Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.06.2003, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 23.06.2003, Qupperneq 28
49 ÁRA „Ég ligg nú rúmfastur þannig að það verður ekki mikið um hátíðir“, segir Matthías Viðar Sæmundsson, dósent í íslenskum bókmenntum, en hann verður 49 ára í dag. „Ætli ég bjóði ekki nokkrum góðum vinum í kvöld- mat og við gerum úr því góða kvöldstund,“ bætir Matthías við, en hann dvelur í Kaupmannahöfn um þessar mundir. „Ég hef verið að viða að mér efni í ævisögu Héðins Valdimars- sonar og var í Edinborg í vetur og kom hingað fyrir mánuði síðan. Ég verð í Danmörku í sumar en í haust taka kennslan og hvers- dagsleikinn við aftur.“ Matthías segist eiginlega aldrei hafa haldið upp á afmælið sitt. Matthías hefur greint frá því að hann sé búinn að komast að því að það sem hefur keyrt hann áfram í gegnum lífið sé „ekki óeigingjörn ást á fræðum og bók- menntum, ekki hégómleg löngun í prófgráður eða félagslegan frama, ekki fórnfús kærleikur í garð stúdenta, ekki þekkingarvilji aldanna, ekki það og því síður þetta; „nei, það er helvítið hann Byron lávarður, spurningin forð- um daga sem hefur knúið mig áfram, hún er mín Lacanska eyða, þögnin sem ég hef reynt að breiða yfir allan þennan tíma með kennslu, reiki og skrifum. Nema hvað nú skal flöktinu og flóttan- um lokið, 25 ára stúdentsafmæli er í nánd, og áður en næsta ár er liðið mun ég hafa gefið út Ljóð- mæli Bretatröllsins með neðan- málsgreinum um Gísla Brynjúlfs- son.“ Ekkert bólar hins vegar á ljóð- mælum Bretatröllsins en Matthí- as vill ekki útiloka að hann ljúki þessu verkefni lífs síns fyrir fimmtíu ára afmælið. „Það er margt hægt að gera á einu ári. Það hefur mikið verið þýtt eftir hann og það væri gaman að taka þetta saman, enda hefur hann haft ótrúleg áhrif á íslenska ljóðagerð og jafnvel stjórnmálaumræðu líka. Hver kynslóð á auðvitað sína rómantísku töffara en það er vel við hæfi að endurvekja áhuga fólks á Byron.“ thorarinn@frettabladid.is 28 23. júní 2003 MÁNUDAGUR Tveir Hafnfirðingar stóðu og héldutommustokk upp að fánastöng þegar maður kom gangandi framhjá: Hvað eruð þið að gera? spurði maður- inn. Við erum að mæla fánastöngina. Af hverju leggið þið hana ekki niður? Kjáninn þinn, við ætlum að mæla hæð- ina en ekki lengdina!! ■ Mánudagsmatur ■ Jarðarfarir Pondus eftir Frode Øverli Með súrmjólkinni Afmæli MATTHÍAS VIÐAR SÆMUNDSSON ■ dósent í íslenskum bókmenntum ligg- ur rúmfastur í Kaupmannahöfn, líkt og Jónas Hallgrímsson forðum og sér því ekki fram á mikil hátíðarhöld á 49 ára af- mælinu í dag. Það er svo æskutengt,“ segirBjörk Jakobsdóttir leikkona, sem er á hringferð um landið með sýningu sína Sellófon. „Ýsan kem- ur fyrst upp í hugann sem mánu- dagsmatur. Heima hjá mér var alltaf soðin ýsa með kartöflum og hamsatólg. Mánudagsmaturinn hjá mér er meira svona nútímaút- færsla af þessu. Steiktur fiskur eða fiskibollur eru á mínum borð- um á mánudögum.“ ■ Glímt við rómantískan töffara MATTHÍAS VIÐAR SÆMUNDSSON „Mér hefur fundist það vera lítil ástæða að fagna því að maður sé að fær- ast nær grafarbakkanum en það getur verið að ég geri eitthvað á fimmtugs- afmælinu eftir ár.“ 13.30 Hulda Pálsdóttir, frá Hrafnafelli, verður jarðsungin frá Víðistaða- kirkju 23. júní. 13.30 Jóhann Kristinn Guðmundsson, Sóltúni 28, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju 23. júní. 15.00 Kristín Þ. Magnúsdóttir, frá Viðey, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju 23. júní. 13.30 Guðmundur Hermannsson, fyrrv. yfirlögregluþjónn, verður jarðsung- inn frá Bústaðakirkju 24. júní. 13.30 Guðrún Árnadóttir, Hrafnistu Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 24. júní. 13.30 Guðmundur Þórðarson, frá Kíl- hrauni, verður jarðsunginn frá Sel- fosskirkju 24. júní. ■ Andlát Þórey Sverrisdóttir, Ásbraut 9, lést 15. júní. Borgþór Ómar Pétursson, Vesturvangi 1, lést 19. júní. Hjördís Gréta Gunnarsdóttir lést 19. júní. Þorbjörg Samsonardóttir Maher lést 9. júní. ...og nauma for- ystu hefur Korn- fleksístra og Fílapensladólgur á hælum hennar... Pældu í þessum nöfnum... Í miðjum hópnum eru Gul Spægipylsa, Konungur Fletti- rekkans og Bóbó Bjór... og Epískt Loftgat með gríðar- legan sprett... Hvar fá þeir eigin- lega þessi nöfn? Veit ekki... Kannski eru hestamenn með einhvern snaróðan sértrúarprest sem gefur bykkjunum nöfn á koksuðu sýrutrippi... HAHA- HA! Það væri málið! Á sama tíma í Víðidal... ..OG SKALTU HEITA RAFALL BLÓÐSKAFL!!!

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.