Fréttablaðið - 21.08.2003, Síða 33

Fréttablaðið - 21.08.2003, Síða 33
33FIMMTUDAGUR 21. ágúst 2003 Þegar rafmagniðfór af hluta aust- urstrandar Banda- ríkjanna trylltist Courtney Love og kærði fyrrum um- boðsmann sinn, Dave Lory, og Sony-for- ingjann Josh Deutsch fyrir tilraun til nauðgunar. Hún hef- ur nú dregið kæruna til baka en sagðist hafa misst vitið í smá tíma vegna ofsa- hræðslu. Þannig er að hún býr í flottri íbúð í New York, í sama húsi og Nicole Kidman, en Nicole og aðrir íbúar hússins voru ekki heima svo hún var ein í þessu stóra húsi og segist hreinlega hafa orðið dauðskelkuð. Hún hefur því dregið allt til baka og beðið þá félaga Dave Lory og Josh Deutsch af- sökunar. ■ Kylie Minogue og leikarinnRussell Crowe ætla að taka lagið saman fyrir úrslitaleik úr- valdsdeildar ástralska rúgbís- ins. Vandamálið er að finna lag sem bæði geta sætt sig við. Tónlistarstíll þeirra er víst svo ólíkur að parið á erfitt með að finna lag sem bæði langar að syngja. Ríkisstjórn Bosníu hefur sam-þykkt lög sem gera það að verkum að ólöglegt verður að segja ljóskubrandara. Frumvarp- ið, sem tekur á jafnrétti kynj- anna, gefur konum kost á því að kæra hvern þann sem gerir grín að háralit þeirra. Lög þessi munu taka gildi innan tveggja mánaða. Enginn gerði sér í rauninni grein fyrir því að nýja löggjöfin væri jafn víðtæk og raun ber vitni fyrr en Savima Terzic, stjórnandi alþjóðlegra mannrétt- indasamtaka, benti á þetta í blaðaviðtali. Þetta á eflaust eftir að verða til þess að mörg undarleg dóms- mál munu sjá dagsins ljós í land- inu á næstu mánuðum og árum, þar sem ljóskubrandarar eru sagðir mjög vinsælir í Bosníu. Það er því eins gott að láta ekki einn slíkan flakka í návist hörundsárrar ljósku með nægi- legt peningavit til þess að vita að lögsókn getur borgað sig. ■ ■ Skrýtna fréttin LJÓSKAN Hvað sagði ljóskan við svínið eftir að það sagði lélegan ljóskubrandara? „Sjáumst í réttarsalnum, svínið þitt!“ Ljóskubrandarar bannaðir með lögum COURTNEY LOVE Varð logandi hrædd í rafmagns- leysinu í New York á dögunum. Courtney Love: Dró nauðgunar- kæru til baka Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.