Fréttablaðið - 02.10.2003, Síða 4

Fréttablaðið - 02.10.2003, Síða 4
4 2. október 2003 FIMMTUDAGUR Hvað finnst þér um Laxnessdeiluna? Spurning dagsins í dag: Hvað finnst þér um fjárlögin sem kynnt voru á Alþingi? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 32% 22% Leiðinleg 46% Skemmtileg Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Samdráttur í millilandaflugi: Uppsagnir hjá Icelandair ATVINNUMÁL Icelandair hefur sagt upp 29 flugmönnum félagsins vegna samdráttar í millilanda- flugi. Af þeim eru fjórtán þegar hættir störfum en aðrir munu láta af störfum um næstu mánaðamót. „Þetta er venjubundið vegna þess að umsvif í millilandaflugi minnka á veturna,“ sagði Jóhannes Bjarni Guðmundsson hjá Félagi ís- lenskra atvinnuflugmanna. „Reyndar eru þetta færri uppsagn- ir en á síðasta ári vegna fleiri leiguflugsverkefna félagsins. En þetta er lýsandi fyrir það hvað at- vinnuástand íslenskra flugmanna er ótryggt.“ Guðjón Arngrímsson, blaðafull- trúi Icelandair, sagði að starfs- mennirnir sem um væri að ræða hefðu eingöngu verið ráðnir tíma- bundið yfir háannatímann. „Það þekkist úr öllum greinum við- skipta og þjónustu að bæta við sig yfir sumartímann til að anna eftir- spurn. Þessir menn voru ráðnir sem sumarstarfsmenn og ekkert óeðlilegt við slíkt.“ ■ Þróunaðstoð dýr á metum ÞINGSETNING Lág framlög Íslands til þróunarhjálpar geta grafið undan möguleikum íslenskra stjórnvalda á að fá sæti í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna ef til kosninga kemur, sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti þegar hann ávarpaði þingheim við setn- ingu Alþingis. Þróunaraðstoð var meginefni ræðu forsetans. Hann vitnaði í vinnu fræðimanna sem hafa fjall- að um þróunar- aðstoð, einn talið lág fram- lög geta dregið úr líkum á að Ís- land komist í Öryggisráðið og aðrir lagt til þess að framlögin yrðu aukin. „Hvernig sem það veltur er ljóst að með auknum ábyrgðar- störfum á alþjóðavelli, innan Al- þjóðabankans, Sameinuðu þjóð- anna og víðar mun þessi sérstaða Íslands meðal frændþjóðanna á Norðurlöndum og ríkjanna í Evr- ópu vestanverðri verða í æ ríkari mæli talin okkur til álitshnekk- is,“ sagði forsetinn. Hann minntist þess að þó 30 ár væru síðan sú stefna hefði verið mótuð að veita þróunaraðstoð að verðmæti 0,7% af landsframleiðslu hefði ekki tekist að hrinda því í framkvæmd. Gilti engu þó mark- miðið hefði oft verið ítrekað af rík- isstjórnum og stjórnmálaflokkum. „Margt bendir til að nú megi ná víðtækri sátt um að tvöfalda á næstu árum framlag Íslands til þróunarhjálpar og auka það síðan til jafns við þá sem fremstir standa,“ sagði Ólafur Ragnar. „Slíkt myndi efla mjög hróður okk- ar meðal þjóða heims og styrkja til muna framboð til ábyrgðarstarfa innan Öryggisráðsins.“ Þrír varamenn tóku sæti á þingi vegna fjarveru þingmanna. Sjálfstæðismennirnir Kjartan Ólafsson og Sigurrós Þorgríms- dóttir taka sæti Árna Ragnars Árnasonar, sem er veikur, og Þor- gerðar K. Gunnarsdóttur sem er í barneignarleyfi. Þá tekur Sigur- lín Margrét Sigurðardóttir sæti Gunnars Arnar Örlygssonar sem afplánar refsidóm. 40 þingmenn greiddu Halldóri Blöndal atkvæði sitt í starf for- seta Alþingis en 14 sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. brynjolfur@frettabladid.is Hegranesgoði: Fór í kirkju ÞINGSETNING Allir þingmenn sem voru við setningu Alþingis í gær lögðu leið sína í kirkju áður en haldið var til fundar á Alþingi. Þeirra á meðal var Sigurjón Þórð- arson, þingmaður Frjálslynda flokksins og Hegranesgoði. Hér áður fyrr neituðu sumir þing- menn sósíalista, yfirlýstir trú- leysingjar, að fara í kirkju á þing- setningardag. Sigurjón segist ekkert sjá að því að fara í kirkju enda megi líta á það sem framhald af helgun þinga. „Mér þykir sárara að þeir skyldu hafa tekið sólkrossinn úr stéttinni við kirkjuna. Það hefði verið gaman að hafa hann þar áfram.“ ■ TONY BLAIR Breski forsætisráðherrann heimsótti sjúkra- hús í Bournemouth þar sem flokksþing Verkamannaflokksins fer fram. Flokksþing Verka- mannaflokksins: Íraksstríðið ekki rætt ENGLAND, AP Andstæðingar Íraks- stríðsins létu í sér heyra á flokks- þingi breska Verkamannaflokks- ins þrátt fyrir að Tony Blair for- sætisráðherra hefði neitað þeim um formlegar umræður um mál- ið. „Það var logið að okkur varð- andi gereyðingarvopnin,“ sagði Alice Mahon, þingmaður flokks- ins. Nokkrir meðlimir Verka- mannaflokksins lögðu fram neyð- artillögu þess efnis að hernaðar- aðgerðir gegn Írökum hefðu verið óréttmætar og kalla skyldi bresk- ar hersveitir heim frá Írak. Tillag- an var ekki tekin til umfjöllunar á flokksþinginu en andstæðingar Íraksstríðsins fengu tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í almennum umræðum um utanríkismál. ■ HVALVEIÐAR Vísindaveiðum Íslendinga á þessu ári er lokið. Vísindaveiðum lokið: Kvótinn kláraðist ekki HVALVEIÐAR „Við tókum ákvörðun um að ljúka veiðunum þrátt fyrir að ekki næðist að veiða öll dýr- in,“ sagði Gísli A. Víkingsson, hvalasérfræðingur Hafrannsókn- astofnunar. Vísindaveiðum Ís- lendinga á hrefnu á þessu ári er lokið. „Veiðarnar voru svæðisskiptar og þessar tvær hrefnur sem upp á vantaði áttu að veiðast á djúpsævi norður í hafi. Þangað var farið tví- vegis án árangurs og við töldum ekki skipta öllu máli þó að þeim yrði sleppt í þessari atrennu. Það var gert ráð fyrir því við áætlun- argerðina að ekki næðist að veiða allar hrefnurnar og þetta er vel innan skekkjumarka.“ Gísli sagði að rannsóknir á sýn- um sem tekin hafa verið í sumar færu að hefjast. „Að þeim koma margir aðilar og við búumst ekki við niðurstöðum fyrr en liðið er á veturinn.“ ■ FLUGLEIÐAÞOTA Tæplega 30 flugmönnum verður sagt upp vegna minnkandi verkefna í millilandaflugi. OF HÆGT FARIÐ Shlomo Ben-Ami, utanríkisráðherra Ísraels í stjórn Ehuds Baraks, segir að það væru mistök að reka Yasser Arafat úr landi, slíkt myndi einungis auka vinsældir hans. Hann sagði þörf á róttækara friðarferli í stað þeirra stuttu skrefa sem nú væru tekin. ÞINGSETNING Nokkur mannfjöldi safnaðist saman fyrir utan Al- þingi um það leyti sem þingsetn- ingin fór fram. Var þar á ferðinni fólk sem mótmælir framkvæmd- um við Kárahnjúka og öðrum stóriðjuáformum. „Fólk kemur og mótmælir nátt- úruspjöllum á hálendinu. Það er ærin ástæða til núna,“ segir Ásta Arnardóttir, leiðsögukona og einn mótmælendanna. „Það er verið að vinna skemmdarverk við Kára- hnjúka og það stendur til að skerða Þjórsárver. Það er sann- færing sem dregur fólk hingað niður eftir. Sannfæring um að náttúruvernd sé betri kostur.“ „Við berum hvert og eitt ábyrgð á því að standa fyrir þann sannleika og þá sannfæringu sem við finnum til,“ segir Ásta. Á einu spjaldanna sem var veifað fyrir framan Alþingi stend- ur að allir tapi á Kárahnjúkavirkj- un. „Þetta hefur komið fram á svo margvíslegan hátt núna,“ segir Ásta. „Það er vægast sagt ótrúlegt að framkvæmdir skuli ekki hafa verið stöðvaðar áður en lengra er haldið.“ ■ Forseti sagði við setningu Alþingis að lág framlög til þróunarhjálpar geti orðið Íslendingum til álitshnekkis samhliða auknum ábyrgðar- störfum á alþjóðavettvangi. GENGIÐ TIL ÞINGFUNDAR Þingsetning var með hefðbundnum hætti, byrjað á messu í Dómkirkjunni og síðan haldið í þingsal þar sem forseti flutti ræðu sína. AUKIÐ VIÐ MÚRINN Ísraelska ríkisstjórnin hefur samþykkt að byggja múr austan landnema- byggðarinnar Ariel á Vestur- bakkanum. Byggingin er viðbót við umdeildan múr sem Ísraelar eru að reisa inni á svæðum Palestínumanna. NÝ STJÓRN INNAN SKAMMS Ah- med Qureia, sem Arafat forseti Palestínumanna hefur valið sem forsætisráðherra, leggur ráð- herralista sinn fyrir Palestínuþing á næstu dögum. ■ Mið-Austurlönd ■ Mið-Austurlönd Stóriðjuáformum og framkvæmdum var mótmælt við þingsetningu: Ærin ástæða til mótmæla MÓTMÆLT Á AUSTURVELLI Umhverfisverndarsinnar mótmæltu framkvæmdum á hálendinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A „...í æ ríkari mæli talin okkur til álits- hnekkis. Óskiljanleg FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.