Fréttablaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR
Lífið er meira og minna einn línu-dans og samningar um leiðir að
alls konar markmiðum. Það er al-
gengt í þessum dansi að fólk komist
að þeirri niðurstöðu að rétt sé í ein-
hverjum tilvikum að fórna minni
hagsmunum fyrir meiri, og það er
ekkert skrýtið. Það kemur þó fyrir,
ekki síst í pólitík, að tekin er sú
ákvörðun að fórna meiri hagsmunum
fyrir minni. Það er skrýtið.
HVALASKOÐUN hefur undanfar-
in ár verið helsti vaxtarbroddur
ferðaþjónustu á Íslandi og vitað er
að mikill fjöldi fólks kemur hingað
til lands fyrst og fremst í þeim til-
gangi að sigla á haf út og horfa á
hvali. Hvalveiðarnar nú eru blaut
tuska í andlitið á því fólki sem hefur
verið að byggja upp hvalaskoðunar-
ferðir víðs vegar um landið. Hættan
á gríðarlegum samdrætti í þessari
þjónustu hlýtur að vera fyrir hendi.
OFAN Á ÞETTA BÆTIST svo nei-
kvætt viðhorf heimbyggðarinnar
vegna þess sess sem skepnan hvalur
hefur fengið í hugum fólks í hinum
vestræna heimi. Hvert og eitt okkar
getur svo haft sína skoðun á rétt-
mæti þess sem jaðrar við tilbeiðslu á
hvölum. Við getum líka deilt um þau
sjónarmið að það sé ill meðferð á
dýrum að skjóta hvali. Við mannfólk-
ið stundum skotveiðar á fjöldamörg-
um villtum dýrum sem hljóta áreið-
anlega ekki skárri dauðdaga en
blessaðir hvalirnir.
ÞÓ ER við ramman reip að draga
þegar tilfinningarök massans í hin-
um vestræna heimi eru annars veg-
ar. Að vísu hefur okkur, að því er
virðist, tekist að telja umheiminum
trú um að hvalveiðar séu aldagömul
hefð á Íslandi. Þessu virðist fólk trúa
eins og nýju neti og einhverjir fyrir-
gefa okkur líklega á þeim forsend-
um. Á móti kemur að unnið er að því
að gera hvalveiðarnar tortryggilegar
í augum þessa sama fólks með því að
vera á flótta undan fjölmiðlum. Af
hverju má ekki mynda hvalveiðar
eins og aðrar veiðar?
OG HVAÐ FÁUM VIÐ svo í stað-
inn? Við fáum áreiðanlega miklar og
góðar upplýsingar um hrefnustofninn
við Ísland. Og við fáum líka tugi
tonna af kjöti sem mörgum þykir af-
skaplega góður matur. En það er samt
þetta með meiri hagsmuni og minni.
Minni hags-
munir eða meiri