Fréttablaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 32
32 21. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR
■ Popptextinn
■ Frumsýnt um helgina
„Let me see you make decisions, without
your televisions.“
Depeche Mode úr laginu „Stripped“ af plötunni
„Black Celebration“ frá 1986. Texti eftir Martin Gore.
„Nei, Hamborgaratúrinn var bara
afmarkað listaverk. Engin
megrun, kannski smá aðhald.“
Birgir Örn Thoroddsen, eða Bibbi eins og hann er
kallaður, kláraði svokallaðan Hamborgaratúr sinn
á Menningarnótt. Á honum borðaði hann 14
hamborgara á 7 dögum.
Stillt uppvið vegg
Bibbi, er ekki kominn tími á megrun?
28 DAYS LATER
Dómar í erlendum miðlum:
Internet Movie Database 7.3 /10
Rottentomatoes.com 88% = Fersk
Entertainment Weekly B+
Los Angeles Times 4 stjörnur (af 5)
Fréttablaðið - „Einn sá allra besti hryll-
ingur sem sést hefur í bíó síðustu miss-
erin.“ - Þ.Þ.
TOMB RAIDER:
THE CRADLE OF LIFE
Dómar í erlendum miðlum:
Internet Movie Database 5.2 /10
Rottentomatoes.com 26% = Rotin
Entertainment Weekly C-
Los Angeles Times 2 stjörnur (af 5)
Hreimur Örn Heimisson, söngvari Lands & Sona, tók alla lausamuni
úr vösum sínum og opinberar þau leyndarmál sem leynast í vösunum.
Hvað ertu með á þér?
HREIMUR ÖRN HEIMISSON
Var að skipta í evrur af því að
hann er á leið til Spánar.
LYKLAKIPPA
„Þetta eru lyklarnir að Toyota Corolla ‘87. Gamall
jálkur kærustu minnar sem hefur staðist tímans
tönn. Ég keyri þennan bíl sjaldan. Ég er nýbúinn
að selja minn og ætla að kaupa mér annan fljót-
lega. Þarna eru húslyklarnir líka. Er bara með tvo
lykla á kippunni. Lyklakippan mín lýsir mér mjög
mikið. Ég er mjög einfaldur maður.“
51 KR.
„Ég er yfirleitt bara
með kort. Ég var að
skipta peningum í
evrur og setti þetta
í vasann.“
TVÆR NÓTUR, HVAÐ
VARSTU AÐ KAUPA?
„Ég keypti gallapils
handa konunni minni í
Sautján. Þetta er óvænt
gjöf fyrir Spánarferðina.“
ERLENDUR SEÐILL
„Þetta eru hundrað
evrur af þeim sjö-
hundruð sem ég var
að skipta í. Ég er að
fara til Spánar í dag.
Þar ætla ég að slappa
af með unnustu minni.
Við förum í þorp með
strönd rétt hjá. Ég er
voðalega rólegur yfir
öllum hitanum.“
ÖKUSKIRTEINI
„Það er glænýtt. Ég týndi
gamla ökuskírteininu á golf-
vellinum á Akureyri. Ég tók
prófið þegar ég var 17 ára,
árið 1995. Ég náði því við
fyrstu tilraun en er alveg laus
við meirapróf. Ég tek kannski
einhvern tímann atvinnupróf
seinna, mig langar til þess að
kunna á gröfu.“
DEBETKORT
„Það er glænýtt. Það er betra að vera með nýtt
kort fyrir Spánarferðina, þannig að allt sé pott-
þétt. Þá lendir maður ekki í segulrandarvanda-
máli. Ég er alltaf með debetkort. Ég náði í mitt
fyrsta kreditkort í gær. Mér hefur alltaf verið sagt
að þau séu af hinu illa. Svo lærði ég að það er
heilmikið öryggi í því að hafa eitt svoleiðis í út-
löndum. Svona ef eitthvað kæmi upp á. Hef ekki
þurft að stóla á það áður, það er alltaf nóg inni á
bókinni. Maður passar sig á því.“
GSM-SÍMI
„Símanum mínum var þröngvað
upp á mig af fjölskyldufólki og
hljómsveit. Ef ég mætti ráða myndi
ég ekki vera með hann. Ég þoli ekki
GSM-síma. Ég væri hins vegar til í
að eiga GSM-síma með myndavél,
þá þætti mér gaman að honum.“
Hreimur segist slökkva á símanum
sínum þegar hann fer í sumarbú-
stað, þegar hann spilar golf og þeg-
ar hann er í bíó.