Fréttablaðið - 21.08.2003, Síða 21

Fréttablaðið - 21.08.2003, Síða 21
21FIMMTUDAGUR 21. ágúst 2003 Sendum í póstkröfu um allt land. Smáralind - Glæsibæ Sími 545 1550 og 545 1500 Smáralind mán.-fös. kl. 11-19 lau. kl. 11-18 sun. kl. 13-18 Glæsibæ mán.-fös. kl. 10-18 lau. kl. 10-16 OPIÐ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 19 38 08 /2 00 3 Full af tilhlökkun Bakpokar Verð frá: 2.290 kr. Íþróttagallar Verð frá: 4.990 kr. Íþróttastuttbuxur Verð frá: 1.490 kr. Flíspeysur Verð frá: 3.990 kr. Skór Verð frá: 3.490 kr. Heimsókn í Útilíf er góð byrjun á skemmtilegri skólagöngu. REYKJAVIK GRAPEVINE Útgáfan hefur gengið vel í sumar, en þó ekki áreynslulaust. „Ég get ímyndað mér að það sé ferlegt að gefa út blað á hverj- um degi, eins og þið gerið,“ segir Jón Trausti við blaðamann Fréttablaðsins. Síðasta blað- ið í sumar ÚTGÁFA Þeir sem hafa fagnað út- gáfu blaðsins Reykjavik Grape- vine, sem skrifað er á ensku og er gefins á fjölförnum stöðum, verða nú að bíta í það súra epli að sumarvertíðinni er lokið. Það var ákveðið frá upphafi útgáf- unnar að gefa aðeins út yfir sumartímann. Sú staðreynd að síðasta tölublaði Grapevine í ár verður dreift í dag er því fyrsta vísbending um komandi haust. „Á forsíðu síðasta blaðsins verður flugmaður Landhelgis- gæslunnar,“ sagði Jón Trausti Sigurðarson ritstjóri í gær á tánum þegar þrír klukkutímar voru í það að blaðið færi í prent- un. „Auk þess að fjalla um al- mennt efni eru greinar um Ís- land, Þorskastríðið og Evrópu- sambandið. Aðeins meiri pólitík en áður.“ Hann segist ekki hafa orðið var við nein neikvæð viðbrögð í sumar. Undrast svo yfir því hvaðan jákvæðu viðbrögðin hafa komið. Allt frá ungri blaða- stúlku sem ber blaðið út á Sel- fossi til þess að allri ritstjórn- inni var boðið í te í breska sendi- ráðinu. Grapevine mun halda áfram á Netinu í vetur, www.grapevine.is, og stefnt er á að það birist aftur á prenti í lok maí eða byrjun júní á næsta ári. Stefnt er á að gefa út a.m.k. sjö blöð næsta sumar. Vetrarútgáfa verður ekki framkvæmanleg vegna náms. ■ Heimi Karlssyni líst rosalega velá komandi tímabil í enska bolt- anum: „Ég held að enski boltinn hafi sjaldan verið jafn mikið í fréttum og núna í sumar, bæði vegna Davids Beckhams og nýs eiganda Chelsea. Einnig er innkoma manna eins og Ronaldos ekki bara frábær fyrir United heldur alla fótboltaunnend- ur,“ segir Heimir. Heimir er ánægður með sam- starfsmann sinn Guðna Bergsson, fyrrum atvinnumann í Bolton. „Það eru ekki allar sjónvarpsstöðvar fyr- ir utan England sem hafa aðgang að slíkum viskubrunni. Íslenskir sjón- varpsáhorfendur geta hrósað miklu happi yfir því.“ Heimir, sem er 42 ára gamall, er fyrrverandi íþróttafréttamaður á Stöð 2. Undanfarin ár hefur hann verið með eigin fyrirtækjarekstur og jafnframt unnið hjá breskum fyrirtækjum. „Nú síðast vann ég sem sölu- og markaðsstjóri fyrir ráðgjafafyrirtæki á sviði orku- sparnaðarúrlausna. Ég vann þar í tvö ár og það var mjög gaman.“ Heimir segist hafa stefnt að því að koma heim til Íslands eftir eitt ár: „Ég á börn og fjölskyldu úti. Dætur mínar tvær eru orðnar 8 og 11 ára og þetta var orðin spurning um hvort þær yrðu enskar eða ís- lenskar. Síðan kom þetta upp á borð- ið með Guðna Bergs. Þetta var spennandi og skemmtilegt við- fangsefni og ég ákvað bara að slá til.“ Þess má geta að eiginkona Heimis heitir Rúna Guðmundsdótt- ir og er í ráðgjafanefnd fyrir BBC í Yorkshire. Hún lauk nýverið mastersnámi í sagnfræði og hyggur á doktorsnám í faginu. Fyrir utan fótboltann á Heimir sér tvö megináhugamál. „Ég hef alltaf rosalega gaman af því að taka í golfkylfuna. Svo hef ég svakalega gaman af því að fylgjast með þjóð- félagsmálum og pólitík.“ Uppáhaldslið Heimis í enska boltanum er Derby County, sem leikur í 1. deild. „Ég hef líka alltaf haldið með Íslendingaliðunum. Svo á Newcastle sterkar taugar í mér, aðallega vegna þess að mér þykir svo vænt um Bobby Robson knatt- spyrnustjóra. Hann er svo indæll karl þó ég þekki hann ekki neitt.“ freyr@frettabladid.is Tímamót HEIMIR KARLSSON ■ stjórnar þættinum Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Uppáhaldslið hans á Englandi er Derby County. Hann ber engu að síður sterkar taugar til Newcastle. HEIMIRHeimir segir að íslenskir sjónvarpsáhorf- endur geti hrósað happi yfir því að hafa aðgang að viskubrunninum Guðna Bergs. Bobby Robson er indæll karl JOE STRUMMER Joe Strummer, söngvari bresku pönkhljóm- sveitarinnar The Clash, fæddist á þessum degi fyrir 51 ári síðan. Strummer lést úr hjartaáfalli þann 22. desember í fyrra.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.