Fréttablaðið - 21.08.2003, Síða 23

Fréttablaðið - 21.08.2003, Síða 23
Það getur valdið miklumhausverk og jafnvel andvökunóttum að finna réttu gjöfina fyrir ættingja eða vini. Sumir virðast ein- faldlega eiga allt og þá eru góð ráð dýr. Gjafakort geta leyst mikinn vanda. Í stað þess að eyða ómældum tíma í búðarölt og bollalegg- ingar um hvað þessi eða hinn á eða á ekki getur ver- ið hentugt að skella sér í Smára- lind eða Kringluna og fjárfesta í gjafakorti. Kortin gilda í allar búðir nema vínbúðina og eru áreiðanlega vel þegin. ■ FIMMTUDAGUR 21. ágúst 2003 23 fer vel með hárið Sjampóin frá Allison innihalda Phanthenol og Pro-b5 vítamín sem bindast hárinu, bæta raka- stigið og gefa hárinu fallegan gljáa. •andlitslína•líkamslína•hárlína Allison Hárnæring fyrir allar tegundir af hári. Gefur góða vörn við efnameðferð og hárblæstri. Fæst í apótekum E in n t v e ir o g þ r ír 3 21 .0 0 4 GJAFABRÉF Sumir virðast bókstaflega eiga allt og þá getur verið sniðugt að kaupa gjafabréf. Sniðug gjöf: Gjafabréf í stað andvökunótta Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir,þáttastjórnandi morgunþáttar- ins Íslands í bítið á Stöð 2, er ekki í vafa um hvað er það þægilegasta sem finnst í fataskápnum hennar. „Það er náttúrlega náttsloppurinn og ég er ekkert að grínast með það. Þegar maður er heimavinnandi húsmóðir hálfan daginn þá er mað- ur oft í náttslopp.“ Sloppurinn hennar Ástu er kóngablár úr silki en foreldrar hennar keyptu hann á ferðalagi sínu í Peking í Kína. „Þetta er al- vöru sloppur,“ segir hún. „Það er alveg svakalega flottur dreki aftan á honum sem er handsaumaður.“ Til að toppa allt gengur Ásta í inni- skóm með blómum og er því ansi skrautleg. „Þegar ég er ekki að vinna eins og til dæmis um helgar þá er ég ekkert að flýta mér að klæða mig fyrr en eftir hádegi. Það er engin ástæða til þess þegar maður er að skipta á bleium og skúra gólf og allt annað sem þarf að gera.“ ■ ESTÉE LAUDER Í DEBENHAMS Ráðgjafi frá Estée Lauder verður í Debenhams í Smáralind á föstu- daginn frá klukkan 13 til 18 og á laugardaginn milli 13 og 17. Ný lína í augnskuggum frá Estée Lauder, sem einkennist bæði af náttúrulegum og djörfum litum, verður kynnt og aðstoðað verður við val á litum. TILBOÐ Á TÍSKUFATNAÐI Alls kyns tilboð á tískufatnaði fyrir skólann eru í gangi á sérstökum skóladögum sem nú standa yfir í Smáralind. Debenhams, Hag- kaup, Retro, Cher og Blend of America eru meðal þeirra búða sem bjóða upp á afslátt en skóla- dögunum lýkur næstkomandi sunnudag og því fer hver að verða síðastur. Það þægilegasta í fataskápnum: Kínverskur kónga- blár silkináttsloppur FORLÁTA NÁTTSLOPPUR FRÁ KÍNA Foreldrar Ástu keyptu kóngabláa sloppinn á ferðalagi sínu í Kína. Hann er án vafa það þægilegasta í fataskápnum hennar Ástu. ■ Úr búðunum FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.