Fréttablaðið - 21.08.2003, Page 34

Fréttablaðið - 21.08.2003, Page 34
■ ■ KVIKMYNDIR Sjá www.kvikmyndir.is  Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800  Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900  Háskólabíó, s. 530 1919  Laugarásbíó, s. 553 2075  Regnboginn, s. 551 9000  Smárabíó, s. 564 0000  Sambíóin Keflavík,Ýs. 421 1170  Sambíóin Akureyri, s. 461 4666  Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500  12.00 Smekkleysubíó í Hafnar- húsinu. Tónlistarmyndin Rokk í Reykja- vík verður sýnd í fjölnotasalnum. ■ ■ ÚTIVIST  21.00 Gengið verður um slóðir drauga, álfa, skrímsla og afbrotamanna í Elliðaárdal. Lagt verður upp frá miða- sölu Árbæjarsafns og tekur gangan rúmlega klukkustund. Leiðsögumaður er Helgi M. Sigurðsson, sagnfræðingur og deildarstjóri á Árbæjarsafni. Þátttaka er ókeypis. ■ ■ FYRIRLESTUR  17.00 David Winickoff flytur erindi um nýjar leiðir til að stjórna erfðavís- indum í sal 101 í Odda. Hann dvaldi hér á landi í nokkra mánuði, á meðan hann var í laganámi við Harvard, og kynnti sér þá meðal annars gagna- grunnsmálið. ■ ■ UPPLESTUR  21.00 Ármann Reynisson les úr vinjettum sínum á Bistro í Skálafelli á Seyðisfirði. Muff Worden leikur með á keltneska hörpu. ■ ■ TÓNLIST  12.00 Veronika Ostenhammer sópransöngkona og Friðrik Vignir Stef- ánsson orgelleikari koma fram á hádeg- istónleikum í Hallgrímskirkju. Á efnis- skrá þeirra er tónlist eftir meistara Bach.  20.00 Tón- og myndlistarmennirnir Egill Sæbjörnsson og Ragnar Kjartans- son munu flytja tón- og myndgjörning- inn Fjögur tilbrigði við sorg í fjölnotasal Hafnarhússins. Hljómsveitin Kimono stígur á svið á sama stað klukkustund síðar og flytur ný lög. Aðgangur er ókeypis og stendur dagskráin til 22.  20.00 Kammersveitin Ísafold lleikur tuttugustu aldar tónlist á tónleik- um í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg.  21.30 Kvartett Kidda og Gúa spil- ar djass á heitum fimmtudegi í Deigl- unni á Akureyri. Kristján Guðmundsson á píanó, Gunnar Ringsted á gítar, Jón Rafnsson á bassa og Ingvi Rafn Ingvars- son á trommur.  22.00 Deep Purple Tribute tón- leikar á Gauknum með Eiríki Hauks- syni söngvara, Jóhanni Ásmundssyni á bassa, Sigurgeir Sigmundssyni á gítar og Þóri Úlfarssyni á hljómborð.  DJ Mative verður á Vídalín.  Gunnar Óla og Einar Ágúst úr Skítamóral trúbadúrast á Nelly’s.  Blackbird sér um diskana á Lauga- vegi 11.  Óskar Einarsson trúbador skemmtir á Ara í Ögri. ■ ■ SÝNINGARLOK  Sumarsýningu Listasafns Sigurjóns Ólafssonar, Andlitsmyndir og afstrak- sjónir, lýkur í dag. Á sýningunni er breitt úrtak verka eftir Sigurjón Ólafsson frá ólíkum tímum starfsferils hans. ■ ■ SÝNINGAR  Danski myndlistarmaðurinn Claus Hugo Nielsen sýnir verk sín í Gallerí Dvergi við Grundarstíg 21, 101 Reykja- vík. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 17-19 til 31. ágúst.  Guðrún Benónýsdóttir sýnir ljós- mynd og skúlptúra í Gallerí Hlemmi. Sýningin stendur til 31. ágúst.  Baldvin Ringsted og Jóna Hlíf Hall- dórsdóttir eru með myndlistarsýningu í Bögglageymslunni, Listagilinu á Akur- eyri. Opið virka daga 17-22 og um helg- ar 14-18. Sýningin stendur til 1. septem- ber.  Kristján Guðmundsson er með sýn- ingu í Kompunni, Kaupvangsstræti 23. Akureyri. Á sýningunni er eitt verk gert úr plasti og gulli. Einnig verður til sýnis og sölu bókverkið (DOKTORSRITGERÐ) eftir Sigrúnu Þorsteinsdóttur og Kristján, sem kom út fyrr á þessu ári. Sýning Kristjáns er opin daglega 14-17 til 4. september.  Cesco Soggiu og Karl Kristján Dav- íðsson sýna í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti. Sýningin stendur til 28. ágúst.  Sýning á verkum Ragnars Kjartans- sonar stendur yfir í Listasafni ASÍ.  Myndlistarmaðurinn Sólveig Alda Halldórsdóttir sýnir verk sitt Upp-skurð- ur á Vesturveggnum í Skaftfelli Bistro á Seyðisfirði. Verk Sólveigar samanstendur af texta sem unnin er upp úr dagbókar- færslum William Burroughs og hennar eigin. Sýningin stendur til 5. september og er opin alla daga frá kl. 11 til 24.  Danski ljósmyndarinn Peter Funch er með sýninguna „Las Vegas - Made by man“ í Kling og Bang gallerí, Laugavegi 23.  Guðbjörg Lind hefur opnað mál- verkasýningu í aðalsal Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnar- fjarðar. Viðfangsefni Guðbjargar Lindar hafa frá upphafi verið tengd vatni, fyrst fossum og síðar óræðum og ímynduð- um eyjum á haffleti.  Anna Jóelsdóttir hefur opnað sýn- inguna Flökt í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar.  Á Café Milanó stendur nú yfir sýn- ing á málverkum Péturs Péturssonar. Sýningunni lýkur 7. september.“  Samsýning 20 akureyrskra lista- manna stendur yfir í Ketilhúsinu á Ak- ureyri.  Sýningin Þrettán + þrjár stendur yfir í Lystigarðinum á Akureyri. Þetta er samsýning þrettán norðlenskra lista- kvenna og þriggja frá Færeyjum.  Sýningar Gjörningaklúbbsins, Heimis Björgúlfssonar og Péturs Arnar Friðrikssonar standa yfir í Nýlistasafn- inu við Vatnsstíg. Gjörningaklúbburinn opnar á 2. hæð safnsins sýninguna Á bak við augun. Í norðursal 3ju hæðar- innar er sýning Heimis Björgúlfssonar Gott er allt sem vel endar (Sheep in disguise) og í suðursalnum sýning Pét- urs Arnar Friðrikssonar Endurgerð. Sýningarnar standa til 7. september.  Sýning á nýjum verkum Rögnu Sig- rúnardóttur stendur yfir í Listhúsi 34 21. ágúst 2003 FIMMTUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 18 19 20 21 22 23 24 ÁGÚST Fimmtudagur Þeir Egill Sæbjörnsson ogRagnar Kjartansson, sem báð- ir fást bæði við tónlist og mynd- list, flytja í kvöld tón- og mynd- gjörninginn Fjögur tilbrigði við sorg í fjölnotasal Hafnarhússins. Þennan sama gjörning fluttu þeir í galleríinu Kling og Bang við Laugaveginn á Menningarnótt. „Hann Erling í Kling og Bang bað mig að vera með performans á Menningarnótt og þá datt mér í hug að kjörið væri að gera eitt- hvað með Ragga,“ segir Egill. „Við höfum aldrei gert neitt sam- an áður en oft talað um það vegna þess að við höfum verið að gera hluti sem okkur finnst eiga eitt- hvað sameiginlegt.“ Egill segir að þeir hafi strax dottið niður á þá hugmynd að gera verk um það ferli sem fólk fer í við missi eða sorg. Þeir skipta þessu ferli niður í fjóra hluta og eru þar með ákveðna tilvísun í Árstíðirnar fjórar eftir Vivaldi. „Við flytjum þetta með tveim- ur klassískum kassagíturum og notum raddirnar bæði til að syngja og öskra. Þetta er einhver blanda af nútímatónlist og popp- tónlist. Svo gerðum við vídeó sem er fimmtán mínútna langt og skiptist niður í þessi fjögur skeið.“ Gjörningur þeirra Egils og Ragnars stendur yfir í fimmtán mínútur. Nokkru síðar stígur hljómsveitin Kimono á svið og flytur ný lög af sinni alkunnu snilld. Dagskráin í Hafnarhúsinu er í tengslum við sýningu Smekleysu, Humar eða frægð, og getur fólk notað tækifærið og skoðað sýn- inguna í leiðinni. ■ ■ TÓNLIST Sungið og öskrað um sorgina EGILL OG RAGNAR Myndin var tekin í galleríinu Kling og Bang við Laugaveginn á Menningarnótt. Þeir félagar endurtaka leikinn í Hafnarhúsinu í kvöld ásamt hljómsveitinni Kimono. Borgarskjalasafn Reykjavíkur www.rvk.is/borgarskjalasafn, sími: 563 1770 Hver var Lárus? Sýning um Lárus Sigurbjörnsson, skjala- og minjavörð Reykjavíkurbæjar 1954-1968 á 3. hæð, Tryggvagötu 15. Opin alla virka daga kl. 10-16. Aðgangur ókeypis. www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790 Frumefnin Fimm - Ferðadagbækur Claire Xuan 24. maí - 1.sept. 2003 Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi, nánari upplýsingar í síma 563 1790. Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga 12-19 og 13-17 um helgar. Aðgangur ókeypis www.listasafnreykjavikur.is Sími 590 1200 HAFNARHÚS, 10-17 Smekkleysa í 16 ár, Alþjóðleg samtímalist á Íslandi, Erró - Stríð Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00 KJARVALSSTAÐIR, 10-17 Íslensk samtímaljósmyndun, Kjarval Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00 ÁSMUNDARSAFN, 10-16 Ásmundur Sveinsson - Nútímamaðurinn Minjasafn Reykjavíkur Árbæjarsafn - Viðey www.arbaejarsafn.is s: 577-1111 Árbæjarsafn: Draugaganga í kvöld Grasadagur sunnudag Ljúffengar veitingar í Dillonshúsi Viðey: Ganga þriðjudag kl. 19.30 Upplýsingar um leiðsögn í Viðey í síma 568-0535 og 693-1440 Árbæjarsafn Helgina 23.-24. ágúst: María Guðmundsdóttir sýnir muni og myndir úr flóka í Listmunahorni safnsins. Menningarmiðstöðin Gerðuberg www.gerduberg.is • sími 575 7700. Brýr á þjóðvegi 1 Hvað viltu vita? Sýningarnar standa til 21.sept. Á döfinni: Kogga á Sjónþingi lau. 27.sept.kl.13.30 Guðrún Jóhanna á Ljóðatónleikum Gerðubergs sun. 19.okt. kl.17.00 Lokað um helgar frá 31. maí - 1. september. s. 563 1717 BÆKUR Í FRÍIÐ til að lesa úti í sólinni eða inni í rigningunni. Hugmyndir að sumarlestri á heimasíðu Borgar- bókasafns. Upplýsingar á heimasíðu safnsins www.borgarbokasafn.is Minjasafn Orkuveitunnar Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal er opið alla daga kl. 13-17 og eftir samkomulagi í s. 567 9009

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.