Fréttablaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 30
30 21. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR ÁFRAM FÆREYJAR Fjöldinn allur af Færeyingum lagði leið sína á Þórsvöll í gær og studdu vel við bakið á sínum mönnum. Landsleikur Landsliðsþjálfarinn um leik Íslands og Færeyja: Lélegasti leikur liðsins FÓTBOLTI „Við vissum að þetta yrði erfiður leikur. Við skoruðum snemma en ég var ekki sáttur við spilið hjá íslenska liðinu,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson landsliðs- þjálfari að leik loknum. „Við átt- um í erfiðleikum með færeyska liðið. Það náði að jafna en eftir markið náðum við tökum á leikn- um og stjórnuðum honum til enda. Það var mikil spenna síð- ustu mínúturnar en við náðum að knýja fram sigur.“ Ásgeir sagði sigur Íslands sanngjarnan en bætti við: „Þetta var lélegasti leikur sem íslenska liðið hefur átt í þessari keppni.“ Hann vildi ekki nefna bestu leikmenn liðsins en sagði þó Her- mann Hreiðarsson hafa staðið fyrir sínu. Aðspurður hvort hann teldi Ís- lendinga líklega sigurvegara í 5. riðli undankeppninnar sagði Ás- geir: „Við erum kannski ekki lík- legastir en við eigum möguleika gegn Þjóðverjum.“ ■ Ísland í efsta sæti Íslensku strákarnir unnu Færeyinga í gær með tveimur mörkum gegn einu. Pétur Hafliði Marteinsson hetja Íslendinga. Ísland í efsta sæti 5. riðils undankeppni EM. FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu lagði það færeyska að velli í gær með tveimur mörk- um gegn einu. Ísland skaust þar með í efsta sæti 5. riðils und- ankeppni Evrópumótsins með tólf stig, einu stigi meira en Þýska- land, sem er í öðru sæti. Aðstæður til knattspyrnuiðk- unar voru ekki góðar á Þórsvelli í gær enda úrhellisdemba og völl- urinn þungur. Fyrstu mínúturnar þreifuðu bæði lið fyrir sér en ekki leið á löngu þar til Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrsta mark- ið, strax á 6. mínútu. Eiður Smári náði boltanum rétt fyrir utan víta- teig, lék í átt að markinu og renndi boltanum í hornið fjær, framhjá tveimur varnarmönnum og Jákup Mikkelsen í marki Fær- eyinga. Lítið annað markvert gerðist í fyrri hálfleik og voru Færeyingar vægast sagt afar hugmynda- snauðir í sóknarleik sínum. Seinni hálfleikur var mun fjörugri en sá fyrri. Heimamenn færðu sig framar á völlinn og náðu að skapa sér nokkur hættu- leg færi. Þeir fengu aukaspyrnu rétt utan vítateigs á 60. mínútu. Þótt spyrnan hafi verið slök vökn- uðu þeir til lífsins og voru líklegri til að skora. Það var svo á 66. mín- útu að Rógvi Jacobsen jafnaði metin með góðum skalla. Rógvi skoraði einnig með skalla þegar liðin áttust við á Laugardalsvelli í fyrri viðureign þjóðanna. Íslensku strákunum virtist brugðið en létu markið ekki slá sig út af laginu. Helgi Sigurðsson fékk dauðafæri strax eftir markið en Mikkelsen varði slakt skot hans. Það var síðan Pétur Hafliði Mart- einsson sem var hetja Íslendinga þegar hann skoraði sigurmarkið tuttugu mínútum fyrir leikslok. Pétur Hafliði, sem hafði staðið sig vel í vörn Íslendinga, laumaði sér framhjá færeysku varnarmönnun- um og setti knöttinn í netið. Færeyingar sóttu stíft það sem eftir lifði leiks en íslensku strák- arnir vörðust vel og hrósuðu sigri í lokin. Glæsilega að verki staðið. Íslenska liðið stóð sig með sóma í gær. Vörnin stóð sig vel þegar á reyndi og að öðrum leik- mönnum ólöstuðum voru Pétur Hafliði, Hermann Hreiðarsson og Eiður Smári bestu menn vallarins. Íslendingar eiga tvo leiki eftir í riðlakeppninni, báða gegn Þjóð- verjum. Fyrri leikurinn verður á Laugardalsvelli þann 6. septem- ber en sá síðar í Þýskalandi 11. október. ■ Eiður Smári Guðjohnsen: Fimm mörk af ellefu FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohn- sen, fyrirliði íslenska landsliðs- ins, skoraði í gær fimmta mark sitt í sex leikjum í undankeppni Evrópumótsins. Eiður Smári skoraði tvö mörk gegn Litháum á Laugardalsvelli, eina mark liðsins gegn Skotum á útivelli og eitt mark af þremur gegn Lithá- um úti. Einu leikirnir sem Eiður hef- ur ekki skorað í eru gegn Skot- um og Færeyingum hér heima. Eiður er sem stendur lang- markahæstur íslensku leik- mannanna. ■ ÁSGEIR SIGURVINSSON Landsliðsþjálfarinn var ekki sáttur við leik íslenska liðsins. Hvað fannst þeim um leikinn: Ekki fallegur fótbolti „Mér fannst þetta ekki vera sérstaklega fallegur fótbolti af okkar hálfu,“ segir Rúnar Freyr Gíslason leikari. „Samt fékk ég á til- finninguna í byrjun að þetta væri leikur sem við myndum ná að vinna. Svo jafna þeir og eftir það leit út fyr- ir að þeir myndu jafnvel ná að sigra. En þá kom Pétur Marteins- son og reddaði okkur.“ Leiðinlegur leikur „Mér fannst þetta ótrúlega leiðinlegur leikur. Það kom smá spenningur rétt áður en Færey- ingar skoruðu sem hélst nánast út leikinn. Þetta var samt lág- marksspenna,“ segir Katrín Júlí- usdóttir þingkona. „Það var eitt sem kom mér á óvart. Pétur Hafliði Marteinsson átti góða endurkomu og markið hans var lúmskt og flott. Ég er samt hrædd um að Íslendingar þurfi að taka sig saman í andlitinu fyr- ir Þjóðverjaleikinn. Færeying- arnir voru ekki að gera mikið en það breytir því ekki að við unn- um leikinn og erum í efsta sæti riðilsins.“ Svolítið vonsvikinn „Ég er svolítið vonsvikinn því mér fannst að Færeyingar hefðu átt að ná að minnsta kosti jafntefli í leikn- um,“ segir Finn Gærbo, Færey- ingur sem bú- settur hefur verið á Íslandi. „Þetta var nokk- uð góður leikur. Íslendingarnir voru ekkert sér- staklega sannfærandi í leiknum og mér fannst sigurinn ekki vera sanngjarn. Eiður Smári var án efa besti maðurinn á vellinum en það sást hins vegar vel í þessum leik að Færeyingana vantar alveg góða framlínumenn.“ Þrjú stig „Þeir fengu þrjú stig,“ sagði Bubbi Morthens tónlistarmaður um leik Færeyinga og Íslendinga. „Það er greinilegt að þeir eru ekki komnir í spilæf- ingu. Sérstaklega sá maður það á erlendu stór- stjörnunum. En þetta var alveg þolanlegt.“ Færeyingar komu Bubba á óvart. Honum fannst þeir leika vel, sérstaklega í seinni hálfleik, en þá minntu þeir á Íslendinga fyrir svona tíu árum. FÓTBOLTI Með sigrinum í gær náði íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu toppsæti 5. riðils í und- ankeppni Evrópumótsins. Ísland hefur eins stigs forystu á Þjóðverja og fjögurra stiga for- ystu á Skota en þessar þjóðir eiga báðar leik til góða. Þjóðverjar eiga erfiðar viður- eignir fram undan. Þeir mæta Ís- lendingum á heimavelli þann 6. september og Skotum fjórum dög- um seinna. Möguleikar Íslendinga á sæti á Evrópumótinu í Portúgal verða að teljast töluverðir. Það lið sem nær efsta sæti riðilsins fer beint á EM en liðið í öðru sæti leikur í umspili um laust sæti. Dregið er um mótherja og er leik- ið heima og að heiman. Fyrri viðureignirnar verða 15. eða 16. nóvember og þær síðari þremur dögum síðar. ■ STAÐAN Í 5. RIÐLI L U J T Stig Ísland 6 4 0 2 12 Þýskaland 5 3 2 0 11 Skotland 5 2 2 1 8 Litháen 6 2 1 3 7 Færeyjar 6 0 1 5 1 NÆSTU LEIKIR: Skotland - Færeyjar 6. september Ísland - Þýskaland 6. september Þýskaland - Skotland 10. september Færeyjar - Litháen 10. september Skotland - Litháen 11. október Þýskaland - Ísland 11. október 5. riðill EM í fótbolta: Miklir möguleikar FÓTBOLTI Henrik Larsen, lands- liðsþjálfari Færeyinga, var mjög vonsvikinn með leikinn. „Mér fannst við helmingi betri í dag en í síðasta leik gegn Íslandi og jafntefli hefði verið sanngjörn úrslit því íslensku mörkin voru ódýr. Færeyska liðið pressaði vel í síðari hálfleik og það var mjög svekkjandi að fá á sig mark úr hornspyrnu, skömmu eftir að við höfðum jafnað.“ Oli Johannesen, fyrirliði Fær- eyja, var sömuleiðis svekktur. „Ég er ekki sáttur með úrslitin. Jafntefli hefði verið sanngjarnt, sérstaklega þar sem við spiluð- um vel í seinni hálfleik. Við lend- um alltaf í erfiðleikum þegar andstæðingurinn fær horn- spyrnu og það gerðist aftur í dag.“ ■ HENRIK LARSEN Var mjög svekktur með úrslit leiksins. Færeyingar um leikinn: Jafntefli hefði verið sanngjarnt MARK Eiður Smári Guðjohnsen skorar hér fyrsta mark Íslands gegn Færeyjum á Þórsvelli í gær. Færeyingar jöfnuðu en Pétur Hafliði Marteinsson skoraði sigurmarkið eftir hornspyrnu. Eiður og Pétur voru meðal bestu manna íslenska liðsins. M YN D /F IN N

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.