendinga og athugasemda þar um. Tillagan gerir ráð fyrir að lokun á milli Skildingatanga og Skeljatanga haldist auk þess sem unnið hefur verið með gönguleiðir á svæðinu svo eitthvað sé nefnt. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting á skilgeiningum miðsvæða M5, M6, M8 og skilgreiningu athafnasvæða. Tillagan lýtur að breytingum á skilgreiningum á miðsvæðum M5, M6, M8 og skilgreiningu athafnasvæða, varðandi heimildir til reksturs matvöruverslana á þessum svæðum. Þá gerir tillagan ráð fyrir leiðréttingu á orðalagi varðandi miðsvæði M8. Varðandi miðsvæði M6 gerir tillagan ráð fyrir að sérstaklega verði kveðið á um bann við rekstri matvöruverslana á M6 svæðinu norðvestan Grafarholts, milli Vesturlandsvegar og Grafarholts. Varðandi miðsvæði M5 gerir tillagan ráð fyrir að óheimilt verði að reka matvöruverslanir á þeim svæðum nema það sé sérstaklega leyft í deiliskipulagi. Til að taka af allan vafa um rekstur matvöruverslana á athafnasvæðum, s.s. á athafnasvæðunum í Hálsahverfi, Hádegismóum, Smálöndum og á Gylfaflöt, gerir tillagan ráð fyrir að tekið verði fram í skilgreiningu um athafnasvæði að óheimilt sé að veita leyfi til rekstar nýrra matvöruverslana á þeim. Þá gerir tillagan ráð fyrir að leiðrétt verði villa í skilgreiningu miðsvæðisins M8. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.15, frá 13. júní 2003 - til 25. júlí 2003. Einnig má sjá tillögur á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 25. júlí 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 13. júní 2003. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ Laus störf við Foldaskóla Kennsla: Almenn kennsla í 4. bekk. Á unglingastigi; kennslugreinar danska og íslenska Störf í mötuneyti nemenda: Matráður og þrjár stöður skólaliða. Tölvuumsjón 75% starf Nánari upplýsingar hjá skólastjóra, Kristni Breiðfjörð, s. 567 2222 FOLDASKÓLI - Grafarvogi Ljúfir unglingar í eldgömlu húsi Við höfum fjórar annir, reglubundið námsmat og heimanámstíma á stundaskrá. Við sendum nemendum og foreldrum tölvupóst a.m.k. þrisvar í viku um heimanámið, skólalífið og fleira. Nemendur okkar vinna fjögur metnaðarfull rannsóknarverkefni á hverjum vetri. Hjá okkur eru fámennir bekkir. Góður námsgrunnur skiptir máli! Innritun í 8. og 9. bekk stendur yfir. Hafið samband í síma eða tölvupósti. Tjarnarskóli Stofnaður 1985 Tjarnarskóli Lækjargötu 14b, 101 Rvík. Símar 562 4020 og 551 6820 tjarnar@ismennt.is www.tjarnarskoli.is Mest lesna blaðið - alls staðar! Orðsending til fyrrverandi blaðbera! Getur verið að þú lumir á tösku eða kerru frá okkur? Ef svo er, þá ættir þú að leggja leið þína til okkarað Suðurgötu 10 og við skiptum á henni og bíómiða í Sambíóin.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.