Fréttablaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 8
21. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR
Háttsettur meðlimur al-Kaída handtekinn:
Reyndi að ráða til sín
hryðjuverkamenn
WASHINGTON, AP Háttsettur meðlim-
ur hryðjuverkasamtakanna, al-
Kaída, sem handtekinn var í vik-
unni, reyndi að ráða flugmenn til
að taka þátt í sjálfsmorðsárásum í
Bandaríkjunum, að sögn banda-
rískra yfirvalda. Vonast er til þess
að yfirheyrslur yfir Hambali varpi
frekara ljósi á áform hans.
Bandaríska leyniþjónustan CIA
handtók Hambali í samstarfi við
yfirvöld í landi í Suðaustur-Asíu.
Hann hefur nú verið fluttur á ótil-
greindan stað til yfirheyrslu. Að
sögn bandarískra ráðamanna er
Hambali einn af helstu leiðtogum
indónesísku hryðjuverkasamtak-
anna, Jemaah Islamiyah, sem eru
nátengd al-Kaída. Hann er grunað-
ur um aðild að fjölda hryðjuverka,
þar á meðal að sprengjuárásinni
fyrir utan Marriot hótelið í Jakarta
5. ágúst síðastliðinn og árásunum í
Bandaríkjunum 11. september
2001. Hann er einnig sakaður um
að hafa skipulagt árásirnar á Balí í
október á síðasta ári.
Skömmu eftir árásirnar 11.
september komust bandarísk yf-
irvöld yfir upplýsingar um að
Hambali væri að leita að flug-
mönnum til að taka þátt í sjálfs-
morðsárásum. Yfirheyrslur miða
meðal annars að því að komast að
því hvort tilraunir hans báru ár-
angur. ■
Úrelda sláturhús
fyrir 170 milljónir
Þingmaður Frjálslyndra segir nýjar sláturhúsareglur og 170 milljóna
króna úreldingarstyrki ætlað að eyða samkeppni við illa stödd fyrirtæki
með rétt flokkstengsl. Landbúnaðarráðherra segir enga pólitík í málinu.
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin ákvað í
gær að verja 170 milljónum
króna til úreldingar sauðfjárslát-
urhúsa og þróunar í sláturiðnaði.
Úreldingarstyrkirnir koma sam-
hliða hertum reglum um búnað í
sláturhúsunum.
Sigurjón Þórðarson, alþingis-
maður Frjálslynda flokksins, tel-
ur nýju reglurnar vera til höfuðs
minni slátur-
húsum. Losa
eigi þau hús út
af markaðnum
þó þau séu síst
ó h a g k v æ m a r i
en stærri hús.
Nýju reglu-
gerðin er meðal
annars um bún-
að sem uppfyllir
reglur Evrópu-
sambandsins og er ætlaður er til
þess að hægt sé að flá sláturdýr-
in hangandi. Sigurjón telur málið
ekki snúast um neytendur. Ætlun-
in sé að neyða eigi minni húsin til
að hætta í stað þess að láta mark-
aðinn ráða:
„Ef það kemur kjöt sem er í
lagi og þrifalegt þá eru þessu hús
alveg boðleg. Í stærri húsunum er
jafnvel meiri kostnaður við slátr-
unina en í minni húsunum. Reglu-
gerðin kemur einfaldlega sam-
hliða úreldingunni til þess að
neyða minni húsin til að gefast
upp og minnka samkeppni um
kjötið. Þarna eru illa stödd fyrir-
tæki með flokkstengsl að nota sér
opinbert fé og heilbrigðisreglu-
gerðir til að fækka samkeppnisað-
ilum,“ segir Sigurjón.
Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra, segir að enn sé eftir að
útfæra aðgerðina betur. Þeir sem
velji að úrelda, geti gert það strax
í haust eða næsta haust:
„Þetta mun hafa þau áhrif að
taka út hús sem átt hafa við vax-
andi rekstrarerfiðleika að stríða
og reyna styrkja þá önnur með því
að þau fái fleira fé og verði
sterkara á markaðnum. Þetta
snýst auðvitað fyrst og fremst að
því að bændurnir eigi tryggara að
fá sínar afurðir greiddar og
hærra verð,“ segir Guðni.
Landbúnaðarráðherra segir
engin flokkstengsl hafa stjórnað
för í málinu: „Það er engin pólitík
í þessu og engin flokkstengsl.
Menn sjá það nú.“
gar@frettabladid.is
FELUSTAÐUR HAMBALIS
Yfirvöld í Tælandi halda því fram að þau
hafi handtekið Hambali í þessu fjölbýlis-
húsi í borginni Ayutthaya.
SIGURJÓN ÞÓRÐARSON
„Þarna eru illa stödd fyrirtæki með flokkstengsl að nota sé opinbert fé og heilbrigðisreglu-
gerðir til að fækka samkeppnisaðilum,“ segir Sigurjón Þórðarson, alþingismaður Frjáls-
lynda flokksins.
„Ef það
kemur kjöt
sem er í lagi
og þrifalegt
þá eru þessu
hús alveg
boðleg
DUBLIN, AP „Happy hour“ eða
hamingjustund þar sem bar-
gestir fá tvo drykki fyrir verð
eins, heyra nú sögunni til á Ír-
landi eftir að ný áfengislöggjöf
tók gildi þar í landi. Löggjöfinni
er beint gegn ofdrykkju og fel-
ur í sér bann gegn tilboðum öl-
stofa sem hvetja til óhóflegrar
drykkju. Írskum yfirvöldum
þótti nóg um ofbeldið sem
fylgdi drykkjuskap þegnanna
og þrengdi því áfengislöggjöf-
ina.
Lögregla fær, samkvæmt
nýju löggjöfinni, rýmri heimild-
ir til eftirlits og munu óeinkenn-
isklæddir lögreglumenn í fyrsta
sinn fylgjast með börum í land-
inu. Knæpueigendur verða um-
svifalaust sektaðir ef þeir selja
áberandi drukknu fólki áfengi
og getur sektin numið allt að
176.000 krónum. Þá er heimilt
að sekta bargesti um rúmar
40.000 krónur ef þeir fara ekki
að fyrirmælum lögreglu.
Knæpueigendur kvarta sár-
an undan nýju áfengislöggjöf-
inni og segja hana þrengja enn
að rekstrinum.
Áður hafði írska stjórnin
samþykkt algert reykingabann
á írskum börum og tekur það
gildi um áramót. ■
Ný áfengislöggjöf í Írlandi:
Á að draga úr drykkju
ÞRENGRI LÖGGJÖF
Reykingarbann tekur gildi á Írskum knæp-
um um næstu áramót.. Ný og þrengri
áfengislöggjöf hefur þegar tekið gildi.
Samkvæmt henni varðar það sektum að
selja drukknu fólki áfengi og öll tilboð á
áfengi eru bönnuð.