Fréttablaðið - 21.08.2003, Side 31

Fréttablaðið - 21.08.2003, Side 31
31FIMMTUDAGUR 21. ágúst 2003 EIÐUR SMÁRI Liðinu tókst að krækja í þrjú stig. Eiður Smári: Þurftum þrjú stig FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði Íslands, sagði íslenska liðið hafa bakkað of mikið í seinni hálfleik í stað þess að mæta heimamönnum og reyna að skora annað mark. „Við getum kennt sjálfum okk- ur um markið því ef við hefðum pressað á þá hefðum við ekki fengið það á okkur,“ sagði Eiður Smári. Eiður Smári vildi ekki segja til um hvort sigurinn hefði verið sanngjarn. „Ég veit ekki hvort sigurinn var sanngjarn en það er eitthvað sem við spáum ekki í. Við þurft- um á þremur stigum að halda og það tókst,“ sagði landsliðsfyrir- liðinn. ■  18.30 Heimsfótbolti West World á Sýn.  19.00 Grannaslagur verður í 1. deild karla þegar HK mætir Breiðabliki á Kópavogsvelli.  19.00 Njarðvík fær Stjörnuna í heimsókn í 1. deild karla.  19.00 Mosfellingarnir í Aftureld- ingu sækja Hauka heim að Ásvöllum í 1. deild karla.  19.40 Sýnt verður frá golfmóti í PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum á Sýn.  20.30 Í Kraftasporti á Sýn verður fylgst með kraftakeppni í Þorlákshöfn.  22.00 Vikan í enska boltanum verður gerð upp á Sýn.  22.30 Fjallað er um helstu íþrótta- viðburði heima og erlendis í Olíssporti á Sýn. hvað?hvar?hvenær? 18 19 20 21 22 23 24 ÁGÚST Fimmtudagur Evrópukeppni kvennaliða: KR tapaði leiknum FÓTBOLTI KR tapaði 1-3 fyrir ZFK Masinac frá Serbíu og Svart- fjallalandi í 1. umferð 1. riðils Evrópukeppni félagsliða kvenna í gær. Leikurinn fór fram í Bröndby, skammt utan Kaup- mannahafnar. Hrefna Jóhannes- dóttir, fyrirliði KR, skoraði fyrsta markið eftir fimmtán mínútna leik. ZFK Masinac jafn- aði upp úr miðjum seinni hálf- leik og bætti tveimur mörkum við á síðustu tíu mínútunum. KR leikur gegn Bröndby á föstu- dag en gestgjafarnir unnu Kilmarnock 2-0 í gær. ■ Marteinn Geirsson um leikinn: Mikilvægur sigur FÓTBOLTI „Það sem stendur upp úr er að Ísland vann og það var mjög mikilvægt,“ sagði Marteinn Geirsson, fyrrum landsliðsmaður og faðir Péturs Hafliða sem skor- aði sigurmark Íslendinga gegn Færeyingum. „Það var búið að tala mikið um að þessi leikur yrði að vinnast. Það bitnaði kannski á getu liðsins, hraða og spila- mennsku. Mér fannst á köflum Færeyingarnir miklu meira í bolt- anum og spila mun betur.“ Marteini fannst íslensku strák- arnir aldrei komast almennilega í gang. „Varnarmennirni spiluðu ágætlega, þeir héldu boltanum ágætlega og spiluðu honum vel sín á milli. Mér fannst miðju- mennirnir ekki nógu vinnusamir. Þeir hlupu mikið en skiluðu ekki nógu miklu. En þetta voru erfiðar aðstæður, blautur völlur. Færey- ingarnir gerðu sitt besta til að vinna okkur í fyrsta skipti og lögðu allt í sölurnar.“ Marteinn sagði að það hefði verið eins og Íslendingar þyrftu að fá á sig mark til þess að taka við sér að nýju og jöfnunarmarkið kom á hentugum tíma því Íslend- ingarnir höfðu 25 mínútur til að skora eftir að Færeyingarnir jöfn- uðu. Marteinn segir að sér hafi sýnst strax eftir að dregið var í riðla fyrir keppnina að Ísland ætti góða möguleika og fram undan er mikilvægur leikur við Þjóðverja á Laugardalsvelli. „Þetta verður bara eins og Frakkaleikurinn á sínum tíma. Við þurfum að fá gríðarlega stemningu og hvatn- ingu á þeim leik því við höfum aldrei verið eins nálægt því að komast í alvöru keppni.“ ■ MARTEINN GEIRSSON Var stoltur af Pétri Hafliða syni sínum sem skoraði sigurmarkið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.