Fréttablaðið - 21.08.2003, Page 14

Fréttablaðið - 21.08.2003, Page 14
VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið hefur sent frá sér viðvörun, þar sem vakin er athygli á því að fyrirtæk- in Team Marketing Intiernational og World Wide Autobank hafi ekki starfsleyfi hér á landi. Viðvörunin er send vegna fyrirspurna og at- hugasemda sem beint hefur verið til eftirlitsins. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir það hafa færst í aukana að fyrirtæki sem ekki hafa starfsleyfi hér á landi bjóði þjónustu sína. „Það eru nokkur fleiri fyrirtæki sem Fjár- málaeftirlitið er að skoða. Það er ástæða til að hvetja fólk til að vera vakandi og fara varlega í við- skiptum við slík fyrirtæki og grennslast fyrir um það hvort þau hafi starfleyfi hér á landi.“ Páll segir að í þessari viðvörun felist enginn dómur um það hversu áreiðanleg þessi fyrirtæki eru. Einungis sé vakin athygli á því að þau hafi ekki tilskilin leyfi. „Hagsmunir fólks kunna að skað- ast ef fyrirtæki starfa ekki eftir þeim reglum sem við þekkjum.“ ■ 14 21. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR ■ Lögreglufréttir ■ Lögreglufréttir LITLA HAFMEYJAN Danir fagna um þessar mundir níræðisaf- mæli Litlu hafmeyjunnar í Kaupmanna- höfn. Borgaryfirvöld ætla að bjóða til af- mælisveislu á laugardaginn til þess að heiðra dömuna. Kynntu þér verðið á www.raf.is FERSK Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI SVEITARSTJÓRNIR Sjálfstæðismenn í borgarráði segja Steinunni Valdísi Óskardóttir, formann skipulags- og byggingarnefndar, hafa rekið fulltrúa íbúa úr samráðsnefnd um uppbyggingu Landsímalóðarinnar í Grafarvogi. Þessu hafnar R-list- inn. Borgarráð samþykkti nýtt deiliskipulag fyrir Landsímalóð- ina á þriðjudag. Sjálfstæðismenn sögðust fagna því að borgarfull- trúar R-listans hefðu komið til móts við sjálfsagðar óskir íbúa hverfisins: „Barátta þeirra hefur varað í nær tvö ár og gengið á ýmsu. For- ystumenn R-list- ans, og þá sérstak- lega borgarfulltrú- ar Samfylkingar- innar, hafa sýnt fólkinu takmarka- lausa óvirðingu. Þetta fólst meðal annars í því að full- trúi íbúanna í samráðshópi var rekinn úr samráðinu af formanni skipulagsnefndar á opnum fundi um málið,“ segir í bókun sjálf- stæðismanna, sem bættu því við að vinnulag meirihluta R-listans í skipulags- og byggingarnefnd væri ólýðræðislegt og óþolandi. Fulltrúar R-listans í borgarráði vísuðu fullyrðingum sjálfstæðis- manna á bug: „Sorglegt að sjá málflutning af því tagi sem þeir hafa haft uppi í málinu. Allir sem málið þekkja vita mæta vel að fulltrúi íbúa í samráðshópi var ekki rek- inn úr samráðinu af formanni skipulagsnefndar, eins og haldið er fram í bókun minnihluta sjálf- stæðismanna. Það er leitt að sjá að menn skuli grípa til ósanninda í viðleitni sinni til að gera vinnu- brögð borgaryfirvalda tortryggi- leg.“ Sem andsvar við þessari bókun R-listans létu sjálfstæðismenn bóka að á fyrrgreindum opnum fundi um Landsímalóðina hafi verið yfir 300 manns. „Ef formað- urinn telur að hún hafi ekki rekið fulltrúa íbúa úr samráðinu á fund- inum, þá eru það bæði fréttir fyr- ir þann íbúa sem og aðra fundar- menn,“ sögðu sjálfstæðismenn. Ólafur F. Magnússon, fulltrúi Frjálslyndra og óháða, sagði ekki liggja fyrir hvort núverandi til- laga um skipulag lóðarinnar sé í fullri sátt við íbúanna. „Hafi slík sátt ekki náðst um málið, hefur ekki verið staðið við gefin fyrir- heit af hálfu áðurnefnds fulltrúa meirihlutans frá 7. maí síðastlið- inn og fyrirheit R-listans fyrir borgarstjórnarkosningarnar vor- ið 2002,“ sagði Ólafur. gar@frettabladid.is BRAUST INN Í FÉLAGSMIÐSTÖÐ Öryggisvörður Securitas kom að manni sem brotist hafði inn í fé- lagsmiðstöð í Breiðholti í fyrri- nótt. Lögreglan í Reykjavík var kölluð til og handtók manninn. Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku. BÍLAVARAHLUTUM STOLIÐ Brotist var inn í fyrirtæki í Nethyl í fyrrinótt. Bílavarahlutum og ýmsu smálegu var stolið. Ekki er vitað hverjir voru að verki. Málið er í rannsókn lögreglu. LENTI Á GIRÐINGARSTAUR Þýsk- ur ferðamaður keyrði út af vegi þegar hann missti stjórn á bifreið sinni á malarvegi við Sauðá á Vatnsnesi. Bíllinn valt ekki, held- ur endaði á girðingarstaur. Þjóð- verjinn slapp ómeiddur en bíllinn laskaðist nokkuð. SKARST Á FINGRI Kona skarst á fingri við vinnu sína hjá Útgerð- arfélagi Akureyringa. Hún var flutt til læknis með sjúkrabíl þar sem illa gekk að stöðva blæð- ingu. Hún reyndist ekki alvar- lega slösuð. Fjölskylduharmleikur: Systkini skot- in til bana DETROIT, AP Þrjú ung börn fundust látin í kjallara brennandi íbúðar- húss í Detroit í Bandaríkjunum. Lögregla lýsir eftir föður barn- anna sem flúði af vettvangi á hjóli eftir að kviknað hafði í húsinu. Börnin þrjú höfðu verið skotin til bana en fjórða barnið, níu ára gömul stúlka, var flutt á sjúkra- hús með lífshættulega áverka. Lögreglan í Detroit segir að flest bendi til þess að kveikt hafi verið í húsinu til að hylma yfir glæp og leitar að föður barnanna, Anthony Lamar Bailey, til að varpa frekara ljósi á málið. Að sögn nágranna Bailey var hann nýskilinn við móður barn- anna og hafði tekið að sér uppeldi þeirra. ■ VESTUR-VIRGINÍA, AP Bandarískum yfirvöldum hafa borist hundruð ábendinga í tengslum við rann- sóknina á þremur leyniskyttu- morðum fyrir utan verslanir í Kanawha-sýslu í Vestur-Virginíu. Lögreglan segir að ákveðið hafi verið að rannsaka frekar tíu vís- bendingar og yfirheyra nokkra menn sem grunaðir eru um aðild að málinu. Fyrir tæpum tveimur vikum var 44 ára karlmaður skotinn til bana fyrir utan bensínstöð í bæn- um Charleston. Fjórum dögum síðar voru maður á þrítugsaldri og 31 árs kona myrt með 90 mín- útna millibili fyrir utan bensín- stöðvar í Campbells Creek. Morð- in voru öll framin að kvöldi til og fórnarlömbin skotin með riffli í háls eða höfuð af um það bil 30 metra færi. Ekki liggur fyrir hvort fólkið þekktist, en verið er að rannsaka hvort hugsanlegt sé að morðin tengist eiturlyfjasölu. Skotárásirnar hafa vakið upp minningar um leyniskyttumorðin í Virginíu, Maryland og nágrenni Washington á síðasta ári. Sér- fræðingar frá bandarísku alríkis- lögreglunni, FBI, sem tóku þátt í að rannsaka leyniskyttumorðin, eru komnir til Vestur-Virginíu til þess að leggja lögreglunni þar lið í rannsókninni. ■ Þrír skotnir til bana á tveimur vikum: Minnir á leyni- skyttumorðin LÖGREGLUMAÐUR VIÐ STÖRF Lögreglumenn hafa rætt við fjölda íbúa í Campbells Creek til þess að afla upplýsinga sem gætu komið að notum við rannsókn á þremur skotárásum. Sjálfstæðismenn í borgarráði segja formann skipulags- og byggingar- nefndar hafa rekið fulltrúa íbúa í Rimahverfi úr samráðsnefnd um upp- byggingu Landsímalóðarinnar. R-listinn segir þetta ósannindi. LANDSÍMALÓÐIN Sjálfstæðismenn í borgarráði segja vinnulag R-listans í skipulags- og byggingarnefnd vera „ólýðræðislegt og óþolandi.“ R-listinn vísar þessu á bug: „Leitt að sjá að menn skuli grípa til ósanninda,“ segja fulltrúar þeirra í borgarráði. ■ Sérstaklega borgarfulltrúar Samfylkingar- innar hafa sýnt fólkinu tak- markalausa óvirðingu. Bjóða þjónustu án leyfis: Varað við fjármálafyrirtækjum PÁLL GUNNAR PÁLSSON Fjármálaeftirlitið telur ástæðu til að vara fólk við fjármálafyrirtækjum sem bjóða þjónustu hér á landi án þess að hafa starfsleyfi. Brigsl um lygi og valdníðslu BROTIST INN Í BÍL Geislaspilara var stolið úr bíl sem stóð á bíla- stæði við heimahús í Mosfellsbæ. Rúða hafði verið brotin til að komast inn í bílinn. Innbrotið er óupplýst. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.